Dugar ekki að hafa ráðherra sem vill vel

Umhverf­is­ráð­herra segir að breyta verði eign­ar­haldi lofts­lags­mála svo árangur náist. Staðan í lofts­lags­málum hafi komið henni á óvart. Stjórn­völd verði að beita öllum til­tækum ráðum til að ná mark­miðum, ann­ars þarf íslenska ríkið að borga.

Björt Ólafs­dóttir tók við sem umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í nýrri rík­is­stjórn hinn 11. jan­úar síð­ast­lið­inn. Hún hefur und­an­farnar vikur staðið í ströngu við að koma sér fyrir í nýju emb­ætti eftir að hafa verið þing­maður Reyk­vík­inga í stjórn­ar­and­stöðu í eitt kjör­tíma­bil.

Einungis mán­uði eftir að hún tók við lyklum að skrif­stofu ráð­herra í umhverf­is­ráðu­neyt­inu í Skugga­sundi, var henni kynnt skýrsla Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands (HHÍ) sem Sigrún Magn­ús­dóttir, for­veri hennar í emb­ætti umhverf­is­ráð­herra, óskaði eftir að yrði gerð og Bryn­hildur Dav­íðs­dóttir pró­fessor rit­stýrði.

Verkefni skýrslu­höf­unda var meðal ann­ars að rýna los­un­ar­spá fyrir Ísland til 2020 og 2030, að skoða fyrri mark­mið um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og hvernig tek­ist hefur að ná þeim, greina hag­kvæm­ustu leiðir til þess að ná þeim mark­miðum sem landið hefur geng­ist undir og meta hvort Ísland eigi að vera áfram í sam­floti með ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins í við­skipta­kerfi með los­un­ar­heim­ildir.

Í stuttu máli þá eru nið­ur­stöð­urnar sem birtar eru í skýrsl­unni ekki sér­lega jákvæðar þegar kemur að alþjóð­legum mark­miðum og skuld­bind­ingum Íslands í lofts­lags­málum. Eins og Kjarninn hefur fjallað um þá er reiknað með að án sér­tækra og nokkuð rót­tækra aðgerða muni mark­miðin ekki nást og rík­is­sjóður þurfa að greiða sektir fyrir, ef svo má að orði kom­ast.

Björt kynnti Alþingi á fimmtu­dag skýrslu sína um stöðu og stefnu í lofts­lags­málum sem unnin er eftir nið­ur­stöðum HHÍ. Í stöðu­mati ráð­herra er fjallað á hrein­skilin hátt um stöð­una í lofts­lags­málum og verk­efnin fram undan. Einn þing­maður sem kvað sér hljóðs í umræðum um skýrslu Bjartar, Kolbeinn Proppé, sagði það bein­línis hressandi að lesa plagg um lofts­lags­mál „sem horfir raun­sætt á stöð­una; sem er ekki endi­lega að draga fjöður yfir eða skreyta sig með stolnum fjöðrum.“

Tvöföld losun árið 2030 er kinnhestur

Í til­efni þess að skýrsla Hag­fræði­stof­unar er komin út og að nú sé að hefj­ast und­ir­bún­ingur nýrrar aðgerða­á­ætl­unar í lofts­lags­málum sett­ist blaða­maður Kjarnans niður með Björtu Ólafs­dóttur á mið­viku­dag. Björt kynnti stöðu­mat sitt og stefnu dag­inn eftir. Það lá bein­ast við að spyrja fyrst hver hefðu verið hennar fyrstu við­brögð við nei­kvæðum horfum í lofts­lags­málum.

„Þetta er verra en ég bjóst við. Eins og skýrslan segir, ef maður horfir á háspána, sem við erum ekki alveg að horfa framan í en er þó hugs­an­legur mögu­leiki, þá gæti losun frá Íslandi auk­ist um 99 pró­sent frá 1990 til 2030. Það er nátt­úr­lega bara kinn­hestur.“

„Sagt er að sumir vilji verksmiðjur út við sérhvern tanga og fjörð. “ Svona eru fyrstu tvær línurnar í lagi Magnúsar Eiríkssonar, Göngum yfir brúna. Nú verður breyting þar á því í samstarfssamningi ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að ekki verði veittar ívilnanir til mengandi stóriðju á kjörtímabilinu.
„Sagt er að sumir vilji verk­smiðjur út við sér­hvern tanga og fjörð. “ Svona eru fyrstu tvær lín­urnar í lagi Magnúsar Eiríks­sonar, Göngum yfir brúna. Nú verður breyt­ing þar á því í sam­starfs­samn­ingi rík­is­stjórn­ar­innar er kveðið á um að ekki verði veittar íviln­anir til meng­andi stór­iðju á kjör­tíma­bil­inu.

Í skýrsl­unni er spáð fyrir um fram­tíð­ar­út­streymi til árs­ins 2030 og eru gerðar tvær spár; þ.e. háspá og grunn­spá. Í grunn­spá er reiknað með venju­bund­inni þróun, þe. ef við hegðum okkur eins og við gerum nú þegar. Samkvæmt háspánni má gera ráð fyrir að heild­ar­út­streymi frá Íslandi verði 99 pró­sent meira en það var árið 1990. Grunn­spáin gerir ráð fyrir að útstreymið verði 53 pró­sent meira en árið 1990.

Tími ívilnunar fyrir mengandi stóriðju liðinn

Staðan í dag, gagn­vart mark­miðum til árs­ins 2020, er jafn­framt ekki nógu góð. Mestu skiptir aukin hlutur stór­iðju í losun Íslands mestu. Gert er ráð fyrir að hlutur stór­iðj­unnar muni verða meiri á næstu árum, enda hafa fyrri rík­is­stjórnir þegar gert íviln­andi samn­inga við stór fram­leiðslu­fyr­ir­tæki sem hyggj­ast stunda hér stór­iðju. Björt bendir á að nú þurfi að takast á við það. „Það eru fyr­ir­tæki sem eru að fara í starf­semi fyrst núna sem fyrri stjórn­völd drógu til lands­ins, ef svo má segja. Við þurfum að fara að takast á við þær ákvarð­anir núna.“

„Ég hélt satt að segja að los­unin væri ekki svona mikil,“ segir Björt spurð hvort Ísland sé komið styttra á veg en hún hafi gert ráð fyrir. „Af því að við höfum þessa grænu orku og við höfum verið lengi að ræða að auð­vitað eigum við að raf­bíla­væða hér allt og auð­vitað eiga orku­skiptin í sam­göngum að vera komin meira á veg. Svo er eins og þetta hafi allt gerst mjög hægt.“

„Það kom mér á óvart að skrefin hafa ekki verið stigin nægi­lega stór í því að snúa þessu við. Okkar rík­is­stjórn tók fyrsta, að því er mér finnst, mik­il­væg­asta skrefið þegar það var ákveðið og skrifað í stjórn­ar­sátt­mála að við ætlum ekki að veita fleiri íviln­anir fyrir meng­andi stór­iðju á Íslandi. Það er bara búið. Og eins og við vitum þá hefur engin meng­andi stór­iðja farið af stað nema fá þessar íviln­anir frá rík­inu. Þannig að þetta er mik­il­vægt stjórn­tæki sem við ætlum að beita.“

Tími fyrir græna skatta og hvata

Spurð hvort hún telji það upp á stjórn­völd komið að ýta almenn­ingi og fyr­ir­tækjum í þetta far seg­ist Björt helst vilja nota jákvæða hvata. „Stjórn­völd hafa hingað til verið að ívilna, veita skatta­af­slætti og afslátt af gjöldum til fyr­ir­tækja svo þau komi hingað og fari í atvinnu­upp­bygg­ingu sem mengar. Ég hef alltaf sagt að ég á móti svona íviln­unum. Þetta skekkir sam­keppn­i­stöðu og er bara vont.“

„Ég sé alveg fyrir mér að við getum snúið þessu við með því að frekar ívilna fyr­ir­tækjum og hjálpa þeim til að leita að grænum lausnum, hvetja sér­stak­lega til nýsköp­unar í grænum iðn­aði og aðstoða fyr­ir­tæki til að setja upp hreinsi­búnað sem að dregur úr losun. Þarna þurfum við að vinna með fyr­ir­tækj­unum. En þau eiga auð­vitað líka að standa sín reikn­ings­skil með því að leggja sinn metnað í að gera þetta sjálf.“

Spurð hvort það standi til að hækka græna skatta segir Björt að öllum til­tækum ráðum verði beitt. „Við verðum að beita öllum hvötum og til­tækum ráðum til þess að færa hegðun okkar í þá átt að við séum að hlífa umhverf­inu.“

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið er til húsa í Skuggasundi 1.
Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið er til húsa í Skugga­sundi 1.

Dugar ekki að hafa ráðherra sem vill vel

Á þessu ári mun fara fram vinna við gerð aðgerða­á­ætl­unar í lofts­lags­málum í umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu, eins og kveðið er á um í lofts­lags­lögum frá 2012. Slík aðgerða­á­ætlun var síð­ast inn­leidd árið 2010 og hefur henni verið fylgt síðan. Í það minnsta í orði, því í skýrslu HHÍ er nið­ur­staðan að aðgerða­á­ætl­un­inni hafi ekki verið fylgt í vissum geirum sam­fé­lags­ins.

En hvernig sér Björt fyrir sér að hægt sé að tryggja það að aðgerða­á­ætl­un­inni sé fylgt, jafn­vel þó aðrir taki við ráð­herra­emb­ættum eða taki sæti á Alþingi?

„Ég hef sagt það, og það er mín stað­fasta trú, að ef að við ætlum að ná ein­hverjum árangri í lofts­lags­málum þá verður að vera breytt eign­ar­hald á því stóra verk­efni,“ segir Björt. „Það er ekki þannig að það dugi eitt og sér að hafa umhverf­is­ráð­herra sem er öfl­ugur og vill vel. Ég verð að ná áheyrn fleira fólks og auð­vitað þeirra sem stjórna en ekki síst: Þetta kemur ekki „top-down“. Það mun ekki virka mjög vel ef við segjum bara „ger­iði svona og hinsegin“.“

Björt segir mik­il­vægt að atvinnu­lífið taki þátt í þessu verk­efni, rétt eins og sveit­ar­fé­lög sem hún segir standa sig mis vel í lofts­lagsvænni þjón­ustu. „Og svo þarf rík­is­stjórnin að vera alger­lega ein­huga – og hún er það. Það þarf svo að vera sam­hugur um þetta stóra mál á Alþingi. Skot­graf­irnar þurfa að víkja, við þurfum bara að fara upp úr þeim. Ég hef enga trú á því – vegna þess að þetta er allt of stórt mál – að ein­hver álíti sem svo að þetta geti nýst í ein­hverjum póli­tískum mark­miðum.“

„Ég held að almenn­ingur og stjórn­kerfið sé á þessum tíma­punkti að gera sér fylli­lega grein fyrir því að nú sé tím­inn sem við verðum að gera þetta; þetta getur ekki beðið. Og það er bara gott að nýta þann kraft sem kemur yfir fólk.“

Stjórnvöld ábyrg fyrir hluta vandans

Í skýrsl­unni sem Björt kynnti fyrir Alþingi á fimmtu­dag er mynd sem sýnir hvar skuld­bind­ingar íslenskra stjórn­valda liggja og hvaða ráð eiga við hvern lið. Myndin er hér að neðan, en ábyrgð stjórn­valda er tákn­aður með rauða svæð­inu.

Mynd úr skýrslu ráðherra um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Losun eftir uppsprettu og eftir því hvernig hún telst gagnvart skuldbindingum Íslands og dæmi um aðgerðir til að draga úr losun.
Mynd úr skýrslu ráð­herra um stöðu og stefnu í lofts­lags­málum. Losun eftir upp­sprettu og eftir því hvernig hún telst gagn­vart skuld­bind­ingum Íslands og dæmi um aðgerðir til að draga úr losun.

„Ef við tölum um þennan minnsta kassa sem sýnir það sem er bein­línis á ábyrgð stjórn­valda. Þar er minn fókus, þó svo að hitt komi okkur alveg við,“ segir Björt og vísar í mynd­ina. „Við verðum að upp­fylla Par­ís­ar­sam­komu­lagið. Það er bara mjög stórt verk­efni. Og það þarf að ein­henda sér í það því að óbreyttu þá erum við ekki að fara að upp­fylla þetta sam­komu­lag. Það er heilmargt sem stjórn­völd geta gert.“

Hún segir það liggja í augum uppi að velja þær leiðir sem eru ódýrastar en skila mestum árangri. Þar skora orku­skipti í sam­göngum hátt, rétt eins og land­græðsla og skóg­rækt. „Auðvitað viljum við þá fara í þær aðgerðir sem kosta okkur kannski frekar lítið en hefur mik­inn ábata og jafn­vel – eins og með raf­bíla­væð­ing­una – skilar okkur í plús eftir ein­hvern ára­fjölda.“

Niðurlægjandi ef Ísland sætir viðurlögum

Það sé mik­il­vægt að stjórn­völd bregð­ist við þeim hluta sem þau hafa skuld­bundið sig til þess að sinna. „Það er ljóst að ef við náum ekki að standa við Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu – og auð­vitað líka Kýoto-sam­komu­lag­inu – þá munum við þurfa að borga.“

Það eru við­ur­lög sem sagt?

„Já, við erum ekk­ert að tala um nokkra þús­und­kalla. Það er alveg vitað að ef þú eyðir millj­arði í skóg­rækt þá mun það borga sig. Annars þurfum við að borga í bein­hörðum pen­ingum eins og hver önnur stór­iðja fyrir það sem við erum að losa. Fyrir utan það að það væri bein­línis nið­ur­lægj­andi fyrir land eins og Ísland. Það ætlar eng­inn að láta það ger­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár