Óánægjufylgið og baráttan gegn „kerfinu“

Hvernig fór Trump að því að vinna Hillary í kosn­ing­unum? Það er stóra spurn­ingin, sem margir hafa reynt að svara.

Donald J. Trump, sjö­tugur fjár­festir frá New York, vann sögu­legan kosn­inga­sigur á þriðju­dag­inn og verður næsti for­seti Banda­ríkj­anna. Hann er fyrsti for­set­inn sem aldrei hefur unnið hjá hinu opin­bera í Banda­ríkj­unum né þjónað land­inu í hernum. Þá er hann einnig elsti mað­ur­inn til að verða for­seti.

Kosn­inga­sigur Trump kom helstu fjöl­miðla­sam­steypum Banda­ríkj­anna í opna skjöldu, þó kann­anir hafi sýnt nokkuð jafna stöðu í helstu lyk­il­ríkj­unum alveg fram á síðsta dag, þá var mik­ill byr í segl­unum hjá Trump í síð­ustu vik­unni.

Margir hafa komið fram með skýr­ingar á því, hvað það var sem skóp sigur Trumps.

Ég rýndi í nokkur atriði, sem mér fannst athygl­is­verð.

1. Munurinn á við­horfum fólks, sem býr í borgum ann­ars vegar, og í dreif­býli hins vegar, hefur aldrei verið meiri en í kosn­ing­unum nú. Sér­stak­lega var þetta áber­andi í lyk­il­ríkj­unum, eins og Norður-Karolínu og Michigan. Þegar rýnt er í kortið hjá Norður-Karólínu, og hvernig staðan skipt­ist eftir sýslum, þá var Hillary með stuðn­ing vísan í borg­ar­kjörn­unum, en Trump átti dreif­býlið. Í Charlotte var Hillary með sterka stöðu og það sama átti við um Raleigh. Staðan var svipuð í mörgum ríkjum. Demókratar náðu til fólks í borgum, einkum mennt­aðs fólks, á meðan Trump náði mun betur til fólks með minni menntun utan borga. Munurinn hefur oft verið þessi í gegnum tíð­ina, en það mun­aði meiru nú en áður. Sem að lokum skipti miklu máli. Í Norður-Karólínu eru 15 kjör­menn og þeir eru 16 í Michigan.

2. Við skulum ekki gleyma Gary Johnson, þó fjöl­miðlar hafi reyndar flestir gert það hér vest­an­hafs. Stuðn­ing­ur­inn við hann skipti miklu máli þegar upp var staðið. Hann fékk víða á bil­inu 2 til 4 pró­sent, og í ljósi þess hversu mjótt var á munum milli Trump og Hillary þá skipti þessi stuðn­ingur miklu máli. Í við­tali eftir kosn­ing­arnar, hjá CNN, sagði einn starfs­manna fram­boðs Trump, að innan þeirra raða hafi það verið ljóst fljótt, að Johnson var að höfða fyrst og fremst til óánægðra Demókrata. Þess vegna ákvað Trump að vera ekki að gagn­rýna hann mikið, eða nefna hann sér­stak­lega. Hann leyfði honum frekar að reita fylgi frá Hillary. Í lyk­il­ríkj­unum, þar sem afar litlu mun­aði, meðal ann­ars í Michigan og Penn­syl­vaníu, þá skipti þetta sköpum. Johnson fékk 2,4 pró­sent atkvæða í Penn­syl­van­inu, Hillary 47,6 og Trump 48,8 pró­sent. Þetta lyk­il­ríki gefur 20 kjör­menn, og vó þungt í átt­ina að kjör­mönn­unum 270 sem þurfti að til að sigra.

3. Bréfið sem James Comey, for­stjóri alrík­is­lög­regl­unnar FBI og þekktur Repúblikani, sendi á Banda­ríkja­þing, og til­kynnti um að það væri búið að opna aftur rann­sókn á tölvu­póstum Hillary Clinton, mark­aði þátta­skil í skoð­ana­könn­unum á loka­metr­unum. Staðan hjá Hillary versn­aði, og þremur dögum fyrir kosn­ingar var staðan orðin slæmt í óvissu­ríkj­unum sér­stak­lega. Þrátt fyrir að FBI hafi sent frá sér yfir­lýs­ingu um að ekk­ert væri í póst­unum, sem kall­aði á ákæru eða álykt­anir um lög­brot af hálfu Hillary, skömmu fyrir kosn­ing­arnar, þá var skað­inn skeður. Trump og hans fólk, hömr­uðu á þessu á fjölda­fundum sínum á síð­ustu dög­unum. Í Michigan var þetta aðal­at­riðið, fyrir troð­fullri höll. „Hún er spillt, FBI veit það, við vitum það. Hún getur ekki orðið for­seti,“ sagði Trump. Svo fór að lokum að Trump hafði betur.

4. Líkt og í Brexit-kosn­ing­unum í Bret­landi, þar sem yngsta kyn­slóð kjós­enda kaus með því að Bret­landi yrði áfram í Evr­ópu­sam­band­inu, þá virð­ist nið­ur­staðan sýna mik­inn mein­ing­ar­mun milli kyn­slóða. Eldri kyn­slóð kjós­enda virt­ist horfa til Trump, á meðan afger­andi meiri­hluti fólks á aldr­inum 18 til 25 ára, kaus Hillary. Hillary hafði meiri­hluta hjá þeim ald­urs­hópi í öllum ríkjum nema fimm. Eliza Byard gerði þetta meðal ann­ars að umtals­efni á Twitter-síðu sinni að kosn­ingum loknum.

5. Enn og aftur sann­ast það í kosn­ingum í Banda­ríkj­unum hversu mik­ill munur er á ríkj­unum inn­byrðis, þegar kemur að efna­hag, menntun og við­horfum. Hillary hafði afger­andi stuðn­ing á allri vest­ur­strönd­inni, Kali­forníu, Oregon og Washington, og það sama má segja með flest aust­ur­strand­ar­ríkin. Í vest­ur­strand­ar­ríkj­unum búa um 50 millj­ónir manna, og um 40 í aust­ur­strand­ar­ríkj­unum, til sæmi­legrar ein­föld­unar. Í þessum ríkjum hefur efna­hagur verið að styrkj­ast og nýsköp­un­ar­starf tengt bestu háskólum lands­ins er áhrifa­mest á þessum slóðum. Demókratar hafa afger­andi stuðn­ing í þessum ríkjum, en hann er mun minni í mið­ríkj­unum, og hefur farið minnk­andi á und­an­förnum árum. Þessi mikli efna­hags­legi munur gæti skýrt hvers vegna óánægju­fylgið fór frekar til Trump en Hillary. Trump tal­aði gegn „kerf­inu“ og virt­ist ná eyrum þeirra sem sáu Hillary fyrir sér sem full­trúa þess, vegna reynslu hennar og fyrri starfa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár