Musk brýnir starfsmenn til dáða

Bréf sem Elon Musk sendi starfs­mönnum Tesla 29. ágúst síð­ast­lið­inn sýnir hversu mikið er í húfi fyrir Tesla, nú þegar mik­il­vægur tími er framundan.

Frum­kvöð­ull­inn Elon Musk hefur átt betri daga á sínum ótrú­lega ferli. Hann berst nú fyrir því að við­halda trausti fjár­festa á háleitum mark­miðum hans um að gera heim­inn betri og umhverf­is­vænni í gegnum starf­semi fyr­ir­tækj­anna Space X og Tesla Motors.

Fyr­ir­tækið sem Musk stofn­aði, geim­flauga­fyr­ir­tækið Space X, sem þróar geim­flaugur og tækni til að auð­velda ferðir út í geim og til baka, hefur átt í vand­ræðum eftir að flaug fyr­ir­tæk­is­ins, SpaceX Falcon 9, sprakk og mikið af verð­mætum bún­aði að auki. Spreng­ingin hafði alvar­legar afleið­ingar þar sem gervi­hnöttur í eigu Spacecom eyði­lagð­ist. Hann kost­aði 200 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 22 millj­örðum króna.

Space X er ekki skráð á markað, og hefur ekki gefið út hvert tjónið er eða hvort trygg­ingar eru yfir höfuð fyrir hendi vegna þess.

Allt að ár án geimskots

Fortune greindi frá því í gær að spreng­ingin gæti þýtt að fyr­ir­tækið muni ekki geta skotið flaug á loft aftur næstu 9 til 12 mán­uði. Þetta kemur sér illa fyrir stærsta ein­staka við­skipta­vin SpaceX, sem er banda­ríski her­inn. Í maí gerði Space X mik­il­vægan samn­ing við her­inn og banda­rísk yfir­völd, sem tryggir fyr­ir­tæk­inu stöðugar tekjur og verk­efni. En spreng­ingin nú gæti sett strik í reikn­ing­inn og tafið fyr­ir­huguð áform um geim­skot og einnig tafið þróun á tækni fyr­ir­tæk­is­ins.

Umfram allt er þetta áfall fyrir Musk, en þetta var annað mis­heppn­aða geimskotið á innan við fjórtán mán­uðum.

Gwynne Shotwell, sem stýrir SpaceX fyr­ir­tæk­inu við hlið Musk, hefur ekki ennþá gefið út nákvæma skýrslu um hvað fór úrskeiðis hjá Falcon 9 enda rann­sókn á atvik­inu, bæði hjá SpaceX og banda­rískum yfir­völdum, skammt á veg komin.

Tesla á sínu mikilvægasta skeiði

Musk er ekki aðeins að glíma við erf­ið­leika og háleit mark­mið þegar kemur að geimskotum heldur er raf­bíla­fram­leið­and­inn sem hann stofn­aði, Tesla Motors, einnig að sigla inn í sinn mik­il­væg­asta tíma frá því fyr­ir­tækið var stofnað.

Musk sjálfur árétt­aði þetta með tölvu­pósti til starfs­manna 29. ágúst síð­ast­lið­inn, sem Bloomberg birti á vef sínum. Í póst­inum segir hann að mik­il­vægt sé fyrir fyr­ir­tækið að ljúka þriðja árs­fjórð­ungi á jákvæðum nótum, og ná hagn­aði af starf­sem­inni, áður en fram­leiðsla á Tesla Model 3 kemst á fullt, á næsta ári.

Þetta myndi senda mik­il­væg skila­boð til fjár­festa, segir Musk. Fyrir vikið þurfi allir starfs­menn að leggja á sig allt sem þeir geti, og fram­leiða eins marga bíla og mögu­lega er hægt, en á sama tíma að spara. „Það væri frá­bært að geta hent því í and­litið á þessum nákvæð­is­röddum á Wall Street, sem halda áfram að segja að Tesla verði alltaf fyr­ir­tæki sem tapi pen­ingum,“ segir Musk meðal ann­ars í póst­inum.

2017 er stóra árið

Það er líka mikið í húfi. Á næsta ári kemur Model 3 bíll­inn á göt­una, en hann mun kosta frá 35 þús­und Banda­ríkja­dölum, eða sem nemur um 4,5 millj­ónum króna. Musk segir að þetta sé bíll­inn sem muni skipta sköpum fyrir bíla­iðn­að­inn og Tesla Motors. Hann verði full­kom­lega sam­keppn­is­hæfur við alla bíla sem ganga fyrir olíu, og verði ætl­aður almenn­ingi, fyrst og fremst. Á milli 400 og 500 þús­und forp­ant­anir liggja fyrir á bílnum, og ljóst er að Tesla er að kom­ast inn á stóra sviðið í bíla­iðn­aði með þessum bíl.

Frá árinu 2012 þá hafa selst meira en 100 þús­und Tesla Model S bílar.

Jafnvel þó Musk haf oftar en ekki stolið fyr­ir­sögn­unum, þá er Tesla óra­fjarri stærstu bíla­fram­leið­endum heims­ins þegar kemur að fram­leiðslu og sölu. En Musk hefur sagt að mark­miðið sé að „breyta leiknum“ og sýna fram á að það sé hægt leiða fram breyt­ingar til góðs fyrir heim­inn, með tækn­ina að vopni. Og árið 2017 er stóra árið.

Efa­semdir fjár­festa um að Musk sé á réttri leið með sín verk­efni, hafa verið að magn­ast upp und­an­farna mán­uði, að sögn Bloomberg. Ástæðan er ekki sú, að hann sé ekki tal­inn afburða­snjall og fram­sýnn, heldur mun frekar að lengri tíma muni fyrir fyr­ir­tæki hans að ná þeirri stöðu sem lagt var upp með, heldur en áætl­anir fyr­ir­tækj­anna hafa gefið til kynna. Í stað þess að Tesla verði mark­aðs­leið­andi 2020 þá geti það hæg­lega orðið tíu árum seinna.

Fleiri komnir á fullt

Fram­þróun á raf­bílum og innviðum fyrir raf­bíla, hjá öðrum bíla­fram­leið­endum, eins og Benz, Nissan, Ford og Audi, hafa meðal ann­ars leitt til þess­ara efa­semda.

Þrátt fyrir efa­semdir fjár­festa um að Tesla geti orðið sá leið­andi bíla­fram­leið­andi sem Musk vill að fyr­ir­tæki verði, þá er ekki hægt að segja að hann sé á flæðiskeri staddur. Hann er sjálfur met­inn á 11,4 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 1.400 millj­arða króna.

Leggjum meira á okkur

Þessi fimm barna 44 ára gamli faðir frá Suður-Afríku er því fjarri því að vera að baki dott­inn, jafn­vel þá fjár­festar á Wall Street heimti meiri og skjót­ari gróða. Skilaboð Musk til starfs­manna hjá Tesla sýna þetta glögg­lega. Hann segir ein­fald­lega: leggjum meira á okkur, sýnum úr hverju við erum gerð.

Musk er númer fimmtán í heim­inum, á lista Forbes yfir rík­asta fólk í tækni­geir­anum, og númer 38 þegar kemur að áhrifa­mesta fólki heims, á lista sama mið­ils.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár