Félag í eigu Samherja gert að greiða starfsmönnum Heinaste sáttargreiðslu

Félagið ArcticNam, sem Samherji á 49 pró­senta eign­ar­hlut í, hefur verið gert að greiða 23 starfs­mönnum tog­ar­ans Heinaste sátt­ar­greiðslu í þessum mán­uði vegna upp­sagnar án starfs­loka­greiðslna.

Togarinn Heinaste, sem var kyrrsettur í lok árs 2019.
Togarinn Heinaste, sem var kyrr­settur í lok árs 2019. Mynd: Skjáskot

Félags­dómur í Namibíu hefur úrskurðað að ArcticNam, sem er félag í helm­ing­seigu Samherja, skuli greiða 23 starfs­mönnum tog­ar­ans Heinaste 15,7 millj­ónir króna í sátt­ar­greiðslu. Stjórn­ar­for­maður félags­ins seg­ist vilja greiða upp­hæð­ina, en bíður eftir sam­þykki frá Samherja. Þetta kemur fram í frétt frá namibíska frétta­miðl­inum New Era.

Samkvæmt frétt­inni er greiðslan reiknuð sem árs­laun þess­ara 23 manna, sem fengu engan upp­sagn­ar­frest eða starfs­loka­greiðslur þegar þeir misstu vinn­una sína árið 2018 og leigu­starfs­menn voru ráðnir til starfa í stað­inn. Tíu mán­uðum seinna var tog­ar­inn svo kyrr­settur.

Kjarninn hefur áður fjallað um kyrr­setn­ing­una, en hún virt­ist fyrst vera vegna ólög­mætra veiða á hrygn­ing­ar­svæði við strendur Namibíu sem átti að vera lokað fyrir veiðum. Í febr­úar í fyrra var tog­ar­inn hins vegar kyrr­settur aftur á grund­velli laga um skipu­lagða glæp­a­starf­semi.

Samkvæmt úrskurði félags­dóms í namibísku hafn­ar­borg­inni Walvis Bay sem birtur var þann 24. júní, ætti ArcticNam, eig­andi Heinaste, að borga starfs­mönn­unum sam­tals 1,8 milljón namibískra dala fyrir lok þessa mán­aðar. Það jafn­gildir um 15,7 millj­ónum íslenskra króna.

Segir Samherja hafa rúið félagið að skinni

Stjórn­ar­for­maður ArcticNam, Virgilio De Sousa, sagð­ist styðja starfs­menn tog­ar­ans að fullu í við­tali við New Era. Hins vegar sagði hann stjórn fyr­ir­tæk­is­ins vera að reyna að draga Samherja til ábyrgðar um fjár­mál félags­ins, sem sé óvirkt þessa stund­ina, Samkvæmt honum reyndu Sam­herj­a­menn að leysa upp félagið árið 2019, en aðrir hlut­hafar voru á móti því.

De Sousa bætti einnig Samherja hafa rúið fyr­ir­tækið inn að skinni og að það ætti engar eignir þessa stund­ina sem hægt væri að selja. „En við munum hitt­ast á hlut­hafa­fundi í vik­unni til að sjá hvort við getum leyst málið, þar sem stjórnin er ekki ábyrg gagn­vart þessum greiðslum,” sagði hann.

Munu leita til hæstaréttar ef félagið greiðir ekki

Tals­maður starfs­mann­anna á Heinaste, Philip Munenguni, sagði hins vegar að þeir myndu leita réttar síns hjá hæsta­rétti Namibíu ef úrskurði félags­dóms­ins yrði ekki mætt í lok mán­að­ar­ins: „Starfs­menn­irnir hafa þjáðst nógu lengi og ég mun sjá til þess að þeir fái allt það sem þeir eiga skilið sam­kvæmt úrskurð­inum“.

Breytt kl: 13:14. Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar kom fram að upp­sögn starfs­mann­anna væri í kjöl­far kyrr­setn­ingar tog­ar­ans árið 2019. Hið rétta er að starfs­mönnum Heinaste var sagt upp árið 2018 og leigu­starfs­menn voru ráðnir í stað­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár