Aðeins þrjú ríki ESB á réttri braut í loftslagsmálum

Aðeins þrjú lönd innan Evr­ópu­sam­bands­ins á réttri braut í lofts­lags­málum

Ný skýrsla varpar ljósi á það hvernig lönd innan Evr­ópu­sam­bands­ins standa sig í að efna Par­ís­ar­sátt­mál­ann. Löndin 27 bera ábyrgð á 60 pró­sent los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í Evrópu en sam­kvæmt skýrsl­unni eru aðeins þrjú lönd sem eru á réttri braut: Svíþjóð, Þýska­land og Frakk­land.

[links]Markmið Par­ís­ar­sátt­mál­ans er að halda hlýnun Jarðar í innan við 2°C og var það mark­mið landa í Evrópu að minnka losun koltví­sýr­ings um 40 pró­sent fyrir árið 2030. Samkvæmt skýrsl­unni, sem unnin var af Carbon Market Watch, virð­ist þó vera að flest aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins vinni ekki mark­visst að því að efna sátt­mál­ann.

Skýrslan byggir á því að gefa hverju landi fyrir sig stig fyrir ólíka þætti sátt­mál­ans sem vegin eru á móti mik­il­vægi þeirra. Gögnin voru fengin úr opin­berum skjölum, yfir­lýs­ingum ráð­herra og skjölum sem skilað var inn til vinnu­hóps um umhverf­is­mál innan Evr­ópu­sam­bands­ins.

Í stiga­gjöf­inni trónir Svíþjóð á toppnum með 67 stig af 100. Þar á eftir kemur Þýska­land með 54 stig og Frakk­land með 53 stig. Meðal þeirra landa sem standa sig hvað verst í lofts­lags­málum eru Írland sem aðeins fær 13 stig, þrátt fyrir að mark­mið lands­ins hafi verið að draga úr losun um aðeins eitt pró­sent til árs­ins 2030, Ítalía sem fær 9 stig af 100 og Pólland með aðeins 2 stig.

Forystuþjóðir í loftslagsmálum í Evrópu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár