5.500 óafgreiddar umsóknir um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun

Mjög mikil fjölgun umsókna um atvinnu­leys­is­bætur auk nýrra verk­efna sem Vinnu­mála­stofnun fékk í kjöl­far far­ald­urs­ins hefur orðið þess vald­andi að bið­tími er orð­inn lengri en æski­legt væri. Um fimmt­ungur umsókn­anna er yfir tveggja mán­aða gam­all.

Óaf­greiddar umsóknir um atvinnu­leys­is­bætur hjá Vinnu­mála­stofnun eru 5.500 tals­ins og þar af eru 19 pró­sent eldri en átta vikna, eða 1.045 umsóknir. Áætlun stofn­un­ar­innar miðar að því að í byrjun sept­em­ber verði allar umsóknir afgreiddar innan átta vikna. Þetta kemur fram í svari Vinnu­mála­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Vinnsla atvinnu­leys­is­bóta fer í gegnum þrjá fasa:

  1. Forvinna umsóknar þar sem kannað er hvort umsóknin upp­fyllir skil­yrði, hvort öll nauð­syn­leg gögn séu til staðar og ef ein­hver gögn vantar er kallað eftir þeim.
  2. Ákvörðun um bóta­rétt á grund­velli umsóknar og þeirra upp­lýs­inga og gagna sem liggja fyrir.
  3. Útgreiðsla bóta.

Í svar­inu segir að á milli ákvörð­unar um bóta­rétt og útgreiðslu bóta verði að vera skýr aðskiln­aður sem þýðir að sömu starfs­menn mega ekki koma að báðum þessum þáttum við vinnslu umsókna.

[adspot]

Biðtíminn lengri en æskilegt væri

Þá kemur fram að Vinnu­mála­stofnun sé með­vituð um að bið­tími eftir bótum sé lengri en æski­legt er því bak við hverja umsókn sé ein­stak­lingur og fjöl­skyldur sem búa við óvissu­á­stand í kjöl­far atvinnu­missis.

„Mjög mikil aukn­ing í umsóknum um atvinnu­leys­is­bætur auk nýrra verk­efna sem stofn­unin fékk í kjöl­far COVID-19 far­ald­urs­ins hefur orðið þess vald­andi að bið­tími er orð­inn lengri en æski­legt væri,“ segir í svar­inu.

Stofn­unin hafi bætt við sig fólki, end­ur­skipu­lagt ferla og for­gangs­röðun til að mæta þessu en það taki tíma áður en þær aðgerðir skili sér að fullu.

Nú stendur yfir smíði á nýju tölvu­kerfi fyrir Vinnu­mála­stofnun sem stefnt er að að verði tekið í notkun í byrjun næsta árs. Það standa vonir til að við inn­leið­ingu þess muni ferlið við afgreiðslu atvinnu­leys­is­um­sókna stytt­ast til muna, að því er fram kemur í svari stofn­un­ar­innar.

Atvinnuleysi lækkar milli mánaða – en á þó hugsanlega eftir að aukast aftur

Atvinnu­leysi í júní mæld­ist 9,5 pró­sent og lækkar umtals­vert milli mán­aða en það var 13 pró­sent í maí. Almennt atvinnu­leysi var 7,5 pró­sent í júní sem er mjög svipað og mán­uð­ina tvo á undan en atvinnu­leysi tengt minnk­uðu starfs­hlut­falli er 2,1 pró­sent og hefur minnkað hratt. Þetta kemur fram í mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar um vinnu­mark­að­inn á Íslandi.

Í skýrsl­unni segir að atvinnu­leysi tengt minnk­uðu starfs­hlut­falli hafi lækkað hraðar heldur en gert var ráð fyr­ir. Til sam­an­burðar mæld­ist atvinnu­leysi mest í apr­íl, 17,8 pró­sent, en af því var atvinnu­leysi vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls 10,3 pró­sent. Í maí mæld­ist atvinnu­leysi 13 pró­sent og af því var atvinnu­leysi vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls 5,6 pró­sent.

Í Hagsjá Lands­bank­ans sem birt­ist í dag segir að almennt atvinnu­leysi muni trú­lega aukast nokkuð fram í sept­em­ber enda mikið af hóp­upp­sögnum að koma til fram­kvæmda síð­sum­ars, einkum í ágúst. Líklegt sé að almennt atvinnu­leysi fari yfir 8 pró­sent í ágúst, en atvinnu­leysi tengt hluta­bóta­leið­inni verði þá hverf­andi, enda muni sú leið renna sitt skeið á enda í lok ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár