Vefur netöryggissveitarinnar niðri

Vefur CERT-IS liggur niðri eins og vefir Alþingis og Stjórn­ar­ráðs­ins vegna óskil­greindar bil­unar hjá Cloudflare. „Alvar­legur örygg­is­brestur,“ segir fyrr­ver­andi þing­maður um hýs­ingu íslenskra gagna erlendis.

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jóns­dóttir Fyrr­ver­andi þing­maður segir þá sem bera ábyrgð á örygg­is­málum þurfa að end­ur­skoða hýs­ingu gagna erlendis. Mynd: Pressphotos

Vefir Alþingis og Stjórn­ar­ráðs­ins liggja niðri vegna bil­unar hjá þjón­ust­unni Cloudflare og það gerir einnig vefur CERT-IS net­ör­ygg­is­sveit­ar­innar.

CERT-IS sinnir net­ör­ygg­is­málum Íslands og starf­semi net­ör­ygg­is­sveit­ar­innar var flutt í byrjun árs frá starf­stöð Fjar­skipta­stofu við Suð­ur­lands­braut í hús­næði utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við Aust­ur­höfn í Reykja­vík.

Vefur RÚV liggur einnig niðri, sem og sam­fé­lags­miðlar á borð við Lett­er­boxd og X, sem áður hét Twitter. Þá liggur Mannlíf.is niðri sem er hluti af Sam­ein­aða útgáfu­fé­lag­inu ásamt Heim­ild­inni.

Cloudflare hefur ekki gefið upp hver ástæða bil­un­ar­innar sé. Cloudflare virkar sem milli­liður milli vef­þjóna og not­enda en til­gangur þjón­ust­unnar er að auka áreið­an­leika, öryggi og virkni vef­síðna auk þess að verja þær fyrir tölvu­árásum.

Birgitta Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður, tjáir sig um málið á sam­fé­lags­miðl­inum Bluesky, sem ólíkt X, er enn uppi.

„Hvers vegna reiða íslenska …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár