Evrópusambandið ávítar Ungverja fyrir meðhöndlun flóttafólks

Dimitris Avromopoulos, yfir­maður flótta­manna­mála hjá Evr­ópu­sam­band­inu (ESB), átelur Ung­verjum fyrir harka­leg við­brögð við straumi flótta­manna og hæl­is­leit­enda til lands­ins. Ung­verjar hafa lokað landa­mærum sínum að Serbíu og sigað óeirða­lög­reglu á flótta­menn svo þeir kom­ist ekki til lands­ins. Frétta­stofan Reuters greinir frá þessu.

Á blaða­manna­fundi með utan­ríkis- og inn­an­rík­is­ráð­herrum Ung­verja­lands sagði Avromopoulos megnið af flótta­fólk­inu sem kemst til Evrópu „Sýr­lend­inga sem þurfa á okkar aðstoð að halda“. „Það er ekki til sá veggur eða það haf sem þú reyndir ekki að kom­ast yfir ef þú flýrð ofbeldi og hryll­ing,“ sagði hann og bætti við að girð­ingar Ungverja gætu aðeins verið skamm­tíma­lausn og aðeins til þess fallnar að senda flótta­fólkið annað. Um leið eykst ósættið.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Dimitris Avramopoulos (fyrir miðju) ræðir við inn­an­rík­is­ráð­herran Sandor Pinter (til vinstri) og utan­rík­is­ráð­herran Peter Szijjarto.[/caption]

Kjarninn greindi frá því í morgun að Ban Ki-moon, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, væri brugðið vegna aðgerða Ungverja gegn flótta­mönnum við landa­mæri lands­ins. Sú með­ferð væri óásætt­an­leg.

Utan­rík­is­ráð­herran ung­verski, Peter Szijjarto, gagn­rýndi hins vegar emb­ætt­is­menn Evr­ópu­sam­bands­ins og Sam­ein­uðu þjóð­anna. Hann sagði stofn­an­irnar taka stöðu með flótta­fólk­inu sem stæði aðeins fyrir upp­þoti með því að grýta ung­verska lög­reglu­menn í átökum þar sem 20 særð­ust. Flótta­fólkið væri með því að hvetja til ofbeldis.

Djúpur ágrein­ingur um það hvernig á að takast á við straum fólks sem flýr átök og stríð fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs og í Mið-Aust­ur­löndum er milli aðild­ar­ríkj­anna 28 í Evr­ópu­sam­band­inu. Nýverið kynnti Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar sam­bands­ins, við­bragðs­á­ætlun um það hvernig lönd sam­bands­ins dreifi ábyrgð­inni á að hjálpa flótta­fólk­inu. Lang flestir kom­ast inn fyrir landa­mæri ESB í Grikk­landi, Ítalíu og Ung­verja­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár