Píratar saka ríkisstjórnina um „mótsagnakennt stefnuleysi“

Þing­flokkur Pírata hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem við­brögð rík­is­stjórn­ar­innar við efna­hags­legum afleið­ingum heims­far­ald­urs­ins eru harð­lega gagn­rýnd og sögð jafn­gilda við­bragðs­leysi.

Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata.
Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Viðbrögð rík­is­stjórn­ar­innar við heims­far­aldri kór­ónu­veiru ein­kenn­ast af mót­sagna­kenndu stefnu­leysi og skorti á fram­sýni,“ segir þing­flokkur Pírata í yfir­lýs­ingu, sem send var á fjöl­miðla síð­degis. Þing­flokk­ur­inn seg­ist aug­lýsa eftir „póli­tísku hug­rekki rík­is­stjórn­ar­innar“ og er afar gagn­rýn­inn á bæði þær aðgerðir sem kynntar voru í dag og sam­ráðs­leysi rík­is­stjórn­ar­innar við minni­hlut­ann á þingi og „aðra mik­il­væga full­trúa almenn­ings.“

„Hagkerfi heims­ins hefur stöðvast og alger óvissa ríkir um hvenær það fer í gang aftur og hvað þarf til, svo að það ger­ist. Viðbúið er að gjör­breytt heims­mynd og gjör­breytt hag­kerfi taki við þegar heilsu­far­sógnin hverfur á braut. Viðbrögð stjórn­valda verða því að vera fram­sækin, frum­leg og stór­tæk­ari en nokkru sinni fyrr. Slík við­brögð verða ekki til í tóma­rúmi eða ein­angrun ─ og lítið mun gef­ast með því að hunsa fjöl­breytt hug­vitið í sam­fé­lag­inu,“ segja Píratar og bæta við að í árferði sem þessu sé óásætt­an­legt að rík­is­stjórn Íslands leggi á ráðin í lok­uðum her­bergjum án sam­ráðs.

„Augljóst er að hug­myndir og við­brögð sem samið er um í litlum eins­leitum hópi ráða­manna skortir fjöl­breytni, gagn­rýna hugsun og breiða skírskotun,“ segja Píratar.

Segja forsendur ákvarðanatöku skorta

Þing­flokkur Píratar segir að hvorki almenn­ingur né stjórn­ar­and­staðan hafi nokkurn aðgang að þeim upp­lýs­ingum og gögnum sem rík­is­stjórnin byggir við­brögð sín á.

„Sviðs­mynda­grein­ingar liggja ekki fyrir, for­sendur rík­is­stjórn­ar­innar liggja ekki fyrir og póli­tísk fram­tíð­ar­sýn rík­is­stjórn­ar­innar er full­kom­lega óljós. Gagnsæið er ekk­ert,“ segir í yfir­lýs­ingu þing­flokks­ins.

Þing­flokk­ur­inn segir rík­is­stjórn­ina hafa „sögu­legt tæki­færi til þess að koma á sjálf­bær­ari, lýð­ræð­isvædd­ari og ábyrg­ari vinnu­mark­aði“ og til þess að „stuðla að því að næsta upp­sveifla verði byggð á sjálf­bærni og nátt­úru­vernd,“ en láti þessi tæki­færi „því miður“ renna sér úr greipum.

„Rík­is­stjórnin hefur engin svör við því, hvernig sam­fé­lag við viljum byggja þegar þessi kreppa er afstaðin. Hún virð­ist stað­ráðin í að reyna að halda lífi í hag­kerfi sem er að veru­legu leyti horfið, með aðgerðum sem duga skammt,“ segir í yfir­lýs­ingu þing­flokks Pírata, en þar er einnig miklum von­brigðum lýst yfir með þær aðgerðir sem rík­is­stjórnin kynnti í dag.

Gagnrýna harðlega að fyrirtækjum sé auðveldað að segja upp fólki

„Hluta­bóta­leiðin, sem ætlað var að halda ráðn­ing­ar­sam­bandi milli laun­þega og atvinnu­rek­enda sætir nú þeim mót­sagna­kenndu breyt­ingum að auð­velda á fyr­ir­tækjum að slíta ráðn­ing­ar­sam­band­inu með mót­fram­lagi rík­is­ins við greiðslu upp­sagn­ar­frests. Þing­flokkur Pírata gagn­rýnir það harð­lega að til standi að auð­velda fyr­ir­tækjum hóp­upp­sagnir,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Piratar segja að víðs­vegar um heim­inn hafi rík­is­stjórnir sett „sjálf­sögð og eðli­leg skil­yrði“ um sam­fé­lags­lega ábyrgð fyrir rík­is­stuðn­ingi til fyr­ir­tækja.

„En á Íslandi fá stöndug fyr­ir­tæki sem hafa skilað eig­endum sínum millj­örðum í arð und­an­farin ár aðgang að fjár­munum rík­is­ins án telj­andi skuld­bind­inga af þeirra hálfu. Samtímis eru þús­undir smærri fyr­ir­tækja skilin eftir með óljósar fram­tíð­ar­horfur. Þing­flokkur Pírata leggur áherslu á að fyr­ir­tæki sem geyma fjár­muni í skatta­skjólum fái ekki aðgang að fjár­munum hins opin­bera. Sömu­leiðis væri eðli­legt að skil­yrða alla rík­is­að­stoð, þar á meðal hluta­bóta­leið­ina, við að ekki verði greiddur út arður eða bónusar í til­greindan tíma eftir að fjár­hags­að­stoð rík­is­ins lýkur,“ segir þing­flokk­ur­inn.

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar hingað til jafngildi viðbragðsleysi

Píratar segja heim­ilin enn engin svör fá um fram­tíð­ar­hag sinn og öryggi og bæta við að ef það breyt­ist ekki muni eft­ir­spurn eftir vörum og þjón­ustu í land­inu hverfa.

„Heimili lands­ins horfa nú fram á tekju­fall og óvissa fram­tíð en ekk­ert bólar á beinum stuðn­ingi til almenn­ings. Rúmlega 38.000 voru á atvinnu­leys­is­skrá í mars­mán­uði en ekki stendur til að hækka bætur. Fólkið í land­inu myndar eft­ir­spurn eftir vörum og þjón­ustu og sú eft­ir­spurn mun hverfa verði ekk­ert gert til þess að tryggja fjár­hags­legt öryggi þeirra,“ segir í yfir­lýs­ingu þing­flokks­ins, þar sem borg­ara­laun eru nefnd sem leið til þess að koma til móts við almenn­ing.

„Flest fólk vill vinna, vera hluti af og þjóna sínu sam­fé­lagi. Borg­ara­laun munu ekki koma í veg fyrir það heldur þvert á móti styðja við og styrkja getu fólks til þátt­töku og þar af leið­andi getu hag­kerf­is­ins til að keyra sig aftur í gang,“ segir þing­flokk­ur­inn.

„Samkvæmt reikni­lík­ani Við­skipta­ráðs er það góð ráð­stöfun að auka veru­lega opin­berar fjár­fest­ingar á þessu ári; það muni efla hag­vöxt til næstu ára auk þess að minnka höggið nú í ár. Píratar hafa lagt áherslu á fjár­fest­ingu í fólki, á stór­aukið fé til nýsköp­unar, rann­sókna og þró­unar, og grænan sam­fé­lags­sátt­mála með jafn­rétti og sjálf­bærni að leið­ar­ljósi til fram­tíðar.

Til eru ótal leiðir til að bregð­ast við. En aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar hingað til hafa jafn­gilt við­bragðs­leysi. Þing­flokkur Pírata hvetur rík­is­stjórn­ina til þess að sýna hug­rekki, hugsa stórt og nálg­ast vanda­málið af opnum hug, í sam­ráði við þjóð­ina. Henni ber lýð­ræð­is­leg skylda til þess,“ segir þing­flokkur Pírata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár