Fréttablaðið krafið um 20 milljónir í miskabætur og afsökunarbeiðni

Frétta­blaðið hefur verið krafið um 20 millj­ónir króna í miska­bætur vegna fréttar sem birt­ist á for­síðu blaðs­ins í gær­morgun. Einnig er verið að íhuga mála­ferli gegn þeim sem deildu myndum af tveimur mönnum sem kærðir hafa verið fyrir nauðgun, nafn­greindu þá eða köll­uðu þá nauð­gara á net­inu.

Í frétt Frétta­blaðs­ins var sagt frá rann­sókn lög­reglu á tveimur aðskildum kyn­ferð­is­brota­málum vegna meintra árása sem átt hefðu sér stað í fjöl­býl­is­húsi í Hlíða­hverfi í Reykja­vík í októ­ber. Tvær konur hafa kært tvo karl­menn fyrir kyn­ferð­is­brot í mál­inu og í frétt Frétta­blaðs­ins sagði að „ Samkvæmt heim­ildum blaðs­ins voru árás­irnar hrotta­legar og íbúðin búin tækjum til ofbeld­isiðk­unar“.

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hæsta­rétt­ar­lög­maður, lög­maður ann­ars mann­anna, var í við­tali við Morg­un­út­varpið í morgun. Þar sagði hann að báðir menn­irnir neit­uðu sök og að kæra hefði verið lögð fram gegn kon­unum fyrir rangar saka­giftir. Hann hafi auk þess sent kröfu­bréf til Krist­ínar Þor­steins­dóttur, útgef­anda og aðal­rit­stjóra 365, sem Frétta­blaðið til­heyrir, þar sem fram er farið á afsök­un­ar­beiðni og miska­bætur upp á tíu millj­ónir króna fyrir hvorn mann­anna sem kærðir hafa verið fyrir nauðgun. Vil­hjálmur sagð­ist telja ábyrgð Frétta­blaðs­ins í mál­inu vera mjög mikla og að bein orsaka­tengsl væru milli fréttar blaðs­ins og þeirrar „múgæs­ingar“ sem hafi orðið í gær, þegar þús­undir manna birtu myndir af hinum grun­uðu og nafn­greindu þá á sam­fé­lags­miðlum. Vil­hjálmur segir 365 hafa þangað til á morgun að bregð­ast við kröfu­bréf­inu.

Hann segir einnig að hann telji að allir sem deildu mynd af mönn­unum, nöfnum þeirra og köll­uðu þá nauð­gara hafi gerst sekir um refsi­verða hátt­semi. Verið sé að safna gögnum í mál­inu og verið sé að íhuga mál­sókn.

Fanney Birna Jóns­dóttir, aðstoð­ar­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, var einnig til við­tals í Morg­un­út­varp­inu í morgun. Hún sagði að Frétta­blaðið stæði að öllu leyti við frétt­ina.

Alda Hrönn Jóhanns­dóttir, yfir­lög­fræð­ingur á skrif­stofu lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sagði í gær að það væri ekki rétt sem fram kom á for­síðu Frétta­blaðs­ins að íbúð í Hlíð­ar­hverf­inu hafi „verið sér­út­búin fyrir þessar athafnir". Það væri orðum aukið. Við RÚV sagði Alda: „Sú mynd sem hefur verið máluð í þessu máli í fjöl­miðlum er gríð­ar­lega alvar­leg og ég held að við getum alveg sagt það að hefði hún verið rétt þá hefðum við farið fram á almanna­gæslu. Ef það væri sér­út­búin íbúð til að brjóta á öðru fólki. Ég hef sagt það að það er ekki rétt. Hún er ekki sér útbúin til þess.“

Kristín Þor­steins­dóttir sagði við RÚV í gær­kvöldi að engin ástæða væri til að bera efn­is­at­riði frétt­ar­innar til baka. Orðið „sér­út­búin" hafi ekki verið að finna í frétt blaðs­ins. Hún end­ur­tók þá stað­festu í yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér í dag.

Í Frétta­blað­inu í dag er frétt­inni fylgt eftir. Þar er haft eftir Öldu Hrönn að „í okkar gögnum höfum við ekki neitt sem sýnir að íbúðin sé útbúin til nauð­gana og við getum ekki full­yrt neitt um það. Þetta er þó mats­kennt hug­tak sem og önnur hug­tök sem maður hefur séð í dag, til dæmis hug­takið raðnauðg­anir".

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár