Meira en ein og hálf milljón G-mjólkurröra sem fæstir nota

Fram­kvæmda­stjóri mark­aðs- og sölu­sviðs MS segir 250 milli­lítra umbúðir G-mjólk­ur­innar afar óhent­uga fyrir neyt­endur. Meira en ein og hálf milljón ferna voru seldar í fyrra, allar með rörum sem fæstir nota. Ný pökk­un­ar­vél kostar nokkur hund­ruð millj­ónir.

MS seldi á síð­asta ári rúm­lega 1,6 milljón stykki af 250 milli­lítra G-mjólk­ur­fernum með röri. Um er að ræða bæði venju­lega G-mjólk og létta.

Ólíkt flestum öðrum mjólk­ur­af­urðum sem seldar eru í litlum umbúðum, kemur G-mjólkin með röri á hlið­inni eins og hún sé ætluð til drykkjar, eins og ávaxta­safi eða Kókó­mjólk. En lang­flestir nota mjólk­ina hins vegar út í kaffi.

Jón Axel Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri sölu- og mark­aðs­sviðs MS, segir pökk­un­ar­vél G-mjólk­ur­innar afar óhent­uga fyrir vör­una.

„Þetta er alveg skelfi­leg vél til að nota í þessa vöru. Það er ömur­legt fyrir okkar neyt­endur að hún sé að fram­leiða þetta svona,” segir hann. „En það hefur ekki verið fjár­hags­legur grund­völlur fyrir því að kaupa nýja bara í þessa fram­leiðslu, þar sem kostn­aður við svona pökk­un­ar­vélar hleypur á hund­ruðum millj­óna. Ódýrasta vélin kostar um 100 millj­ónir.”

Að sögn Jóns Axels er það sem flækir málið enn frekar varð­andi end­ur­nýjun á pökk­un­ar­vél er að G-mjólk er með mun lengra geymslu­þol en aðrar mjólk­ur­vörur, eða sex mán­uði. Hún er háhita­með­höndluð sem gerir allan búnað tengda henni dýr­ari.

„Það er til fersk mjólk í 250 milli­lítra fernum með tappa, sem er líka hægt að nota í kaffi,” segir Jón Axel. „En flestir kjósa þessa því hún þarf ekki að geym­ast í kæli­skáp.”

Sumir kann­ast við að rekast á ferða­menn á förnum vegi með G-mjólk­ur­fernu í hönd sem þau drekka af bestu lyst úr rör­inu sem fylgir með. Jón Axel segir það vissu­lega tíðkast víða erlendis að G-mjólk sé drukkin, en hér á landi er hún nær ein­vörð­ungu notuð í kaffi. Og rörið oftar en ekki notað til að sprauta mjólk­inni í boll­ann, með mis­jöfnum afleið­ingum. Þá getur líka reynst snúið að opna fern­una svo vel fari.

„Það er vesen sem allir kann­ast við,” segir Jón Axel.

Kaffi­rjóm­inn frá MS sem og rjóm­inn í 250 milli­lítra umbúðum koma ekki í fernum með rörum. Jón Axel segir þetta vissu­lega vert skoð­unar.

„Við höfum bara aldrei fengið svona ábend­ingu áður,” segir hann. „Og munum taka hana til greina.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár