Sendur úr landi vegna dugnaðar

Dönsk yfir­völd þurfa nú að svara fyrir það hvers vegna fólk er sent úr landi fyrir of mik­inn dugnað. Borgþór Arn­gríms­son, frétta­rit­ari Kjarnans í Danmörku, kynnti sér sér­stöðu ungs manns sem heldur upp á Michael Laudrup.

Dönsk stjórn­völd ætla að vísa Gerardo José Lopez Rodriguz, 26 ára gömlum nem­anda við Við­skipta­há­skól­ann í Kaup­manna­höfn, CBS, úr landi. Ástæða brott­vís­un­ar­innar er óvenju­leg: Gerardo hefur verið of vinnu­samur.

Gerardo er frá Venes­ú­ela. Á mennta­skóla­ár­unum fór hann sem skiptinemi til Evrópu. Félagar hans, sem fóru í skipti­nám á sama tíma, árið 2007, völdu allir að fara til Þýska­lands en Gerardo valdi Danmörku. Ástæða þess var að hann hélt mikið uppá knatt­spyrnu­mann­inn Michael Laudrup sem gerði garð­inn frægan með spænsku stór­lið­unum FC Bar­selona og Real Madrid. Í Danmörku gekk Gerardo í mennta­skól­ann í smá­bænum Törring á Jótlandi og bjó, eins og regl­urnar mæltu fyrir um, hjá þremur fjöl­skyldum. Hann var eini útlend­ing­ur­inn í skól­anum og lagði sig fram um að læra dönsk­una. Hann sagði í við­tali við dag­blaðið Politi­ken að dvölin í Törring hafi verið frá­bær. „Ég eign­að­ist marga vini, og var stað­ráð­inn í að snúa aftur til Dan­merkur þegar ég hefði lokið námi heima í Venes­ú­ela."

Aftur til Danmerkur

Gerardo lét ekki sitja við orðin tóm. Eftir að hafa lokið grunn­námi heima í Venes­ú­ela og sparað saman lá leiðin aftur til Dan­merkur. Að þessu sinni til Kaup­manna­hafnar. Hann komst inn í Við­skipta­há­skól­ann og hóf þar nám haustið 2015. Skóla­gjöldin sam­svara um það bil 1800 þús­und krónum íslenskum á ári. Til við­bótar þurfti Gerardo að hafa sem svarar einni milljón íslenskra króna á banka­bók­inni til að sýna að hann gæti klárað sig fyrsta kastið, án aðstoðar danska rík­is­ins.

Nemandi og næturvörður

Gerardo er af efn­uðu fólki kom­inn. For­eldrar hans hafa alla tíð sagt honum að hann geti ekki treyst á að þau haldi honum uppi, hann verði sjálfur að sjá fyrir sér. Gerardo vissi að það sem hann hefði skrapað saman áður en hann kom til Kaup­manna­hafnar myndi ekki end­ast lengi og þess vegna fór hann strax að leita sér að vinnu með nám­inu. Fljót­lega bauðst honum starf sem næt­ur­vörður á hót­eli. Samkvæmt dönskum reglum mega erlendir náms­menn vinna eins og þá lystir yfir sum­arið, júní, júlí og ágúst. Hina níu mán­uði árs­ins mega stúd­entar aðeins vinna 87 tíma á mán­uði. Gerardo var að sögn hót­el­stjór­ans ein­stak­lega sam­visku­samur starfs­maður og alltaf til­bú­inn að hlaupa í skarðið þegar á þurfti að halda. Það átti eftir að koma honum í koll.

Sextíu og þrír og hálfur tími umfram

Í sept­em­ber, októ­ber, nóv­em­ber og des­em­ber í fyrra vann Gerardo sam­tals 411.5 klukku­stundir. Það er 63.5 klukku­stundum meira en regl­urnar heim­ila, sem­sagt tæpar þrjár klukku­stundir á viku umfram það sem leyfi­legt er. Ekki kom þessi vinna niður á nám­inu því Gerardo var í hópi efstu nem­enda að loknu fyrsta árinu. Fyr­ir­komu­lag náms­ins er með þeim hætti að þegar fyrsta árinu er lokið eiga nem­endur að fara í „praktík” eins og það er kallað. Siemens fyr­ir­tækið bauð Gerardo vinnu. Hann er altalandi á ensku, dönsku og portú­gölsku, auk móð­ur­máls­ins spænsku. Hjá Siemens átti hann að byrja fyrsta sept­em­ber síð­ast­lið­inn. En þá kom skyndi­lega babb í bát­inn.

Dvalarleyfið afturkallað

Fyrir nokkrum vikum fékk Geradro bréf frá skrif­stofu inn­flytj­enda­mála, und­ir­stofnun inn­flytj­enda­ráðu­neyt­is­ins. Í bréf­inu stóð að dval­ar­leyfi hans væri hér­með aft­ur­kallað og honum gert skylt að hverfa frá Danmörku eigi síðar en 2. októ­ber næst­kom­andi. Í bréf­inu kom fram að hann hefði unnið meira en lögin heim­ila og það þýddi ein­fald­lega aft­ur­köllun dval­ar­leyfis í land­inu.

Gerardo við­ur­kennir að hann hafi vissu­lega unnið meira en regl­urnar heim­ili. Hann hafi ein­fald­lega verið alltof sam­visku­samur og ekki sagt nei þegar vinnu­veit­and­inn hringdi og vant­aði mann á vakt­ina. „Ég er búinn að safna fyrir skóla­gjöldum næsta árs en nú veit ég ekki hvað ger­ist,” sagði Gerardo í við­tali.

Alltof ferköntuð lög segir lögmaðurinn

Gunnar Homann, lög­maður Gerardos, sagði í blaða­við­tali að þarna væri auð­vitað verið að fylgja lögum. „en er það sann­gjarnt að manni sem hefur það eitt til saka unnið að vinna þremur klukku­stundum meira í viku hverri en lögin heim­ila skuli vísað úr landi? Ég segi nei, það er ekki sann­gjarnt,” sagði lög­mað­ur­inn. Og bætti við „Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra hefur margoft sagt að Danmörk þurfi á að halda dug­legum og vinnu­sömum erlendum náms­mönnum sem ílend­ist í land­inu. Gerardo er lýsandi dæmi um þetta sem Lars Lökke talar um en lögin hitta einmitt fyrir svona dugn­að­ar­forka sem vilja sjá fyrir sér og bjarga sér á eigin spýtur. Þarna eru lögin allt of ósveigj­an­leg,“ sagði lög­mað­ur­inn. Öll laun Gerardos hafi verið gefin upp til skatts og lög­mað­ur­inn sagði jafn­framt frá því að sama dag og Gerardo fékk bréfið um aft­ur­köllun dval­ar­leyf­is­ins fékk hann bréf frá skatt­inum. Þar var til­kynnt um end­ur­greiðslu vegna ofgreiddra skatta. „Það eru einu pen­ing­arnir sem skjól­stæð­ingur minn hefur fengið frá danska rík­inu,” sagði Gunnar Homann lög­maður.

Skólinn getur ekkert gert

Stjórn­endur Við­skipta­há­skól­ans lýsa Gerardo sem dug­legum og sam­visku­sömum nem­anda sem hafi fallið vel inn í nem­enda­hóp­inn. Þeir segja að vissu­lega hafi hann farið yfir þau mörk sem lögin heim­ila hvað vinn­una varði en benda á, eins og lög­maður Gerardos, að það sé einmitt svona fólk sem Danir vilji fá til lands­ins. Skólinn geti hins vegar ekk­ert gert.

Þingmenn vilja breytingar á lögunum

Mál Gerardos hefur vakið tals­verða athygli í Danmörku. Stjórn­mála­menn úr öllum flokkum, nema Danska Þjóð­ar­flokknum, hafa lýst yfir að þeir vilji breyt­ingar á lög­unum um dval­ar­leyfi. Til­gangur lag­anna sé að tryggja að til Dan­merkur komi fólk ekki undir fölsku flaggi, þyk­ist ætla í nám en sé í raun komið til lands­ins í atvinnu­leit. Þing­maður sem dag­blaðið Politi­ken ræddi við sagði að túlkun lag­anna væri í til­felli Gerardos allt of þröng og ynni gegn til­gang­inum. Inger Støjberg ráð­herra inn­flytj­enda­mála er sama sinnis og hefur til­kynnt að stjórnin hygg­ist á næst­unni leggja fram frum­varp með breyttum reglum. Þannig verði skylt að senda dval­ar­leyf­is­höfum, eins og til dæmis Gerardo, eins­konar áminn­ing­ar­bréf, ef þeir hafi unnið meira en lögin heim­ila. En ekki að aft­ur­kalla dval­ar­leyfið án við­vör­unar eins og nú er gert. Dugi slík áminn­ing ekki verði dval­ar­leyfið fellt úr gildi. Ekki kom fram í máli ráð­herr­ans hvenær frum­varpið verði lagt fram.

Vonar hið besta

Eins og áður sagði á Gerardo Rodriguez að fara frá Danmörku eigi síðar en 2. októ­ber næst­kom­andi. Þótt lög­maður hans vinni ötul­lega að því að fá þeirri ákvörðun breytt er óvíst að það tak­ist. Sjálfur seg­ist Gerardo að óbreyttu fara úr landi í lok þessa mán­aðar þótt hann von­ist eftir krafta­verki eins og hann orð­aði það í blaða­við­tali. Ef hann verður að yfir­gefa landið segir hann að þetta ár sem hann hefur lokið í Við­skipta­há­skól­anum sé tapað. „Ég bíð og vona hið besta”.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár