Fordæma harðlega misnotkun stöndugra fyrirtækja á hlutabótaleiðinni

Stjórn BSRB hvetur fyr­ir­tæki sem hafa nýtt sér úrræðin án þess að hafa raun­veru­lega þörf fyrir þau til að end­ur­greiða Vinnu­mála­stofnun taf­ar­laust og leið­rétta laun starfs­manna, hafi þau verið skert á ein­hvern hátt vegna þess­ara aðgerða.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn BSRB for­dæmir harð­lega mis­notkun stöndugra fyr­ir­tækja á hluta­bóta­leið­inni og öðrum úrræðum stjórn­valda vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar BSRB um mis­notkun á úrræðum stjórn­valda.

„Úrræð­unum er ætlað að bjarga fyr­ir­tækjum sem róa líf­róður vegna far­ald­urs­ins. Þeim er ekki ætlað að koma fyr­ir­tækjum sem lenda ekki í telj­andi tekju­tapi vegna hans betur út úr tíma­bund­inni nið­ur­sveiflu. Fyr­ir­tæki sem hafa efni á að greiða eig­endum arð eða kaupa eigin bréf eru aug­ljós­lega ekki í þeirri stöðu að þurfa á þess­ari aðstoð að halda,“ segir í álykt­un­inni.

Stjórn BSRB hvetur fyr­ir­tæki sem hafa nýtt sér úrræðin án þess að hafa raun­veru­lega þörf fyrir þau til að end­ur­greiða Vinnu­mála­stofnun taf­ar­laust og leið­rétta laun starfs­manna, hafi þau verið skert á ein­hvern hátt vegna þess­ara aðgerða.

Þá bendir stjórnin á að Vinnu­mála­stofnun hafi heim­ildir til að krefj­ast end­ur­greiðslu hafi fyr­ir­tækin ekki haft raun­veru­lega þörf fyrir aðstoð úr sam­eig­in­legum sjóðum þjóð­ar­innar. Full ástæða sé fyrir stofn­un­ina að fara vel yfir öll til­vik þar sem grunur leikur á mis­notkun og krefj­ast fullrar end­ur­greiðslu.

„Gríð­ar­legir fjár­munir úr sam­eig­in­legum sjóðum þjóð­ar­innar hafa verið settir í þessar björg­un­ar­að­gerðir. Mis­notkun á þessum úrræðum jafn­gildir því að verið sé að taka fé frá öðrum sam­fé­lags­lega mik­il­vægum verk­efnum. Við það verður ekki unað.

Það er mik­ill skiln­ingur á því í sam­fé­lag­inu að verja þurfi störf með því að bjarga fyr­ir­tækjum sem verða mörg hver fyrir gríð­ar­legu tekju­tapi vegna heims­far­ald­urs­ins. Það er hins vegar engin þol­in­mæði í garð þeirra sem mis­nota úrræðin. Það er eitt af því sem neyt­endur ættu að hafa í huga þegar þeir velja við hvaða fyr­ir­tæki þeir ætla að eiga við­skipti í fram­tíð­inni,“ segir að lokum í álykt­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár