Innflytjendur eiga undir högg að sækja í skólum landsins

Charmaine Butler hefur búið á Íslandi í níu ár og langar að starfa sem sjúkra­liði. Hún seg­ist hafa mætt skiln­ings­leysi af hálfu skóla­stjórn­enda þegar hún reyndi að sækja sér menntun hér á landi, sem varð til þess að hún hrökkl­að­ist úr nám­inu. For­stöðu­maður Fjöl­menn­ing­ar­set­urs segir inn­flytj­endur eiga veru­lega undir högg að sækja í fram­halds­skólum lands­ins.

Charmaine Butler er kona á fimm­tugs­aldri og kemur frá Bahama­eyjum. Enska er hennar móð­ur­mál, en eftir níu ára dvöl á Íslandi skilur hún íslensku ágæt­lega og talar smá­vegis. Hún hafði unnið við ýmis­legt frá því hún kom til Íslands, meðal ann­ars á Land­spít­ala og í ferða­þjón­ustu, þegar hún fékk vinnu við aðhlynn­ingu á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Fells­enda í Dölum. „Ég kunni vel við vinn­una og vildi sækja mér þekk­ingu og menntun í fag­inu,“ segir Charmaine, sem í kjöl­farið skráði sig í sjúkra­liða­nám við Fjöl­brauta­skóla Vest­ur­lands á Akranesi. 

Hún seg­ist hafa kunnað vel við námið í fyrstu og fund­ist það bæði áhuga­vert og skemmti­legt. Hún fékk leyfi til að taka prófin á ensku, en síð­asta haust var hins vegar tekin ákvörðun um að hún myndi fram­vegis þurfa að borga 15 þús­und krónur fyrir þýð­ing­una á hverju prófi. Charmaine átti að taka alls fimm próf á síð­ustu haustönn og hefði því þurft að greiða alls 75 þús­und krónur fyrir önn­ina, en fyrir ein­stak­ling í lág­launa­starfi er það dágóður pen­ingur. 

Svöruðu ekki spurningum um gjaldtöku

Guðrún Vala Elís­dóttir, náms- og starfs­ráð­gjafi hjá Símennt­un­ar­mið­stöð­inni á Vest­ur­landi, aðstoð­aði Charmaine í kjöl­farið við að skrifa bréf til skól­ans þar sem þessu gjaldi var mót­mælt. „Fleiri nem­endur þurfa sér­staka aðstoð í námi, til 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár