Ójöfnuður hefur áhrif á lífslíkur barna

Börn sem fæðast í efnaminni ríkjum heimsins eru 50 sinnum líklegri til að deyja á fyrsta mánuði lífs síns en þau börn sem fæðast í efna­miklum ríkjum.

Börn sem fæðast í efnaminni ríkjum heimsins eru 50 sinnum líklegri til að deyja á fyrsta mánuði lífs síns en þau börn sem fæðast í efna­miklum ríkjum. Um 7,000 nýburar deyja á hverjum degi út um heim allan. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF, Barna­hjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem kynnt verður í dag.

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að Ísland sé eitt öruggasta land í heimi til að fæða barn eða í 2. sæti á eftir Japan og á undan Singapúr sem er í 3. sæti. Börn sem fæðast í Pakistan, Afganistan og Miðafríkulýðveldinu eiga verstu lífs­líkurnar.

Skýrslan er upphafið að alþjóð­legu átaki UNICEF sem hefur það markmið að vekja athygli á tíðni nýbura­dauða og krefjast aðgerða og umbóta fyrir hönd nýbura heimsins.

Verið er að bregðast fátækustu börnunum

Þrátt fyrir að stórlega hafi dregið úr barna­dauða í heiminum hefur ójöfnuður enn mikil áhrif á lífslíkur barna á fyrstu dögum þeirra frá fæðingu. Samkvæmt UNICEF er mikið áhyggju­efni að ennþá deyja 7,000 nýburar á hverjum degi af orsökum sem auðveldlega væri hægt að koma í veg fyrir, með betra aðgengi að færu heilbrigðis­starfsfólki og grunn­heilsugæslu á meðgöngu og við fæðingu.

„Tíðni nýbura­dauða eru gífurlegt áhyggju­efni, einkum meðal fátækustu ríkja heims“, segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi. „Í ljósi þess að meirihluti þessara dauðsfalla er fyrirbyggjanlegur þá er augljós­lega verið að bregðast fátækustu börnunum og þeim sem búa á jaðri samfélaga. Þar á ég til dæmis við dauðsföll af völdum sýkinga sem koma upp vegna slæms hreinlætis og vegna skorts á hreinu vatni í fæðingu.“

Flest dauðfalla má koma í veg fyrir

Í skýrslunni kemur jafnframt fram að í efnaminni ríkjum heimsins er meðal­tíðni nýbura­dauða 27 börn af hverjum 1000. Í efna­miklum ríkjum er sama dánar­tíðni 3 börn af hverjum 1000. Þar er einnig bent á að 8 af 10 hættulegustu stöðum í heiminum til að fæða börn eru í Afríku sunnan Sahara.

Meira en 80 prósent af dauðsföllum nýfæddra barna má rekja til fæðinga fyrir tímann, vandamála sem koma upp í fæðingu eða sýkinga á borð við lungna­bólgu, heilahimnu­bólgu og blóð­eitrunar, segir í skýrslunni. Flest þessara dauðsfalla má koma í veg fyrir með aðgengi að vel þjálfuðu heilbrigðis­starfsfólki ásamt hreinu vatni, sótt­hreinsun, ódýrum lyfjum, aðstoð við brjósta­gjöf og með góðri næringu.

Ef dánar­tíðni nýfæddra barna á heimsvísu næði meðaltali hátekju­ríkja fyrir árið 2030 væri hægt að bjarga lífi 16 milljón barna. Skortur á vel þjálfuðu heilbrigðis­starfsfólki og ljós­mæðrum þýðir þó að á hverjum degi fá þúsundir verðandi mæðra og nýbura ekki þá aðstoð sem þau þurfa til að lifa af. Sem dæmi má nefna að í Noregi eru 218 læknar, hjúkrunar­fræðingar og ljósmæður sem þjóna 10,000 manns á meðan hlut­fallið er 1 á hverja 10,000 íbúa í Sómalíu.

Bergsteinn segir að þetta undir­striki ójöfnuðinn. „Konur eignast oft börn sín án nokkurrar aðstoðar fagfólks, sökum fátæktar, átaka og veikra innviða. Við höfum tæknina og þekkinguna sem þarf, en hún er utan seilingar fyrir þá sem verst standa.“

Ýmsar leiðir mögulegar til að hjálpa

Til þess að vekja athygli á tíðni nýbura­dauða og krefjast aðgerða fyrir hönd nýbura heimsins hefur UNICEF sett af stað alþjóðlegt átak sem hefst í dag. Með þessu átaki vill UNICEF senda brýn tilmæli til ríkis­stjórna, heilbrigðis­starfsmanna, einka­geirans og foreldra til að tryggja að fleiri ungabörn lifi af og dafni.

Með ákallinu felst krafa um að ná til allra barna með því í fyrsta lagi að ráða og þjálfa nægilegan fjölda lækna, hjúkrunar­fræðinga og ljósmæðra með sérfræði­þekkingu í mæðra- og nýbura­vernd og í öðru lagi að tryggja öllum verðandi mæðrum hagnýta og viðráðanlega heilbrigðis­aðstöðu með hreinu vatni, sápu og rafmagni. Í þriðja lagi að veita öllum mæðrum og börnum þau lyf og aðbúnað sem þarf til að lifa af og dafna og í fjórða lagi að efla ungar konur og stúlkur, verðandi mæður og fjöl­skyldur þeirra til að krefjast umbóta og umönnunar.

Heims­foreldrar taka virkan þátt í baráttu UNICEF um allan heim, meðal annars á sviði mæðra­verndar og heilsu­verndar barna. Á Íslandi eru yfir 27.000 heims­foreldrar sem hjálpa UNICEF að þrýsta á um breytingar á heimsvísu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár