Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað það á aukafundi í gær að Seðlabankinn myndi hefja bein kaup á skuldabréfum ríkissjóðs á eftirmarkaði.
Í yfirlýsingu vegna þessa segir að horfur séu á að útbreiðsla COVID-19, aðgerðir til að hefta sjúkdóminn og efnahagslegar afleiðingar hans muni kalla á verulega aukningu útgjalda ríkissjóðs.
[adspot]„Útlit er því fyrir að afkoma ríkissjóðs versni í ár og að hann þurfi að afla sér töluverðs lánsfjár með útgáfu ríkisbréfa. Að öðru óbreyttu dregur það lausafé úr umferð og þrýstir upp ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa sem truflar eðlilega miðlun peningastefnunnar á sama tíma og aðgerðir Seðlabanka Íslands miða að því að létta á fjármálalegum skilyrðum heimila og fyrirtækja.“
Peningastefnunefnd segir í yfirlýsingu sinni að hún muni gera það sem þarf til að lausara taumhald peningastefnunnar miðlist með eðlilegum hætti til heimila og fyrirtækja. „Nefndin ákvað því á aukafundi í gær að Seðlabankinn myndi hefja bein kaup á skuldabréfum ríkissjóðs á eftirmarkaði. Nánari upplýsingar verða birtar síðar.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir