Aukin samneysla skiptir Íslendinga meira máli en skattalækkanir

Samkvæmt nýrri könnun Gallup er næstum þrefalt meiri stuðn­ingur meðal Íslend­inga við aukin útgjöld til heil­brigð­is­mála en að lækka tekju­skatt ein­stak­linga.

Íslend­ingar vilja að Alþingi for­gangsraði fjár­munum til heil­brigð­is­mála í COVID-19 far­aldr­inum, að því er fram kemur í við­horfskönnun sem Gallup fram­kvæmdi fyrir þing­flokk Pírata í sept­em­ber og októ­ber.

Spurt var: „Hvernig vilt þú að Alþingi for­gangsraði fjár­munum til eft­ir­far­andi mála­flokka í fjár­lögum?“ Svar­endum bauðst því næst að raða mála­flokkum í mik­il­væg­is­röð og var þannig reiknuð út svokölluð for­gangs­ein­kunn.

Þá kemur fram að áhersla lands­manna auk­ist milli ára á að þing­heimur verji auknu fjár­magni í almanna­trygg­ingar og vel­ferð­ar­mál, lög­gæslu og örygg­is­mál. Yfir­gnæf­andi stuðn­ingur er við að hið opin­bera auki útgjöld fremur en að lækka skatta.

Í til­kynn­ingu frá þing­flokknum segir að hann láti fram­kvæma könn­un­ina árlega til þess að draga fram hvernig Íslend­ingar vilji að Alþingi for­gangsraði fjár­munum í fjár­lögum og um leið sjá hvernig áherslur lands­manna breyt­ist á milli ára.

Könnunin sýnir að Íslend­ingar vilji aukin fram­lög til heil­brigð­is­mála en alls töldu 43 pró­sent aðspurðra mik­il­væg­ast að Alþingi for­gangs­rað­aði í þágu þess mála­flokks og lækkar hlut­fallið um 3 pró­sentu­stig milli ára.

Þar á eftir töldu 11 pró­sent svar­enda að mik­il­væg­ast væri að lækka tekju­skatt ein­stak­linga og auka fram­lög til almanna­trygg­inga og vel­ferða­mála. Stuðn­ingur við síð­ar­nefnda mála­flokk­inn eykst nokkuð á milli ára eða alls um 3 pró­sentu­stig.

Næstum þrefalt meiri stuðningur við aukin útgjöld til heilbrigðismála en að lækka tekjuskatt

Heil­brigð­is­mál eru þannig efst í for­gangs­röðun lands­manna, því næst mennta- og fræðslu­mál og síðan almanna­trygg­ingar og vel­ferð­ar­mál. „Ljóst er af svör­unum að aukin sam­neysla skiptir Íslend­inga meira máli en skatta­lækk­anir,“ segir í til­kynn­ingu þing­flokks­ins.

Þannig sé næstum þrefalt meiri stuðn­ingur við aukin útgjöld til heil­brigð­is­mála en að lækka tekju­skatt ein­stak­linga og fimm­falt meiri þegar litið sé til lækkun virð­is­auka­skatts. Neðst í for­gangs­röðun Íslend­inga eru lækkun auð­linda­gjalda og aukin fram­lög til sjáv­ar­út­vegs­mála og kirkj­unnar.

Alls voru 4.748 ein­stak­lingar af öllu land­inu, 18 ára og eldri, handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup til að svara net­könnun sem fram­kvæmd var dag­ana 11. sept­em­ber til 4. októ­ber. Alls svör­uðu 2.468 manns og var þátt­töku­hlut­fallið því 52 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár