P (11,8%): Ungt fólk með lágar tekjur, litla menntun en fær sér kokteilsósu með pizzu

Kjarninn hefur fengið aðgang að miklu magni gagna úr síð­ustu könn­unum MMR sem sýna hver lík­leg­asta áferð með­al­kjós­anda hvers flokks er. Hér að neðan er umfjöllun um kjós­endur Pírata.

Píratar mæl­ast með 11,8 pró­sent fylgi sam­kvæmt með­al­tali síð­ustu tveggja kann­ana MMR, sem er meira en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum, en mun minna en þegar Píratar fóru með him­in­skautum í könn­unum árið 2016 og mæld­ust með á fjórða tug pró­sentu­stiga fylgi.

Píratar eru klár­lega flokkur unga fólks­ins og sá flokkur sem nýtur mest stuðn­ings allra hjá kjós­endum undir þrí­tugu, en 18 pró­sent lands­manna í þeim ald­urs­flokki styðja Pírata. Stuðn­ing­ur­inn er líka umtals­verður hjá fólki á aldr­inum 30 til 49 og þar mæl­ast Píratar næst stærsti flokkur lands­ins, á eftir Sjálf­stæð­is­flokknum. Þegar kemur að fólki yfir 50 ára þá dalar fylgið skarpt og hjá 68 ára og eldri mælist stuðn­ingur við Pírata ein­ungis þrjú pró­sent.

Stuðn­ing­ur­inn er líka bund­inn við ákveðin lands­svæði (höf­uð­borg­ar­svæðið, Suð­ur­landið og Vest­ur­land/Vest­firði) sem ætla má að sé þétt­býlið á suð­vest­ur­horni lands­ins að uppi­stöðu.

[adspot]Píratar eru líka vin­sælli hjá þeim sem eru ekki með háskóla­menntun og mæl­ast næst stærsti flokkur lands­ins hjá þeim kjós­endum sem eru með lægstu heim­il­is­tekj­urnar. Í fullu sam­ræmi við það þá er tekju­hæsti hóp­ur­inn lang ólík­leg­astur til að kjósa Pírata, en af þeim flokkum sem mæl­ast með mann inni á þingi er ein­ungis Vinstri græn með minna fylgi á meðal þeirra sem best hafa það fjár­hags­lega á Íslandi.

Píratar eru lík­legir til að vilja ferð­ast í sum­ar­frí­inu sínu, 61 pró­sent þeirra er á Instagram og 80 pró­sent er með áskrift að Netflix. Þeir hafa líka mestar áhyggjur allra af spill­ingu í fjár­málum og/eða stjórn­málum á Íslandi (71 pró­sent) og til að fá sér kok­teilsósu með pizzu, en tæpur þriðj­ungur Pírara er opinn fyrir þeim sam­runa.

Grein­ingin er hluti af stærri umfjöllun þar sem kjós­endur allra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi eru teknir fyrir. Hún byggir á ítar­legum gögnum frá MMR úr könn­unum sem fyr­ir­tækið hefur fram­kvæmt á fylgi flokka í ágúst og sept­em­ber 2019 auk fjölda ann­arra sér­tækra kann­ana um ýmis álita­mál sem MMR hefur fram­kvæmt á þessu ári. Hægt er að lesa heild­ar­um­fjöll­un­ina hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár