Ríkissjóður mun borga 106 milljarða í vexti í ár

Miklu hærri verð­bólga en reiknað var með, stór­aukin verð­tryggð lán­taka og það að ekki tókst að selja Íslands­banka vigtar allt inn í að vaxta­gjöld rík­is­sjóðs verða rúm­lega 26 millj­örðum krónum hærri en lagt var upp með. Vaxta­kostn­aður Íslands er einn sá hæsti í Evrópu.

Nýr ráðherra
Nýr ráð­herra Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir tók við lyklunum í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu í síð­asta mán­uði og lagði því fram sitt fyrsta frum­varp til fjár­auka­laga í vik­unni. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Vaxta­gjöld íslenska rík­is­ins á árinu 2023 verða 106,1 millj­arður króna sam­kvæmt frum­varpi til fjár­auka­laga. Þau hækka um 26,4 millj­arða króna frá því sem lagt var upp með við fjár­laga­gerð­ina, eða um 33 pró­sent. Sú aukn­ing skýrist að mestu af umtals­vert hærri verð­bólgu á þessu ári en for­sendur fjár­laga gerðu ráð fyrir sem aftur leiðir til mun hærri gjald­færslu á verð­bótum verð­tryggðra lána. Vaxta­jöfn­uður rík­is­sjóðs, það sem stendur eftir þegar búið er að draga frá tekjur hans vegna verð­tryggðra eigna, verður nei­kvæður um 87 millj­arða króna. 

Alls gerir frum­varpið ráð fyrir því að fjár­heim­ildir rík­is­sjóðs þurfi að aukast um 83,5 millj­arða króna og að heild­ar­út­gjöld rík­is­sjóðs í ár verði 1.418 millj­arðar króna. Það mun gera það að verkum að rík­is­sjóður verður rek­inn í 45 millj­arða króna halla á árinu 2023. Sá halli bæt­ist við afar mik­inn halla­rekstur rík­is­sjóðs á árunum 2021 og 2022 sem var sam­an­lagt 305,1 millj­arður króna. Sá …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GEJ
    Gudmundur Eyjólfur Jóelsson skrifaði
    Að ekki tókst að selja Íslandsbanka eykur vaxtagjöldinn hvað bölvuð lýgi er þetta eiginlega, að bera slíkt upp á borð fyrir okkur kjósendur er barasta ekki boðlegt.
    0
  • JÞM
    Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Salan á Íslandsbanka sem ekki varð af 2023 leiðir til 6 milljarða hærri vaxtakostnaðar ríkissjóðs. En það má líka nefna að hlutdeild ríkisins í hagnaði bankans 2023 verður líklega um 10 milljarðar þvi hann var ekki seldur, ekki slæmt það, talsvert hærra en umræddur vaxtakostnaður.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár