Þeir verst settu fái 70.000 krónur en þingmenn 9.000 krónur

Fjár­mála­ráð­herra er sam­mála þing­manni Flokks fólks­ins að við búum í sam­fé­lagi þar sem margir hafa ekki nægi­lega mikið á milli hand­anna. Þing­mað­ur­inn spurði hvort ekki væri ráð að snúa við launa­hækk­unum þing­manna og þeirra verst settu.

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, við þingsetningu í síðustu viku.
Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, við þing­setn­ingu í síð­ustu viku. Mynd: Bára Huld Beck

„Er hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra ekki sam­mála mér í því að við ættum að snúa þessu við, þannig að eldri borg­arar og þeir sem verst hafa það fái 70.000 krónur en við fáum þær 9.000 krónur sem þeim eru boðnar?“

Þannig hljóm­aði fyr­ir­spurn Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar, þing­manns Flokks fólks­ins, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Beindi hann fyr­ir­spurn sinni til fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­sonar.

Vísaði Guð­mundur Ingi í orð Bjarna sem hann lét falla þann 10. des­em­ber í svari við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn Ingu Sæland en þau voru eft­ir­far­andi:

„Við höfum gert sér­stakar úrbætur fyrir þennan hóp til­tölu­lega nýlega með breyt­ingu sem félags­mála­ráð­herra kynnti fyrir þing­inu. Það kom í kjöl­farið á því að úttekt sem hópur sér­fræð­inga og hags­muna­að­ila fram­kvæmdi sýndi að það væru ein­stak­lingar í við­kvæmri stöðu í þessum hópi, ein­stæð­ingar sér­stak­lega, fólk með mjög lágar líf­eyr­is­tekjur eða engar, og við gætum með sér­stökum úrræðum lyft sér­stak­lega undir með þeim hópi. Þetta gerðum við með laga­breyt­ingu en við höfum ekki boðað því til við­bótar aðrar sér­stakar aðgerðir.“

Þarna gerði Guð­mundur Ingi ráð fyrir að fjár­mála­ráð­herra ætti við búsetu­skerð­ingar sem sam­þykktar voru á þingi. „Búsetu­skerð­ingar þar sem sam­þykkt voru 90 pró­sent af lægstu upp­hæð sem elli­líf­eyr­is­þegar þurfa lifa á, lægstu upp­hæð sem er undir fátækt­ar­mörkum. Hann gleymdi að segja frá því og hlýtur líka vera stoltur af því að þarna var settur 100 pró­sent skerð­ing­ar­skattur, króna á móti krónu var aftur sett á þennan hóp og hann skilur þann hóp eftir í algerri fátækt­ar­gildru þar sem hann á ekki mögu­leika á að hjálpa sér.

En síðan bætir hann um betur og segir að sá hópur eigi ekki að fá það sem aðrir hafa fengið fyrir jólin og á þessu ári. Öryrkjar hafa fengið 70.000 krónur ein­greiðslu skatta- og skerð­ing­ar­laust. Það er gott,“ sagði Guð­mundur Ingi.

Spurði hann hvers vegna þessi hópur fengi ekki sömu ein­greiðslu. „Þessi hópur er jafn við­kvæmur og jafn­vel við­kvæm­ari að mörgu leyti. Stór hópur ann­arra eldri borg­ara er líka í sömu stöðu. Það er eig­in­lega stórfurðu­legt í þessu sam­hengi að við skulum ekki hafa haft getu til þess að sjá til þess að þessi hópur fengi líka 70.000 kr. skatta- og skerð­ing­ar­laust. Af hverju ekki? Hvers vegna í ósköp­unum þarf þessi hópur að sitja eftir?“ spurði hann.

Segir ráðstöfunartekjur ellilífeyrisþega hafa tekið stökk á síðastliðnum 5 árum

Bjarni svar­aði og sagði þarna hefði verið rifjað upp að hann hefði þurft að minna á að rík­is­stjórnin hefði beitt sér fyrir því að koma með sér­stakar upp­bætur fyrir þá sem minnst hefðu í hópi elli­líf­eyr­is­þega.

„Félags­mála­ráð­herra lagði til að það yrði útfært með þeim hætti að af tak­mörk­uðum fjár­munum færi mest til þeirra sem hefðu minnst. Það er alveg rétt að til að ná því mark­miði þarf að beita reglum, skerð­ing­ar­reglum, sem leiða til þess að þeir sem hafa meira eru ekki með. Ég held að þetta sé mjög skýrt dæmi um að rík­is­stjórnin hafi for­gangs­raðað fjár­munum til þeirra sem eru í bágastri stöðu. Það má síðan spyrja hvers vegna ekki er gert meira.

En þegar við horfum á þróun ráð­stöf­un­ar­tekna elli­líf­eyr­is­þega yfir tíma höfum við séð að þær hafa tekið stökk á síð­ast­liðnum 5 árum. Reyndar ætla ég að leyfa mér að efast um að nokk­urt tíma­bil hafi liðið fyrr þar sem kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna líf­eyr­is­þega hefur vaxið jafn hratt og við á um síð­ustu 5 til 6 ár. Það er mikið fagn­að­ar­efni og þetta er ánægju­efni,“ sagði Bjarni.

Var hann sam­mála Guðmundi Inga að við byggjum í sam­fé­lagi þar sem margir hefðu ekki nægi­lega mikið á milli hand­anna. „En það verður ekki leyst þegar rík­is­sjóður er rek­inn með 320 millj­arða halla með því að vera bara með stöðug yfir­boð. Þetta ger­ist hægt og rólega með því að tryggja jafnt og þétt hag­vöxt í land­inu, meiri verð­mæta­sköpun og svo sann­gjarna skipt­ingu gæð­anna.“

Enginn lifir á 200.000 krónum

Guð­mundur Ingi sagði þegar hann kom aftur í pontu að þessi hópur lifði ekki á þróun ráð­stöf­un­ar­tekna. Hann lifði á því sem kæmi í vas­ann. „Það lifir eng­inn á 200.000 krónum,“ sagði hann.

Spurði Guð­mundur Ingi hvort ráð­herr­ann væri sam­mála því að hækka þessa hópa um 3,6 pró­sent og þing­menn og ráð­herra um svip­aða pró­sentu­tölu sem þýðir að ráð­herra fengi upp undir 70.000 krónur á mán­uði en þessi hópur 9.000 krónur.

„Er þetta í lagi? Ég segi nei. Þetta ætti að snúa þessu snú­ast alger­lega við. Það er út í hött að tala um ein­hverja þróun ráð­stöf­un­ar­tekna þegar bilið gliðnar alltaf meira og meira, við eigum að hætta með þessar pró­sentu­tölur og taka upp krónu­tölur. Er hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra ekki sam­mála mér í því að við ættum að snúa þessu við, þannig að eldri borg­arar og þeir sem verst hafa það fái 70.000 krónur en við fáum þær 9.000 krónur sem þeim eru boðnar?“ spurði þing­mað­ur­inn.

„Þetta eru framfarir“

Bjarni svar­aði í annað sinn og sagði að ef það ætti að taka ein­hverja vit­ræna, sann­gjarna umræðu um þróun kjara þessa hóps þá þyrfti að nota stað­reyndir, tölur og gögn.

„Á tekju­sög­unni.is, sem ég leyfði mér að fletta upp í meðan hv. þing­maður tal­aði, er hægt að skoða þetta bara krónu fyrir krónu, á grund­velli fram­tala og raun­gagna um það hvað er að ger­ast.

Þegar maður skoðar lægstu tekju­tí­und­ina í hópi 66 ára og eldri og skoðar stöðu hjóna má sjá að kjör þeirra hér eftir fjár­mála­hrunið voru svo slæm að heild­ar­ráð­stöf­un­ar­tekjur hjóna eftir skatt á mán­uði voru um 200.000. Síðan þá hefur leiðin legið upp á við. Núna hefur okkur tek­ist að koma þess­ari sömu tölu, sem lá í kringum 200.000 krón­urnar, upp í 370.000 krónur. Þetta eru fram­farir. Þetta eru fram­farir sem sýna að við höfum látið góðu árin, hag­sæld­ar­skeiðið sem nú er nýlokið, renna til þess að bæta stöðu þeirra sem minnst hafa haft,“ sagði ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár