Er Kaupþing sloppið undan Tchenguiz-bræðrunum?

Í vik­unni barst slita­stjórn Kaup­þings ný stefna. Hún var frá Robert Tchenguiz, sem var stærsti ein­staki skuld­ari íslenska banka­kerf­is­ins þegar það hrundi haustið 2008. Tchenguiz vill fá skaða­bætur frá Kaup­þingi, og einum slita­stjórn­ar­manni, vegna þess að breska efna­hags­brota­deildin Special Fraud Office (SFO), rann­sak­aði hann. Tchenguiz telur að Kaupþing hafi haft frum­kvæði að og tekið þátt í umræddri rann­sókn, sem síðar var fallið frá, og að hann hafi orðið fyrir gríð­ar­legu fjár­hagstjóni vegna hennar.

Þetta hljómar allt kunn­ug­lega, enda Robert ekki fyrsti Tchenguiz-bróð­ir­inn sem fer fram með svona mál gegn Kaup­þingi. Vincent Tchenguiz höfð­aði mál gegn slita­búi Kaup­þings, og slita­stjórn­ar­mann­inum Jóhann­esi Rúnari Jóhanns­syni, og fleirum í nóv­em­ber í fyrra og krafð­ist 2,2 millj­arða punda í bætur, um 460 millj­arða króna.

Mjög skiptar skoð­anir eru um hversu lík­legt sé að þessar máls­höfð­anir skili ein­hverju. Ráð­gjafar Tchenguiz-bræðr­anna, sem Kjarninn hefur rætt við, eru sann­færðir um að málin fái efn­is­lega með­ferð og muni skila skaða­bóta­greiðslu. Innan slita­bús Kaup­þings, og reyndar víðar, er uppi sú til­gáta að aðfarir bræðr­anna séu fyrst og síð­ast til þess gerðar að eyði­leggja fyrir gerð nauða­samn­ingi bús­ins og slitum þess.

Og það virt­ist vera að raun­veru­leg hætta væri á því að það væri að takast. Máli Vincent Tchenguiz gegn Kaup­þingi var vísað frá í júní á grund­velli þess að enskir dóm­stólar hefðu ekki lög­sögu yfir slita­búi Kaup­þings, enda geri íslensk gjald­þrota­lög ráð fyrir því að íslenskir dóm­stólar hafi einir lög­sögu yfir þeim.

Í lok júlí sótti Vincent Tchenguiz hins vegar um heim­ild til að áfrýja þess­ari nið­ur­stöðu. Ef dóm­ari myndi sam­þykkja að leyfa honum að áfrýja gæti það hafa sett nauða­samn­ing Kaup­þings, sem þarf að klár­ast fyrir ára­mót svo ekki legg­ist 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur á búið, í algjört upp­nám.

Þ.e. ef Vincent Tchenguiz hefði munað eftir að lýsa kröf­unni í búið.

[caption id="attachment_13099" align="alignnone" width="649"] Vincent Tchenguiz vill fá 460 millj­arða króna í bætur.[/caption]

Kröfuhafar vilja forðast stöðugleikaskatt


Bókfært virði eigna Kaup­þings í lok árs 2014 var 799,9 millj­arðar króna. Því er ljóst að ef krafa Vincent Tchenguiz yrði sam­þykkt, og henni rétt lýst í búið, að þorri eigna þess myndi renna til hans. Ef bróðir hans Robert, sem skuld­aði íslensku banka­kerfi 2,1 millj­arð evra, um 309 millj­arðar króna á núvirði, myndi vinna sitt mál færi lík­ast til stór hluti af því sem eftir stæði til hans.

Vincent Tchenguiz vill fá 460 milljarða króna í bætur.
Vincent Tchenguiz vill fá 460 millj­arða króna í bætur.

Í byrjun júní síð­ast­liðnum lögðu íslensk stjórn­völd fram áætlun sína um losun hafta. Sam­dæg­urs var upp­lýst að stærstu kröfu­hafar Kaup­þings, Glitnis og Lands­bank­ans hefðu sam­þykkt að mæta svoköll­uðum stöð­ug­leika­skil­yrðum til að kom­ast hjá því að 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur myndi leggj­ast á eignir þeirra. Samkvæmt útreikn­ingum Kjarnans, sem sér­fræð­ingar hafa farið yfir, fela þeir samn­ingar í sér að Kaupþing greiði íslenska rík­inu ríf­lega 100 millj­arða króna í stöð­ug­leika­fram­lag, miðað við að sölu­and­virði Arion banka sé 80 pró­sent af bók­færðu virði eigin fjár hans í dag.

Ef 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur yrði lagður á þær allar þá myndi hann skila íslenska rík­inu yfir 300 millj­örðum króna.

Hefðu ekki getað klárað nauðasamning


Það er því kapps­mál fyrir kröfu­hafa Kaup­þings að stöð­ug­leika­skatt­ur­inn legg­ist ekki á. Eitt af þeim skil­yrðum sem þeir þurfa að mæta er að klára nauða­samn­ing fyrir ára­mót. Miðað við stærð kröfu Vincent Tchenguiz, sem yrði svokölluð búskrafa og myndi þar með njóta for­gangs yfir aðrar kröfur, var ljóst að hún gæti sett gerð nauða­samn­ing í algjört upp­nám. Það væri ekki hægt að borga út eignir Kaup­þings ef mögu­leiki væri á að tæp­lega 60 pró­sent þeirra yrðu að end­ur­greið­ast Vincent Tchenguiz ef hann ynni málið. Búist er við að mála­rekst­ur­inn gæti tekið allt að tvö ár.

Samhliða fram­lagn­ingu áætl­unar um losun hafta þurftu íslensk stjórn­völd að ráð­ast í ýmis konar laga­breyt­ingar. Ein slík var á lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki og var hún sam­þykkt á Alþingi 3. júní síð­ast­lið­inn. Samkvæmt þeirri breyt­ingu varð kröfu­hafi að lýsa síð­bú­inni kröfu í búið í síð­asta lagi 15. ágúst 2015. Að öðru leyti er ekki hægt að taka hana til greina við slit bús­ins.

Innan slita­bús Kaup­þings var fast­lega búist við því að Vincent Tchenguiz myndi lýsa síð­bú­inni kröfu fyrir þann tíma. Raunar var gengið út frá því. Það kom því mjög á óvart þegar það gerð­ist ekki.

Vegna þessa þá lítur slita­stjórn Kaup­þings svo á að hún þurfi ekki að halda aftur eignum til að mæta mögu­lega greiðslu á slíkri kröfu og því sé hægt að ljúka nauða­samn­ingi án þess að taka til­lit til Tchenguiz-bræðr­anna, en stefna Roberts Tchenguiz barst eftir að frest­ur­inn var útrunn­inn og því var kröfu hans heldur ekki lýst í búið.

Samskiptum við Tchenguiz-bræður ekki lokið


Sam­skiptum Kaup­þings og bræðr­anna er þó fjarri því lokið. Mál Vincent Tchenguiz gegn Jóhann­esi Rúnari Jóhanns­syni, Grant Thornton í Bret­landi og tveimur starfs­mönnum þess er enn lif­andi. Enskur und­ir­dóm­stóll hafn­aði mála­til­bún­aði Jóhann­esar Rúnars í lok júní um að þar­lendir dóm­stólar hefðu ekki lög­sögu í mál­inu gegn honum. Jóhannes Rúnar vildi að málið yrði tekið fyrir á Íslandi þar sem ein­ungis íslenskir dóm­stólar hefðu lög­sögu yfir upp­gjöri slita­bús Kaup­þings, en af því verður ekki.

[caption id="attachment_13100" align="alignnone" width="624"] Jóhannes Rúnar Jóhanns­son situr í slita­stjórn Kaup­þings.[/caption]

Jóhannes Rúnar Jóhannsson situr í slitastjórn Kaupþings.
Jóhannes Rúnar Jóhanns­son situr í slita­stjórn Kaup­þings.

Þá hefur Robert Tchenguiz, líkt og áður sagði, stefnt bæði Kaup­þingi og Jóhann­esi Rúnari vegna sam­bæri­legra atvika og bróðir hans. Bræð­urnir vilja báðir meina að þessir aðilar hafi lagt á ráðin um, haft frum­kvæði að og tekið þátt í, rann­sókn SFO, á þeim og fyr­ir­tækjum í þeirra eigu. Þetta hafi leitt til þess að bræð­urnir voru hand­teknir í mars 2011 og leitað var á skrif­stofu þeirra og í fyr­ir­tækjum í þeirra eigu.

Til­gang­ur­inn,sam­kvæmt stefnu Vincent Tchenguiz, var sá að nota rann­sókn SFO á meintum glæpum hans til að knýja hann til að semja um mál­efni sinna félaga gagn­vart Kaup­þingi, afla gagna frá SFO, sem emb­ættið gerði upp­tækt í hús­leit hjá Vincent, sem Kaupþing hefði ella ekki getað aflað og síðan mis­nota þau gögn í sam­skiptum sínum við Vincent Tchenguiz. Hann telur að með þessu hafi Kaupþing viljað kom­ast yfir eignir hans og fyr­ir­tæki sem honum tengd­ust. Þetta átti að skila Kaup­þingi auknum eignum og Grant Thornton í Bret­landi auknum greiðslum, þar sem starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins myndu sjá um skipti á þeim eignum sem teknar yrðu yfir.

Líkt og áður sagði er mála­til­bún­aður Robert Tchenguiz, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans, sam­bæri­legur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár