Farsóttin herjar aftur á fyrirmyndarríkin

Í Japan hafði fólk verið hvatt til að ferð­ast inn­an­lands og fara út að borða. Her­ferð­inni hefur snar­lega verið hætt. Til stóð að ýta ferða­banda­lagi milli Hong Kong og Singapúr úr vör, þar sem fólk gæti ferð­ast án sótt­kví­arkvaða. Af því verður ekki í bráð.

Á baðströnd í Hong Kong.
Á bað­strönd í Hong Kong. Mynd: EPA

Þrátt fyrir varn­að­ar­orð banda­rísku sótt­varna­stofn­un­ar­innar hafa millj­ónir manna lagt land undir fót síð­ustu daga í til­efni þakk­ar­gjörð­ar­há­tíð­ar­innar. Og það á meðan smitum er enn að fjölga dag frá degi. En Banda­ríkin eru ekki sér á báti. Evr­ópu­ríki hafa glímt við sama vanda síð­ustu vikur og nú hafa lönd í Austur-Asíu, sem hrósað hefur verið fyrir fádæma­lausan árangur í bar­átt­unni við kór­ónu­veiruna, einnig bæst í þennan hóp.

Í Japan, Suður-Kóreu og Hong Kong hafa tak­mark­anir á ferðum fólks verið inn­leiddar að nýju eftir að smitum tók að fjölda hratt á ný. Skýr­ing­arnar á bakslag­inu eru margar. Almenn­ingur er orð­inn lang­þreyttur á ástand­inu og er far­inn að upp­lifa hina umtöl­uðu far­sótt­ar­þreytu og hættur að fara eftir ströng­ustu sótt­vörnum. Þá fer pirr­ingur í garð stjórn- og yfir­valda einnig vax­andi. Ekki má svo gleyma kald­ara veðri – sem eru kjörað­stæður fyrir hina skæðu veiru að grass­era.

Stjórn­völd í Japan ákváðu að fara „íslensku leið­ina“ og hvetja lands­menn til að ferð­ast inn­an­lands og fara út að borða. Allt átti þetta að ýta vel við hag­kerf­inu en sner­ist upp í and­hverfu sína og varð olía á eld þriðju bylgju far­ald­urs­ins. Sú bylgja stendur enn yfir og í henni hefur hvert smit­fjölda­metið verið slegið á fætur öðru.

[adspot]

Í vik­unni ákváðu borg­ar­yf­ir­völd í Seúl í Suður-Kóreu að loka börum og næt­ur­klúbbum. Þá voru fjölda­tak­mark­anir settar á veit­inga­stöðum. Aflétt­ing fyrri aðgerða hafði verið skamm­góður vermir og leitt að lokum til mik­illar fjölg­unar í smitum.

[links]Sama leið var farin í Hong Kong í vik­unni. Engir barir og næt­ur­klúbbar eru opnir. Í síð­ustu viku var búið að ákveða að fresta fram­kvæmd ferða­banda­lags við Singapúr, banda­lags sem átti að tryggja frjáls og örugg ferða­lög fólks milli svæð­anna tveggja. Þessa til­rauna­verk­efnis hafði verið beðið með nokk­urri eft­ir­vænt­ingu og átti að vera upp­hafið að sótt­kví­ar­lausum ferða­lögum milli landa í Asíu. En áður en verk­efn­inu var ýtt úr vör hafði kór­ónu­veiran náð að skjóta aftur upp sínum smit­andi kolli í Hong Kong.

Þó að lönd í Austur-Asíu séu að glíma við veiruna í auknum mæli er bar­áttan þar ekki nándar nærri eins erfið og víða í Evrópu og í Banda­ríkj­unum. Daglega eru nú að grein­ast um 2.000 til­felli í Japan á dag, um 300 í Suður-Kóreu og á mánu­dag greindust 73 með kór­ónu­veiruna í Hong Kong. Til sam­an­burðar þá eru um 150 þús­und manns að grein­ast í Banda­ríkj­unum á hverjum degi um þessar mundir.

Yfirvöld í Japan ætla ekki að bíða eftir því að far­ald­ur­inn fari úr bönd­unum. Þau hafa sér­stakar áhyggjur þar sem hlut­fall aldr­aðra er hærra þar í landi en víða ann­ars staðar. Þá ótt­ast þau að vetr­ar­kuldi verði til þess að veiran kom­ist frekar á flug milli fólks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár