Uppheimar í gjaldþrot eftir frétt um svik við höfunda

Engar upp­lýs­ingar um bóka­sölu í tvö ár. Útgef­and­inn á ferða­lagi í suð­ur­höfum. Lögmaður höf­und­anna krefst for­gangs í bókala­ger. Lands­bank­inn hefur ekki gengið að veði sínu.

Útgefandinn
Útgef­and­inn Kristján Krist­jáns­son á skrif­stofu Uppheima þegar allt lék í lyndi.

Krafist hefur verið gjald­þrots bóka­út­gáf­unnar Uppheima sem hefur ekki gert upp við höf­unda sína þrátt fyrir sölu fjölda bóka. Útgáfan skuldar nokkrum höf­undum háar fjár­hæðir. Þeirra á meðal eru Ari Trausti Guð­munds­son og Ragnar Th. Sig­urðs­son ljós­mynd­ari sem hafa samið vin­sælar bækur á ensku sem ferða­menn hafa keypt dýrum dómum. Und­an­farin tvö ár hefur útgáfan ekki greitt höf­unda­laun þrátt fyrir mikla sölu. Þá hafa höf­undar ekki fengið skila­greinar eins og vera ber. Engin höf­unda­laun hafa verið greidd eða upp­lýst um upp­hæð þeirra. Hafa höf­undar útgáf­unnar þannig verið hlunn­farnir um millj­ónir króna. Sumir þeirra áttu auk­in­heldur inni höf­unda­laun frá fyrri árum. 

Kristján Krist­jáns­son, útgáfu­stjóri og eig­andi Uppheima, hefur verið á ferða­lagi á suð­ur­hveli jarðar frá því í sumar. Hann virð­ist vera sá eini sem veit hversu mikið umfang máls­ins er. Hvorki höf­undar útgáf­unnar né blaða­menn Stund­ar­innar hafa náð sam­bandi við hann vegna máls­ins. Kristján mun hafa tekið greiðslu­þrot útgáf­unnar mjög nærri sér. Hann hefur und­an­farið ritað greinar i Skessu­horn þar sem hann lýsir ferðum sínum á skút­unni Ayama við Ástralíu og víðar um suð­ur­höf með vina­fólki. Von er á honum til Íslands um miðjan des­em­ber.  

Höfundar fái forgang 

Við­skipta­banki Uppheima er Lands­bank­inn sem nú hefur kraf­ist gjald­þrots. Eftir að Stundin sagði frétt af svik­unum við höf­undana fund­uðu full­trúar 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár