Þverpólitísk samstaða virðist vera um stofnun sérstaks auðlindasjóðs

Leið­togar innan allra stjórn­ar­and­stöðu­flokka taka vel í hug­myndir um að stofn­aður verði sér­stakur auð­linda­sjóður. Þeir segja hug­mynd­ina hins vegar ekki nýja og styðja hana með fyr­ir­vara um að enn eigi eftir að kynna útfærslu á sjóðnum. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, sagði á árs­fundi Lands­virkj­unar í gær að honum hann vilji setja á stofn sér­stakan orku­auð­linda­sjóð hér á landi. Hluti af tekjum af orku­auð­lindum þjóð­ar­innar myndi renna í sjóð­inn þegar vel árar en hægt væri að nýta fjár­mun­ina í sjóðnum þegar illa áraði. Sjóð­ur­inn yrði þannig nokk­urs konar vara­sjóður.

Bjarni sagði rétta tím­ann til að stofna slíkan sjóð núna, og ætlar að leita stuðn­ings hjá þing­inu fyrir stofnun sjóðs af þessu tagi. Samstaða væri nauð­syn­leg.

Öll stjórnarandstaðan til, með fyrirvara um útfærslu


Í Frétta­blað­inu í dag er leitað við­bragða leið­toga innan stjórn­ar­and­stöð­unnar við þess­ari hug­mynd Bjarna. Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­flokks­for­maður Pírata, segir þar að hug­myndin hljómi áhuga­verð og að hún virð­ist byggja á norsku leið­inni, sem sé skyn­sam­legt. „For­gangs­röðun á eyðslu pen­inga kemur oft of snemma, við þurfum fyrst að pæla í hvernig við öflum tekn­anna og þetta heyr­ist mér vera liður í því sem er jákvætt."

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir slíkan sjóð lengi hafa verið á stefnu­skrá Sam­fylk­ing­ar­innar. Flokk­ur­inn hafi talað fyrir því að sjóður yrði settur á fót þar sem auð­lindaarður væri sér­greindur og gjald­taka af auð­lindum sam­ræmd.“

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, gerir þann fyr­ir­vara við hug­mynd­ina að Bjarni hafi ekki kynnt útfærslu sína á sjóðnum. Hún seg­ist hins vegar til­bú­intil sam­starfs enda hafi hug­myndin verið rædd í tíð síð­ustu rík­is­stjórnar. Hún myndi vilja horfa á málið þeim augum að allar auð­lindir væru hugs­aðar sem ein heild.

Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíðar, segir að flokkur hans væri algjör­lega til­bú­inn til sam­starfs. „Þetta hljómar eins og góð tón­list í mínum eyrum og það er ánægju­efni að þró­unin sé í þessa átt."

Hugmyndir um auðlindasjóð ekki nýjar


Þetta er þó langt frá því að vera í fyrsta skipti sem hug­myndin um auð­linda­sjóð kemur fram á Íslandi. Ýmsar hug­myndir þess efnis hafa komið upp und­an­farin ár, þótt aldrei hafi þeim verið hrint í fram­kvæmd.

Kjarninn fór ítar­lega yfir fyrri til­lögur síð­ustu ára og ára­tuga í frétta­skýr­ingu í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár