Kári étur ofan í sig fyrri orð og vonast til að hefja skimanir um miðja næstu viku

For­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar hefur snú­ist hugur um end­an­leika þeirrar ákvörð­unar að hætta við að skima fyrir veirunni sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskr­ar erfða­grein­ing­ar, segir að eftir að hafa sest niður með Vís­inda­siða­nefnd þá hafi komið í ljós að skimun fyrir kór­óna­veirunni væri ekki leyf­is­skyld aðgerð. Íslensk erfða­grein­ing mun því fram­kvæma skimanir fyr­ir kór­ónu­veirunni og jafn­framt gera rann­sókn­ir á mögu­leg­um stökk­breyt­ing­um veirunn­ar. Þetta kemur fram í sam­tali Kára við mbl.is.

Þar seg­ist Kári ætla að éta ofan í sig fyrri orð sín um að ákvörðun hans að hætta við skimanir fyr­ir kór­ónu­veirunni sé end­an­leg. „Og það er skal ég segja þér, ekki upp­á­halds sunnu­dags­mat­ur­inn minn, að éta orðin mín.“ Nú sé ekk­ert annað að gera en að „keyra þetta í gang. Kári von­ast til að skimanir geti haf­ist um miðja næstu viku.

Vís­inda­siða­nefnd og Per­sónu­vernd sögðu fyrr í dag í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu að sú skimun sem Íslensk erfða­grein­ing ætl­aði að skima fyrir sé „hvorki leyf­is­skyld hjá Vís­inda­siða­nefnd né Per­sónu­vernd og getur því farið fram án aðkomu þess­ara aðila.“

Kári Stef­áns­son hafði áður sagt að hann væri hættur við að skima eftir veirunni vegna aðfinnslna Vís­inda­siða­nefndar og Per­sónu­vernd­ar.

[adspot]Í yfir­lýs­ing­unni sagði að Per­sónu­vernd hafi síð­degis í gær borist erindi frá Íslenskri erfða­grein­ingu þar sem fram kom að fyr­ir­tækið hefði boð­ist til þess að aðstoða heil­brigð­is­kerfið við að öðl­ast betri skiln­ing á því hvernig Covid19-veiran hagar sér. „Út frá efni erind­is­ins vökn­uðu spurn­ingar um hvort hluti verk­efn­is­ins fæli í sér vís­inda­rann­sókn á heil­brigð­is­sviði sem væri leyf­is­skyld hjá Vís­inda­siða­nefnd. Var Íslensk erfða­grein­ing upp­lýst um það og boðin flýti­með­ferð.

Sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem nú liggja fyrir er ætlun fyr­ir­tæk­is­ins að skima fyrir Covid19-veirunni og skoða veiruna nán­ar. Slík skimun og veiru­rann­sókn er hvorki leyf­is­skyld hjá Vís­inda­siða­nefnd né Per­sónu­vernd og getur því farið fram án aðkomu þess­ara aðila.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár