Framkvæmdastjóri Sameinaða hættur vegna frétta úr Panamaskjölunum

Kristján Örn Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóðss­ins, hefur látið af störfum að eigin ósk í kjöl­far fjöl­miðlaum­fjöll­unar um tengsl hans við tvö aflands­fé­lög. Í yfir­lýs­ingu frá Krist­jáni vegna þessa segir:

„Í ljósi umræðu um mig og þeirrar stað­reyndar að nafn mitt er að finna í Panama­skjöl­unum vil ég koma eft­ir­far­andi á fram­færi:

Ég hef ávallt gætt þess í mínum störfum að starfa af heil­indum og fara að lögum og reglum. Ég tel mik­il­vægt vegna þess­arar umræðu um mig að Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóð­ur­inn verði ekki fyrir skaða. Ég hef því til­kynnt stjórn sjóðs­ins að ég óski lausnar frá störfum í þeirri von að sátt megi skap­ast um sjóð­inn og starf­semi hans.

Ég hef starfað í 19 ár hjá Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóðnum þar sem ég hef eign­ast marga góða vini og ég vil þakka öllu þessu góða fólki fyrir gott sam­starf í gegnum öll þessi ár."

Félög í eigu tveggja fram­kvæmda­stjóra íslenskra líf­eyr­is­sjóða er að finna í skjölum panamísku lög­fræði­stof­unnar Mossack Fon­seca. Kast­ljós fjall­aði um Panama­skjölin á mánu­dags­kvöld í sam­starfi við Reykja­vik Media.

Um er að ræða Kára Arnór Kára­son, nú fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Stapa - líf­eyr­is­sjóðs, og fram­kvæmda­stjóra Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóðs­ins, Krist­ján Örn Sig­urðs­son. Kári Arnór sagði starfi sínu lausu eftir að Kast­ljós spurði hann spurn­inga vegna Panama­skjal­anna og nú hefur Kristján Örn gert slíkt hið sama.

Hvorki Kári Arnór né Krist­ján Örn til­kynntu stjórnum sjóð­anna sem þeir stýrðu um við­skipti sín.

Kristján Örn er tengdur tveimur félögum sem er að finna í Panama­skjöl­un­um; Mika Assett og Fulcas Inc. Mika var stofnað af Lands­bank­anum í Lúx­emburg árið 2007. Krist­ján Örn var með umboð og pró­kúru í félag­inu, sem er skráð á Panama. Fram kom í Kast­ljósi að svo virð­ist sem það hafi verið flutt frá Lands­bank­anum yfir til Nor­dea-­bank­ans við hrun Lands­bank­ans og svo verið lagt niður að beiðni Nor­dea árið 2014. Pró­kúra og stjórn Krist­jáns Arnar á félag­inu var þá gild til árs­loka 2010.

Krist­ján Örn sagði við Kast­ljós að Mika hafi verið stofnað árið 2008 til að ávaxta fjár­muni en ekki til að borga lægri skatta. Hann hafi þó ákveðið að hætta við að nota það. Hann sagð­ist ekki muna hversu mikið hann borg­aði fyrir upp­setn­ing­una á Mika. Hann við­ur­kenndi að hann hafi ekki látið stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins vita.

Fulcas Inc. var stofnað af Nor­dea árið 2009. Krist­ján Örn var líka skráður pró­kúru­hafi þess og þar með raun­veru­legur eig­andi í jan­úar 2009. Fulcas Inc er enn starf­andi. Krist­ján Örn sagð­ist í svari sínu til Kast­ljóss að um hafi verið að ræða ein­stök við­skipti og nauð­syn­legt hafi verið að stofna félagið til að geta farið í þau við­skipti. En ekk­ert varð af þeim við­skipt­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár