Vinna hafin við stofnun auðlindasjóðs

Bjarni Bene­dikts­son sagð­ist í vor vilja stofna orku­auð­linda­sjóð sem yrði vara­sjóður þjóð­ar­innar.

Vinna er hafin við und­ir­bún­ing stofn­unar orku­auð­linda­sjóðs í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Þetta stað­festir Teitur Björn Ein­ars­son, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, í sam­tali við Kjarnann. Bjarni boð­aði að hann vildi stofna slíkan sjóð á árs­fundi Lands­virkj­unar síð­ast­liðið vor og nú væri rétti tím­inn til þess.

„Ég tel tíma­bært að við Íslend­ingar stofnum sér­stakan orku­auð­linda­sjóð, full­veld­is­sjóð okkar Íslend­inga, sem í myndi renna allur beinn arður af nýt­ingu orku­auð­lind­anna. Með því að leggja inn í slíkan sjóð arð­greiðslur Lands­virkj­unar og ann­arra orku­fyr­ir­tækja rík­is­ins getum við hafið upp­bygg­ingu á vara­sjóði okkar Íslend­inga sem um leið væri hugs­aður sem stöð­ug­leika­sjóður til að jafna út efna­hags­sveiflur í hag­kerf­inu,“ sagði Bjarni á árs­fund­inum í maí síð­ast­liðnum.

Vinnan sem fer fram í fjár­mála­ráðu­neyt­inu nú er aðeins und­ir­bún­ings­vinna að sögn Teits. Verið er að safna gögnum og fleira slíkt, en ekki er unnið að gerð til­lögu um það hvernig sjóð­ur­inn á að starfa. Leitað verður eftir sam­starfi við aðra flokka um það, enda saðg­ist Bjarni í vor ætla að leita stuðn­ings hjá þing­inu fyrir stofnun sjóðs af þessu tagi, og leið­togar allra stjórn­ar­and­stöðu­flokka tóku þá vel í hug­mynd­ina með fyr­ir­vara um útfærslu.

Frétta­blaðið leit­aði þá við­bragða leið­toga innan stjórn­ar­and­stöð­unnar við þess­ari hug­mynd Bjarna. Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­flokks­for­maður Pírata, sagði þá að hug­myndin hljóm­aði áhuga­verð og að hún virt­ist byggja á norsku leið­inni, sem væri skyn­sam­legt.

„For­gangs­röðun á eyðslu pen­inga kemur oft of snemma, við þurfum fyrst að pæla í hvernig við öflum tekn­anna og þetta heyr­ist mér vera liður í því sem er jákvætt."

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði slíkan sjóð lengi hafa verið á stefnu­skrá Sam­fylk­ing­ar­innar. Flokk­ur­inn hafi talað fyrir því að sjóður yrði settur á fót þar sem auð­lindaarður væri sér­greindur og gjald­taka af auð­lindum sam­ræmd.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, gerði þann fyr­ir­vara við hug­mynd­ina að Bjarni hafi ekki kynnt útfærslu sína á sjóðnum. Hún sagð­ist hins vegar til­búin til sam­starfs enda hafi hug­myndin verið rædd í tíð síð­ustu rík­is­stjórnar. Hún myndi vilja horfa á málið þeim augum að allar auð­lindir væru hugs­aðar sem ein heild.

Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíðar, sagði að flokkur hans væri algjör­lega til­bú­inn til sam­starfs. „Þetta hljómar eins og góð tón­list í mínum eyrum og það er ánægju­efni að þró­unin sé í þessa átt."

Margoft áður hefur verið lagt til að ein­hvers konar auð­linda­sjóður verði stofn­aður hér á landi, eins og Kjarninn fór yfir í frétta­skýr­ingu þegar Bjarni kom fram með hug­mynd­ina í maí síð­ast­liðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár