Rörin verða tekin af G-mjólkinni

Mjólk­ur­sam­salan hyggst taka rörin af 250 milli­lítra G-mjólk­ur­fernum sínum. Það verður gert núna í mars og mega neyt­endur vænta þess að sjá röra­lausar fernur koma í versl­anir upp úr næsta mán­uði.

Mjólk­ur­sam­salan hyggst taka rörin af 250 milli­lítra G-mjólk­ur­fernum sínum. Það verður gert núna í mars og mega neyt­endur vænta þess að sjá röra­lausar fernur koma í versl­anir upp úr næsta mán­uði. Þetta kemur fram í svari MS við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Í frétt Kjarnans frá því í jan­úar 2016 kom fram að árið áður seldi MS rúm­lega 1,6 milljón stykki af 250 milli­lítra G-mjólk­ur­fernum með röri, bæði venju­lega og létt G-mjólk.

Ólíkt flestum öðrum mjólk­ur­af­urðum sem seldar eru í litlum umbúð­um, kemur G-mjólkin með röri á hlið­inni eins og hún sé ætluð til drykkj­ar, eins og ávaxta­safi eða Kókó­mjólk. En lang­flestir nota mjólk­ina hins vegar út í kaffi.

Í svari MS á sínum tíma kom fram að pökk­un­ar­vél G-mjólk­ur­innar sé afar óhentug fyrir vör­una, en ný vél hlaupi á millj­ónum.

Nú segir MS að á þessum tveimur árum sem liðin eru síðan Kjarninn spurði síð­ast fyrir um málið hafi verið reynt að breyta umbúð­unum á G-mjólk­inni þegar settur var flipi á fern­una og rörið tekið. Það fékk dræmar und­ir­tektir neyt­enda á þeim tíma, sem var meðal ástæðna þess að farið var aftur í núver­andi umbúðir. Hins vegar fram­kvæmdi MS neyt­enda­könnun í lok síð­asta árs þar sem fram kom að meiri­hluti neyt­enda myndi ekki sakna rörs­ins. Í fram­haldi var tekin ákvörðun um að taka rörin aftur af fern­unum núna í mars.

Kjarninn spurði MS hvernig umbúðir G-mjólk­ur­innar falli að umhverf­is­stefnu fyr­ir­tæk­is­ins, þar sem fram kemur að MS vilji lág­marka alla aðfanga­notkun í starf­sem­inni og leit­ist við að end­ur­spegla umhverf­is­væn sjón­ar­mið í öllum skrefum virð­is­keðj­unnar. Fyr­ir­tækið leggi þar með ríka áherslu á bestu umgengni til verndar umhverf­inu og nátt­úru lands­ins.

MS seg­ist á síð­asta ári hafa skipt úr fernum sínum þannig að kolefn­is­fót­spor sé 66 pró­sent minna en áður þar sem efnin í þeim séu nú úr end­ur­nýj­an­legum upp­runa.

MS fram­leiðir í heild­ina um 25 milljón fernur árlega sem inni­halda ferskvörur sem verða nú með 66 pró­sentum minna kolefn­is­spor og var sú aðgerð hluti af fram­fylgd umhverf­is­stefnu fyr­ir­tæk­is­ins. „Á þessu ári er meðal ann­ars á áætlun okkar að klára að flytja síð­ustu af okkar vörum í umhverf­is­vænni fernur eftir því sem umbúðala­ger klár­ast og færa drykk­ar­vörur úr plast­um­búðum í fernur,“ segir í svari MS.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár