,,Oh, we love Iceland” - með Sanders-hjónum á framboðsfundi í New York

Bernie Sanders, öld­unga­deild­ar­þing­maður Vermont-ríkis, leggur nú nótt við nýtan dag við að reyna að ná for­skoti á Hillary Clinton, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og öld­unga­deild­ar­þing­konu New York-ríkis, í for­seta­for­vali demókrata. Þegar loks var blásið til fjölda­fundar í New York-borg ætl­aði allt um koll að keyra. Í fyrsta sinn í mörg ár hafa atkvæði kjós­enda í rík­inu mikil áhrif á útkomu for­vals demókrata og spennan er eftir því. Daginn fyrir fund Sanders var Clinton með sinn eigin við­burð í Harlem-hverfi borg­ar­innar, í hinu sögu­fræga Appollo Theater, sem þekkt­ast er fyrir að vera sá staður sem nær allir þekktir banda­rískir, svartir tónist­ar­menn tutt­ug­ustu aldar hafa komið fram. Útsend­ari Kjarnans skellti sér í þetta sinn á fram­boðs­fund Sanders, sem fór fram í suður Bronx, sem er meðal ann­ars fæð­inga­staður Hipp-hopps­ins.

Eins og staðan er núna þarf Sanders að vinna tæp­lega 60% allra kjör­manna eða atkvæða sem eru í pott­inum, fyrir utan ofur­kjör­menn­ina, sem eru atkvæði í höndum elítu flokks­ins. Mikill meiri­hluti þeirra hefur þegar lofað Hillary stuðn­ingi sínum. Ekki er mikil hefð er fyrir því að ofur­kjör­menn skipti um skoðun, en á sama tíma er ekki hefð fyrir því að þeir styðji þann sem ekki vinnur meiri­hluta hefð­bund­inna kjör­manna eða atkvæða. Til að vinna þarf annar aðili að ná 2.383 kjör­mönnum. Í dag hefur Clinton tryggt sér 1.289 og Sanders 1.045. Þá hafa 469 ofur­kjör­menn lofað Clinton stuðn­ingi sínum en aðeins 31 hefur lofað Sanders stuðn­ingi. Forvalið í New York fer fram í dag og sýna kann­anir að Sanders hefur náð að minnka for­skot Clinton tölu­vert. Nýjastu kann­anir sýna þó að hún er með 10-18 pró­sentu­stiga for­skot. Á lands­vísu hafa kann­anir sveifl­ast mikið og sýnir síð­asta könnun að Hillary er bara með 1,2 pró­sentu­stiga for­skot á Sanders. Framboð Clinton benti á það ítrekað í vik­unni sem leið að þrátt fyrir að nú væri Sanders að hækka í könn­unum hefðu meira en tvær millj­ónir fleiri kosið Clinton í for­vali en Sanders.

Biðin langa

Á 134. stræti tæmd­ist lest nr. 2 og út úr lest­inni struns­aði hópur af ungu fólki sem merktur var í bak og fyrir með slag­orðum og merkjum Sanders. Þegar upp úr lest­ar­stöð­inni var komið blasti við nokkuð fjöl­breytt hverfi, nokkuð ólíkt þeim stöðum sem túristar borg­ar­innar eru vanir að sjá. Suður Bronx ber merki van­rækslu af hálfu borg­ar­yf­ir­valda, þar er rusl á göt­unum, ólíkt því sem gengur og ger­ist í fínni hverfum og á leið­inni í garð­inn, sem var um 10 mín­útna gangur frá lest­ar­stöð­inni, blasti við bryn­varið barna- og ung­linga­fang­elsi ( juvenile detention center ) í miðju íbúa­hverf­inu. Þegar að garðs­hlið­inu var komið, mætti okkur löng röð fyrir blaða­menn og það tók ríf­lega klukku­stund að kom­ast í gegnum stífa leit leyni­þjón­ust­unnar, sem ber ábyrgð á að verja for­seta­fram­bjóð­end­urna. Fólk streymdi að úr öllum áttum og í kringum garð­inn hring­sól­uðu bílar með risa­vaxna skjái sem spil­uðu fram­tíð­ar­lega aug­lýs­ingu sem lýsti kostum fram­bjóð­and­ans í þaula. Hin röðin var víst orðin svo löng að skipu­leggj­endur höfðu áhyggjur af því að hægt væri að koma öllum fyrir.

Garð­ur­inn er ekki ýkja stór og fljót­lega fór afgirta svæðið að fyll­ast af kapp­sömum stuðn­ings­mönnum, í hvert sinn sem fólk gekk inn í hóp­inn var hrópað og fagnað, sólin skein og hita­stigið var um 20 stig. „Get up stand up“ söng Marley í bak­grunni og stemm­ingin var í takt við það. Þegar liðnir voru þrír tímar frá því að við mættum í garð­inn kom loks yfir­maður sam­skipta í kosn­inga­bar­átt­unni og bauð fólk vel­komið, en bætti svo við að tveir tímar væru þar til Sanders sjálfur myndi mæta. Sumum eldri stuðn­ings­mönnum þótti það nokkuð langur tími en klukkan var bara fimm og enn hlýtt í lofti.

Maður, sem lítur út eins og Barack Obama, gengur um svæðið og stillir sér upp svo fólk geti tekið mynd af sér, mér er sagt að þarna sé á ferð­inni maður sem hafi gert sér það að atvinnu að líkj­ast for­set­anum. Eft­ir­lík­ingin styður sumsé Sanders, frum­gerðin hefur ekki gefið upp stuðn­ing sinn.

Hér má sjá mynd­bút um eft­ir­hermuna, sem kall­ast Lous Ortiz, en er þekktur sem „Bronx Obama.“

Stuðningsmenn Sanders

Á gras­inu nokkuð frá svið­inu situr Sean Thieman, spænsku­þýð­andi sem er nýfluttur til borg­ar­innar frá Minnesota og les í blað­inu Socialist Alt­ernative. Þegar ég nálg­að­ist hann og sagð­ist ekki muna eftir því að hafa séð sós­í­alista­blað áður sagði hann að þetta blað væri næstum því ekki til, svo fá ein­tök væru prentuð. En hann von­að­ist þó til að hreyf­ingin sem Sanders væri að skapa gæti breytt því. Aðspurður um hvað það væri við Sanders sem heill­aði hann segir hann „frá því ég heyrði af honum í apríl hef ég verið ótrú­lega glaður með að hann er réttu megin í öllum þeim málum sem skipta mig máli.“ En hvað ef Hillary vinnur í for­val­inu? Gæti hann hugsað sér að kjósa hana? „Nei, ég get ekki kosið Hillary Clinton, í fyrsta lagi er ég á móti stjórn­mála­fjöl­skyldum sem eru eins og kon­ungs­fólk, þannig að valdið fær­ist bara á milli fjöl­skyldu­með­lima, en svo er ég mjög ósam­mála henni, sér­stak­lega í utan­rík­is­málum. Ég var mjög mót­fall­inn Íraks­stríð­inu, til að nefna eitt dæmi,” segir hann. Ný könnun sýnir að 33% kjós­enda Sanders telja sig ekki lík­lega til að kjósa Clinton í for­seta­kosn­ing­unum sjálfum ef hún vinnur for­valið.

Sean bætir við að hann bindi miklar vonir við að Sanders breyti miklu í stefnu stjórn­valda í utan­rík­is­málum, sem hann hafði vonað að Obama gerði, en hafi orðið fyrir miklum von­brigðum.

Að svo mæltu er mætt til okkar eft­ir­herma með leik­brúðu sem lítur út eins og Bernie Sanders. Ég kveð Sean og tek eft­ir­hermuna tali en hann kemst lítið að því brúðan tekur yfir, undir hljómar „uuu, baby love, my baby love, I need you“ með Diönu Ross. Mynda­töku­maður sjón­varps­stöðvar er kom­inn við hlið­ina á mér og far­inn að yfir­heyra leik­brúð­una, svo ég leita að næsta við­mæl­enda.

Meril Dancigier stendur í þvög­unni og veifar skilti með mynd af Sanders í líki fugls, en eins og frægt er orðið mætti smá­fugl á fram­boðs­fund hjá Sanders og sett­ist á ræðupúltið hans í miðri ræðu sem hann hélt í stórum ráð­stefnu­sal í Portland fyrir nokkrum dögum síðan. „Ég trúi því sem Bernie segir 100 pró­sent og ég held það eigi við um alla, líka þá sem ætla ekki að kjósa hann, það er hans sér­staða. Hann hefur verið að berj­ast fyrir sós­íal­ískum málum alla tíð og ólíkt Hillary sem ég held að vilji bara verða for­seti til að verða for­seti. Ég held að Bernie hafi djúpa sann­fær­ingu fyrir því sem hann talar fyrir og vilji ekk­ert meira en að koma þessum hlutum í verk. Ef það sem þarf til að koma þessu í verk sé að verða for­seti, þá er hann til­bú­inn að fara í þá veg­ferð, en það ekki ein­hvers konar mark­mið í sjálfu sér að verða for­seti,” segir hún mér af miklum ákafa.

Nicole Lynch stendur utan þvög­unnar og bíður eins og aðrir átekta, hún segir mér að hún sé í raun ekki alveg sann­færð um að hún kjósi Sanders. „Ég er meira að kynna mér málin, ég hugsa að ég kjósi Sanders en ég er samt ekki jafn sann­færð og flestir vinir mínir sem tala um fátt annað,“ segir hún og bendir í átt að þvög­unni. „Mér finnst heill­andi við Bernie að hann er búinn að vera að tala fyrir sömu mál­efnum mjög lengi og Hillary hefur skipt oft um skoðun og er að spila hinn póli­tíska leik, það veldur mér áhyggjum.” Hún seg­ist þó vera alveg viss um að hún muni á end­anum kjósa þann sem fær útnefn­ingu demókrata.

Spike Lee og gamla fólkið

Nú var klukkan að nálg­ast sex og aðeins farið að skyggja, og leik­konan Rosario Dawson komin á sviðið. Hún hóf ræðu sína á að gagn­rýna Clinton fyrir að hafa gagn­rýnt Sanders fyrir að hafa ekki brugð­ist nógu harka­lega við ummælum Donalds Trump dag­inn áður, þegar hann sagði að það ætti að refsa konum fyrir að fara í fóst­ur­eyð­ingu. Um þriðj­ungur kvenna í Banda­ríkj­unum hefur farið í fóst­ur­eyð­ingu og ummælum Trumps var mót­mælt víða um Banda­ríkin sama dag. „Skammastu þín Hillary“ sagði leik­konan og átti sú hljóð­klippa eftir að hljóma um öldur ljós­vakans næsta dag.

Næstur á svið var mættur sjálfur kvik­mynda­leik­stjór­inn Spike Lee, sem hélt örstutta ræðu. Hann hvatti alla til að tala við for­eldra sína af því að „gamla fólkið ætlar allt að kjósa Clinton,“ sagði leik­stjór­inn frækni sem er 59 ára. En nú var komin góð stemm­ing í mann­skap­inn, fagn­að­ar­lát­unum ætl­aði aldrei að linna. Í um hálf­tíma var svo bara boðið upp á tón­list í hátöl­urum og greini­legt að um töf á dag­skránni var að ræða. Þegar þarna var við komið var klukkan orðin sjö og gamli mað­ur­inn við hlið mér sagð­ist varla þola miklu lengri bið, hann hafði verið mættur í garð­inn klukkan tvö. Stöku sinnum mátti greina kanna­bis­lykt, sem er nokkuð við­tekin venja á úti­sam­komum sem þessum í þess­ari borg, en flestir voru í góðu stuði og spjöll­uðu og dill­uðu sér við tón­list­ina.

Þrumuræða Sanders

Klukkan rúm­lega sjö var Bernie Sanders svo loks mættur og þá var öll þreyta í mann­skapnum um leið á bak og burt. Hann hóf ræðu sína á því að minna fólk á að hann væri alinn upp í fátækt í Brooklyn-hverfi, sem sonur pól­skra inn­flytj­enda, og hann væri ekki búinn að gleyma þeirri reynslu. Fjöldi inn­flytj­enda býr í Suður Bronx. ,,Ég er hér vegna þess að ég er að vinna í því að koma af stað bylt­ingu og þið öll, fimmtán þús­und sem eruð hér saman komin, eruð hjartað og sálin í þess­ari bylt­ingu. Við erum að segja saman „það er nóg komið““. Hélt Sanders áfram og upp­skar gíf­ur­leg fagn­að­ar­hróp frá stuðn­ings­mönnum sem nú voru búnir að troð­fylla garð­inn og stóð fjöldi manns fyrir utan garð­inn og hlýddi á úr fjar­lægð.

„Við viljum for­seta sem þjónar öllum, ekki bara þeim sem styðja þá. Við viljum hag­kerfi sem er ekki spillt. Við viljum dóms­kerfi sem er ekki brotið og við erum ákveðin í að í stað­inn fyrir að eyða millj­örðum í Íraks­stríð og önnur stríð sem við áttum aldrei að hefja, ætlum við að eyða fénu í að byggja upp sam­fé­lög eins og þetta hér í Suður Bronx.”

Stór hluti ræðu hans fjall­aði um mik­il­vægi þess að setja á lagg­irnar heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir alla og ókeypis háskóla­nám. Hann ræddi þá stað­reynd að í Banda­ríkj­unum byggju hlut­falls­lega flest börn í fátækt í hinum vest­ræna heimi og því þyrfti að breyta. Hann fjall­aði um hversu ósann­gjarnt það væri að rík­asta eitt pró­sentið ætti næstum því jafn­mikið og restin af heim­inum. Klappið hættir ekki. „Við ætlum að hækka lág­marks­launin í 15 doll­ara á tím­ann, við ætlum að hafa sömu laun fyrir konur og karla fyrir sömu vinnu. Við ætlum að byggja hús­næði sem fólk hefur efni á, við þurfum að byggja inn­viði lands­ins. Og við munum með þessu skapa 15 millj­ónir nýrra starfa,” sagði hann. Sanders eyddi einnig dágóðum tíma í að tala um milli­ríkja­samn­inga sem hafa að hans mati verið ástæða þess að fjöldi starfa hefur flust úr landi. „Við viljum hag­kerfi sem virkar fyrir alla, ekki bara þá sem eru á toppnum. Í dag fer 58% af öllum nýjum tekjum til rík­asta pró­sents­ins,“ segir hann með rámri og sann­fær­andi röddu. „Það er ekk­ert ríki í heim­inum sem fang­elsar jafn marga og við gerum í Banda­ríkj­unum, við þurfum að breyta þessu,“ hróp­aði hann og mér varð hugsað til barn­anna og ung­ling­anna sem sitja í fang­elsi, eða „Juvy“ eins og það er kallað, hinu megin við göt­una.

„Bernie, Bernie, Bernie“ hróp­aði hóp­ur­inn, ég er allt í einu farin að klappa í takt. „Leitt að þú getur ekki kosið,“ hvíslar sessu­nautur minn að mér og glottir.

„Við ætlum að sjá til þess að hver ein­asta kona í þessu landi fái að ráða yfir eigin lík­ama,“ kallar Sanders. Mér á vinstri hönd sé ég að Jean O'Meara Sanders, eig­in­kona Sanders stendur fimm metrum frá mér. Ég stekk til hennar, gríp tæki­færið og næ henni á hlaupum. Ég kynni mig og seg­ist vera blaða­maður frá Íslandi, hún brosir og segir að þau hjónin „elski Ísland.“ Mig er farið að gruna að hún hafi lesið leið­bein­ingar að hjarta Íslend­inga og þegar ég spyr hvort þau hafi farið þangað, þá jánkar hún því. „Ofboðs­lega fal­legt land,“ segir hún og brosir sínu breið­asta. „Gaman að hitta þig,“ segir hún að sið inn­fæddra, og gefur til kynna að nú sé verið að slíta sam­tal­inu. Hún snýr sér að hópi af fólki sem bíður, allir vilja selfí með henni svo hún er ekki til­tæk í frekara spjall. Ég fæ eina líka. Nokkrum dögum síðar áttu svo Panama-skjölin eftir að tröll­ríða allri umræðu á lands­vísu, hún hefði þá lík­lega talað um það, í stað feg­urðar lands­ins, en jæja.

Sanders er enn að tala: „Mik­il­feng­legt land er ekki dæmt eftir því hversu marga millj­arða­mær­inga það á, heldur hvernig það kemur fram við þá sem minnst mega sín,“ segir Sanders. Mér er farið að líða eins og Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir og Stein­grímur J. Sig­fús­son hafi runnið inn í eina mann­eskju og ég sé á eft­ir­hruns­mót­mælum. Fólkið á fund­inum er kannski ekki bál­reitt en það hefur klár­lega fengið sig fullsatt af venju­legum stjórn­mála­mönnum og biðin eftir rót­tækum breyt­ingum er ekki auð­veld. „Bernie, Bernie“ hrópar gamli mað­ur­inn og fyrr­ver­andi háskóla­kenn­ar­inn við hlið mér sem var nú var búinn að vera þarna í fimm tíma sam­fleytt. Það er orðið alveg dimmt en Sanders er rétt að byrja.

„Okkur dreymir um að vera eins og þið þarna á Íslandi og hinum Norð­ur­lönd­unum,” segir hann mér. Ég kinka kolli og ákveð að hryggja ekki gamla mann­inn með tali um skatta­skjólsskandal­inn eða banka­hrunið okkar. Þegar mér er litið yfir hóp­inn sé ég gjör­ó­líka sam­setn­ingu af fólki en við þekkjum á Norð­ur­lönd­unum. Þó hér sé yngra fólkið í meiri­hluta og hippa­klæddir stuðn­ings­menn séu áber­andi er hóp­ur­inn eins fjöl­breyttur og hugs­ast getur og end­ur­speglar hið flókna og fjöl­breytta sam­fé­lag Banda­ríkj­anna, sem er ríf­lega þús­und sinnum stærra en Ísland. Spurn­ingin í þessu for­vali snýst um hvort meiri sam­neysla sé raun­hæfur mögu­leiki í Banda­ríkj­unum, líkt og er á Norð­ur­lönd­unum.

„Við þurfum að end­ur­skoða svo­kallað stríð gegn eit­ur­lyfjum,“ heldur Sanders áfram og bendir á að mari­júana sé enn skráð sem eit­ur­lyf í Banda­ríkj­unum, í sama flokki og heróín. „Þrátt fyrir að svartir og hvítir íbúar í Banda­ríkj­unum neyti maríjúana í nokkuð jöfnum mæli eru svartir fjórum sinnum lík­legri að vera hand­teknir fyrir að eiga maríjúana en hvítir. Ef ungur maður er tek­inn með maríjúana fer hann á saka­skrá í Ameríku en ef for­stjóri Goldman Sacks eða aðrir yfir­menn Wall Street fyr­ir­tækja, sem ber ábyrgð á að hafa sett efna­hag lands­ins á haus­inn, þá fer hann ekki á saka­skrá heldur fær hann kaup­hækkun,” hrópar Sanders yfir hóp­inn sem púar til sam­þykkis. Því næst snéri hann sér að mót­fram­bjóðandum sem hefur þegið fé frá fjölda sterkra hags­muna­hópa.

„Við höfum fengið fjár­stuðn­ing frá sex milljón ein­stak­lingum, sem eru fleiri ein­staka gjafir en nokkur annar for­seta­fram­bjóð­andi hefur fengið í sögu Banda­ríkj­anna. Með­al­fram­lagið eru 27 doll­arar. Þetta er kosn­inga­her­ferð „by the people for the people,“” segir Sanders og vitnar þar í fræg­ustu ræðu Abraham Lincoln, Gett­ys­borg­ará­varpið. „Hillary hefur fengið um 15 millj­ónir frá fyr­ir­tækjum á Wall Street.” Hann hélt áfram og gagn­rýndi hana fyrir að hafa fengið hund­ruði þús­unda doll­ara fyrir að halda ræður fyrir fyr­ir­tæki eins og Goldman Sacks og heldur áfram og segir að nú væru margir bank­arnir enn stærri en fyrir hrun og það væri orðið löngu tíma­bært að brjóta þá upp og það væri það sem hann myndi gera yrði hann for­seti, ekki halda ræður fyrir þessi fyr­ir­tæki eins og hún gerir.

Hann minnti stuðn­ings­menn sína á að hann hefði kosið gegn stríð­inu ólíkt Clinton sem kaus með því. Hann hafi einnig kosið gegn NAFTA og fjölda milli­ríkja­samn­inga sem hefði kostað millj­ónir starfa og að Clinton hefði kosið með þeim öllum. Augljóst er að tónn­inn í ræð­unni var nokkuð beitt­ari gegn Clinton en oft­ast áður og hafa fjöl­miðlar velt því fyrir sér hér ytra hvort greina megi skil í bar­áttu Sanders. Sjálfur hafði Sanders sagt að hann myndi ekki standa í að tala um ókosti and­stæð­inga sinna heldur fók­usera á sína eigin kosti en í ræðu sinni í Suður Bronx dró hann skarpa línu á milli þeirra með því að gagn­rýna hana harka­lega í þeim málum sem þau hafa verið ósam­mála. Sanders snerti á öllum helstu mál­efnum, en ein­beitti sér tölu­vert að mál­efnum inn­flytj­enda og stöðu mála í Puertó Ríkó en margir inn­flytj­endur frá því lands­stjórn­ar­ríki búa í Bronx. Áður en hann gekk af svið­inu sagði hann „ef við vinnum í New York þá komumst við alla leið í Hvíta húsið.“ Sanders gaf sér stuttan tíma til að heilsa upp á stuðn­ings­menn og eftir að hafa heilsað upp á þá sem næstir voru svið­inu í um fimm mín­útur var hann á bak og burt í blikk­andi bíla­lest. Það frétt­ist svo á leið­inni út úr garð­inum að áður en hann steig á svið hafði hann stigið upp á kassa fyrir utan garð­inn og haldið stutta ræðu fyrir þá sem höfðu beðið kukku­stundum saman fyrir utan garð­inn eftir að hann fyllt­ist. Það duld­ist engum að það var glað­vær og von­góður hópur sem hélt út í kolniða myrkrið á leið sinni heim eftir við­burð­inn. Hvort Sanders tak­ist hins vegar að sann­færa fleiri en Hillary næstu vik­urnar sem eftir er af for­vals­tíma­bil­inu, á eftir að koma í ljós, en hvernig sem fer, þá er ljóst að það er stór hópur kjós­enda von­ast til þess að bylt­ingin hans Sanders hefj­ist í Hvíta hús­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár