Lýsa yfir miklum vonbrigðum með einarða og óbilgjarna afstöðu Icelandair

Flug­freyju­fé­lag Íslands segir í yfir­lýs­ingu að þrátt fyrir ríkan samn­ings­vilja og ítrekuð mót­til­boð hafi Icelandair haldið sig að mestu við upp­haf­legt til­boð sitt og sýnt lít­inn vilja til samn­inga.

Flug­freyju­fé­lag Íslands (FFÍ) lýsir yfir miklum von­brigðum með ein­arða og óbil­gjarna afstöðu Icelandair í þeim árang­urs­lausu samn­inga­við­ræðum sem staðið hafa yfir milli aðila síð­ustu vikur. Þrátt fyrir ríkan samn­ings­vilja FFÍ og ítrekuð mót­til­boð hefur Icelandair haldið sig að mestu við upp­haf­legt til­boð sitt og sýnt lít­inn vilja til samn­inga.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Flug­freyju­fé­lagi Íslands í dag.

Þar segir að Icelandair hafi mánu­dag­inn 18. maí lagt enn á ný fram til­boð sem sé keim­líkt því sem áður hafi verið hafnað með skýrri afstöðu félags­manna FFÍ. Samn­inga­nefnd FFÍ hafi lagt fram mót­til­boð í dag og geri sér fulla grein fyrir alvar­leika stöð­unnar sem nú er uppi.

Ítrekar samningsvilja

[links]„Á und­an­förnum vikum hefur samn­inga­nefnd FFÍ ítrekað lagt fram til­boð til að koma til móts við fyr­ir­tækið af fullri ein­lægni og með ein­dreg­inn samn­ings­vilja. Tilboðið sem var lagt fram í dag fól m.a. í sér aukið vinnu­fram­lag, eft­ir­gjöf á flug-, vakt- og hvíld­ar­tíma­á­kvæðum sem gefa fyr­ir­tæk­inu mögu­leika til veru­legrar hag­ræð­ingar, auk­ins sveigj­an­leika og vaxtar. Fyr­ir­tækið hefur hins vegar á engum tíma­punkti verið til­búið til við­ræðna á raun­hæfum grunni.

Nið­ur­staða við samn­inga­borð í kjara­deilu næst ekki með afar­kostum frá öðrum aðil­anum, heldur í sam­tali á jafn­ræð­is­grund­velli. FFÍ neitar að láta hræðslu­á­róður for­svars­manna Icelandair beygja félags­menn í duftið. FFÍ hefur ríkan stuðn­ing nor­rænu- og evr­ópsku flutn­inga­manna­sam­tak­anna og íslenska verka­lýðs­hreyf­ingin stendur þétt við bakið á FFÍ enda varðar sú staða sem nú er uppi allt launa­fólk á Íslandi.

FFÍ ítrekar enn á ný samn­ings­vilja sinn og óskar þess að slíkt hið sama hefði verið uppi á borðum hjá við­semj­endum, sem því miður fara fram með ein­hliða yfir­lýs­ingar og minni samn­ings­vilja en gefið er í skyn á opin­berum vett­vangi,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár