Icelandair lýkur kjaraviðræðum við Flugfreyjufélag Íslands

„Ljóst er að sam­talið milli félag­anna tveggja fer ekki lengra,“ segir for­stjóri Icelandair.

Icelandair hefur lokið kjara­við­ræðum við Flug­freyju­fé­lag Íslands án árang­urs. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem send var Kaup­höll­inni í dag.

Í til­kynn­ingu Icelandair segir að sam­komu­lag við helstu hag­að­ila Icelandair Group, svo sem lán­veit­endur, flug­véla­leigu­sala, stjórn­völd, birgja og stétt­ar­fé­lög sé mik­il­vægur liður í fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins sem unnið hafi verið að á und­an­förnum vikum. Í kjöl­farið stefni félagið að hluta­fjár­út­boði sem sé for­senda þess að koma félag­inu í gegnum þær krefj­andi aðstæður sem nú ríkja sem og að styrkja rekstr­ar­grund­völl og sam­keppn­is­hæfni félags­ins til fram­tíðar.

[adspot]

[links]„Nýir kjara­samn­ingar við flug­menn og flug­virkja hafa nú þegar verið sam­þykktir en við­ræður Icelandair og Flug­freyju­fé­lags Íslands (FFÍ) hafa hins vegar ekki skilað árangri. Það er mat félags­ins að ekki verði lengra kom­ist í við­ræðum við Flug­freyju­fé­lag Íslands og hefur þeim því verið slitið. Icelandair sér sig jafn­framt knúið til að segja upp þeim flug­freyjum og flug­þjónum sem starfa hjá félag­inu. Flugmenn félags­ins munu frá og með mánu­deg­inum 20. júlí starfa tíma­bundið sem örygg­is­liðar um borð. Þjón­ustu­stig um borð í vélum Icelandair mun áfram taka mið af þeim ráð­stöf­unum sem gerðar hafa verið vegna COVID-19 og verður því í lág­marki. Félagið gerir ráð fyrir að hefja við­ræður við annan samn­ings­að­ila á hinum íslenska vinnu­mark­aði, um fram­tíð­ar­kjör öryggis- og þjón­ustu­liða hjá félag­inu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, segir í til­kynn­ing­unni að fyr­ir­tækið hafi lagt allt kapp á að ná samn­ingum við Flug­freyju­fé­lag Íslands og „lagt í þeim til­gangi fram fjöl­mörg til­boð sem öllum hefur verið hafnað. Með þeim kjara­samn­ingi sem felldur var af með­limum FFÍ gengum við eins langt og mögu­legt var til að koma til móts við samn­inga­nefnd FFÍ. Sá samn­ingur hefði tryggt ein bestu kjör fyrir störf flug­freyja og flug­þjóna sem þekkj­ast á alþjóða­mark­aði.

Tíminn er á þrotum og við neyð­umst til að leita ann­arra leiða. Þessi ákvörðun er mér afar þung­bær en nauð­syn­leg þar sem ljóst er að sam­talið milli félag­anna tveggja fer ekki lengra. Það hvílir mikil ábyrgð á okkur sem stjórnum félag­inu að tryggja rekstur þess til fram­tíðar og því miður sjáum við ekki annan kost í stöð­unni en að fara þessa leið. Það er sárt að vera í þess­ari stöðu gagn­vart afburða­sam­starfs­fólki sem hefur staðið vakt­ina með félag­inu til fjölda ára, svo eftir hefur verið tekið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár