Einungis tólf ný smit greind í gær

Tólf ný COVID-19 smit greindust á Íslandi í gær og eru smitin nú orðin fleiri en 1.700 alls. Virk smit eru þó ein­ungis 804 tals­ins.

Stað­fest smit af kór­ónu­veirunni eru orðin 1.701 hér á landi. Í gær voru þau 1.689 og hefur þeim því aðeins fjölgað um tólf síð­asta sól­ar­hring­inn. Ekki hafa færri smit greinst á einum degi hér­lendis síðan 9. mars, þegar níu smit greindust.

Núna eru 2.861 ­manns í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 3.080. Alls hafa 15.751 lokið sótt­kví.

Í dag eru 804 ein­stak­lingar með virk COVID-19 smit en í gær var fjöld­inn 839. Alls hafa 889 manns náð bata eftir að hafa smit­ast af veirunni. Búið er að taka alls 35.253 sýni hér á landi.

Af þeim tólf smitum sem greindust í gær voru tíu greind á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala, en þar voru alls 219 sýni tekin til skoð­unar. Tveir af þeim 399 ein­stak­lingum sem fóru í sýna­töku hjá Íslenskri erfða­grein­ingu í gær reynd­ust smit­aðir.

Á sjúkra­hús­i liggja 37 sjúk­lingar vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins, þar af tíu á gjör­gæslu, sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.­is. Af þeim sem ­greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru átta lát­in.

Virk smit hafa ekki náð þeim fjölda sem forspá gerði ráð fyrir

Í nýj­ustu for­spá vís­inda­manna við Háskóla Íslands, Land­spít­ala og hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu, sem byggir á gögnum til og með 5. apríl, var gert ráð fyrir því að fjöldi ein­stak­linga með virkan sjúk­dóm næði hámarki í fyrstu viku apríl og yrði senni­lega um 1.400 manns, en gæti viku seinna náð 1.800 manns sam­kvæmt svart­sýnni spá.

Núna, 12. apríl, hefur virkum smitum farið fækk­andi sex daga í röð frá því að fjöldi þeirra náði hámarki þann 5. apríl. Þá voru 1.096 manns með virkan sjúk­dóm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár