ÁTVR ætlar að fara fram á lögbann á vefverslanir og undirbýr lögreglukæru

Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins telur nauð­syn­legt að fá úr því skorið hjá dóm­stólum hvort inn­lendar vef­versl­anir sem selja áfengi milli­liða­laust til neyt­enda séu að starfa lög­lega, eins og rekstr­ar­að­ilar þeirra vilja meina.

ÁTVR undirbýr nú lögbannsbeiðni á starfsemi vefverslana með áfengi.
ÁTVR und­ir­býr nú lög­banns­beiðni á starf­semi vef­versl­ana með áfengi. Mynd: RÚV

ÁTVR hefur hafið und­ir­bún­ing að beiðni um lög­bann á hendur vef­versl­unum með áfengi sem starf­ræktar eru hér á landi og hefur sömu­leiðis áform um höfðun dóms­máls í fram­hald­inu.

Samhliða er haf­inn und­ir­bún­ingur lög­reglu­kæru vegna starf­semi vef­versl­ana með vín, sem ÁTVR segir að feli í sér grund­vall­ar­breyt­ingu á bæði áfeng­is­stefn­unni hér á landi og for­sendum fyrir rekstri sínum, ef þær fái að starfa óáreittar.

[adspot]

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá ÁTVR í dag, en að und­an­förnu hefur ný vef­verslun með vín verið nokkuð áber­andi í fréttum. Sömu­leiðis hefur önnur vef­verslun sem selur bjór milli­liða­laust beint til neyt­enda verið starf­rækt um nokk­urt skeið.

Rekstr­ar­að­ilar þessar vef­versl­ana segja að starf­semi þeirra sé lög­leg, en ÁTVR segir að ákvæði áfeng­is­laga um einka­leyfi sitt til sölu áfengis í smá­sölu séu „afdrátt­ar­laus“.

„Óhjá­kvæmi­legt er að fá úr því skorið hjá til þess bærum aðilum,“ segir í til­kynn­ingu ÁTVR.

Tilkynning ÁTVR í heild sinni

Að und­an­förnu hafa sprottið upp vef­versl­anir sem selja áfengi í smá­sölu hér á landi, beint til neyt­enda. Starf­sem­inni er beint gegn lög­bundnum einka­rétti Áfengis- og tóbaks­versl­unar rík­is­ins á smá­sölu áfengis, sem hefur verið ein grunn­stoða íslenskrar áfeng­is­stefnu.

Þrátt fyrir afdrátt­ar­laus ákvæði áfeng­is­laga og laga um verslun rík­is­ins með áfengi og tóbak um einka­leyfi ÁTVR til þess að selja og afhenda áfengi í smá­sölu full­yrða rekstr­ar­að­ilar vef­versl­an­anna að starf­semi þeirra sé lög­leg. Óhjá­kvæmi­legt er að fá úr því skorið hjá til þess bærum aðilum. ÁTVR hefur því hafið und­ir­bún­ing að beiðni um lög­bann á hendur vef­versl­un­unum og höfðun dóms­máls í fram­haldi af því. Samhliða er haf­inn und­ir­bún­ingur lög­reglu­kæru vegna starf­sem­innar.

Einka­réttur rík­is­ins til smá­sölu áfengis byggir á lýð­heilsu­sjón­ar­miðum og því mati lög­gjafans að mark­miðum um heilsu þjóð­ar­innar verði ekki náð með öðru og væg­ara móti. Verði starf­semi vef­versl­ana í beinni sam­keppni við smá­sölu ÁTVR látin óáreitt felur það í sér grund­vall­ar­breyt­ingu á áfeng­is­stefn­unni og for­sendum fyrir rekstri fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár