Festi frestar því að greiða arð

Smá­söluris­inn sem rekur meðal ann­ars N1 og Krónuna hefur ákveðið að fresta greiðslu á 657 millj­óna króna arð­greiðslu.

Eggert Þór Kristófersson er forstjóri Festi.
Eggert Þór Krist­ó­fers­son er for­stjóri Festi. Mynd: Aðsend

Stjórn Festi, sem rekur N1, Krón­una, Elko og Bakk­ann vöru­hót­el, hefur ákveðið að fresta 657 milljón króna arð­greiðslu sem til stóð að greiða hlut­höfum félags­ins vegna frammi­stöðu síð­asta árs. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu til Kaup­hallar Íslands.

Festi hagn­að­ist um 2,8 millj­arða króna á árinu 2019. Um síð­ustu ára­mót var eigið fé sam­stæð­unn­ar 28,7 millj­arðar króna og eig­in­fjár­hlut­fallið 35,3 pró­sent.

Á aðal­fundi Festi sem fór fram mánu­dag­inn 23. mars 2020 hafði verið tekin ákvörðun um greiðslu arðs vegna rekstr­ar­árs­ins 2019. Samhliða var bókað að greiða ætti út arð­inn 20. apríl 2020, eða í dag.

Stjórn Festis var hins vegar veitt heim­ild til að meta og taka ákvörðun um hvort rétt sé að fresta greiðslu arðs­ins eða fella hana niður, með hlið­sjón af sjóðs­stöðu og aðstæðum í rekstri sam­stæðu félags­ins, til allt að 23. sept­em­ber 2020.

[adspot]Í til­kynn­ing­unni sem send var út í dag segir að í sam­ræmi við ákvörðun aðal­fundar hagi stjórn Festi tekið ákvörðun um að fresta ákvörðun um greiðslu arðs vegna rekstr­ar­árs­ins 2019.“

Stærstu eig­endur Festi eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Arion banki líka hættur við arðgreiðslur

Annað skráð félag, Arion banki, greindi frá því fyrir helgi að hald­inn yrði fram­halds­að­al­fundur hjá bank­anum í maí til að taka ákvörðun um að hætta við að greiðslu arðs vegna síð­asta árs.

Arion banki hagn­að­ist um 1,1 millj­­arð króna í fyrra og arð­­semi eigin fjár bank­ans var 0,6 pró­­sent. Til stóð að greiða tíu millj­­arða króna arð­greiðslu til hlut­hafa vegna síð­­asta árs. Það stóð því til að greiða út nífaldan hagnað í arð. Þau áform eru í takti við yfir­­lýsta stefnu bank­ans, sem er að öllu leyti í einka­eigu og skráður á hluta­bréfa­­mark­að, að greiða út tugi millj­­arða króna eigin fé hans til eig­enda hans.

Frá því að upp­­haf­­leg ákvörðun um þá end­­ur­greiðslu var tekin hefur staðan í efna­hags­líf­inu gjör­breyst og mikið hafði verið þrýst á Arion banka að falla frá arð­greið­s­unni, sér­stak­lega eftir að greint var frá því að sveiflu­­jöfn­un­­ar­auk­i, sem á að auð­velda banka­­­kerf­inu að styðja við heim­il­i og fyr­ir­tæki með því að skapa svig­­­rúm til nýrra útlána sem nemur að öðru óbreyttu allt að 350 millj­­­örðum króna, hefði verið afnumin 18. mars síð­­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár