Segir lög um útboðsskyldu ekki hafa verið í gildi

Stjórn­ar­for­maður Lind­ar­hvols, dótt­ur­fé­lags íslenska rík­is­ins, svar­aði fyr­ir­spurn Kjarnans er varðar umfangs­mikla eigna­um­sýslu félags­ins.

Þór­hallur Arason, stjórn­ar­for­maður Lind­ar­hvols, dótt­ur­fé­lags íslenska rík­is­ins sem tók við eignum frá slita­búum föllnu bank­anna, telur að lög um opin­ber inn­kaup hafi ekki verið brotin þegar félagið gerði samn­ing við lög­manns­stof­una Íslög, sem Steinar Þór Guð­geirs­son hrl. á, á vor­mán­uðum í fyrra.

Hann segir að þrátt fyrir að lög um opin­ber inn­kaup geri ráð fyrir að bjóða eigi út þjón­ustu sem sé yfir rúm­lega 15 millj­ónum króna, þá hafi samn­ing­ur­inn milli Lind­ar­hvols og Íslaga verið gerður á gild­is­tíma eldri laga, en ný lög tóku gildi nokkrum mán­uðum eftir að samn­ing­ur­inn var gerður milli Lind­ar­hvols og Íslaga.

Lögin tóku gildi í októ­ber 2016, en sam­ing­ur­inn var gerður í apríl, sam­kvæmt svari Þórhalls við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Fyr­ir­spurnin til Þórhalls, vegna fyrr­nefndra atriða, var eft­ir­far­andi: Í ljósi þess að lögin sem starf­semi Lind­ar­hvols byggir á, taka mið af því að stjórn­sýslu­lögin gildi um félagið, hefði þá ekki þurft að bjóða út þjón­ust­una sem samið var um við Íslög? 40 millj­ónir er tölu­vert fyrir ofan við­miðið um útboð (rúm­lega 15).

Svarið frá Þórhalli, vegna þess­arar fyr­ir­spurnar var eft­ir­far­andi: „Samn­ing­ur­inn var gerður á gild­is­tíma eldri laga um opin­ber inn­kaup en ný lög tóku gildi í lok októ­ber 2016. Lögin byggj­ast á Evr­óputil­skipun um sama efni og þegar kom að kaupum á þjón­ustu hafði það þýð­ingu fyrir fyr­ir­komu­lag opin­berra inn­kaupa hvort þjón­ustan sem keypt var tald­ist vera "A"- eða "B"-þjón­usta. Skv. 21 gr. þágild­anda laga voru inn­kaup á B-þjón­ustu ekki útboðs­skyld og var kaup á lög­fræði­ráð­gjöf skil­greind sem B-þjón­usta,“ sagði í svar­inu.

Eins og greint hefur verið frá, og fram kom í árs­reikn­ingi Lind­ar­hvols fyrir árið í fyrra, þá fékk lög­manns­stofan Íslög 40 millj­ónir króna á átta mán­aða tíma­bili í fyrra, eða um 5 millj­ónir króna á mán­uði, fyrir að sinna þjón­ustu sem Lind­ar­hvoll keypti.

Steinar Þór var með pró­kúru fyrir Lind­ar­hvol, en að sögn Þórhalls fékk hann ekki pró­kúru hjá félag­inu fyrr en eftir að samn­ing­ur­inn milli Lind­ar­hvols og Íslaga var gerður.

Hefur Þór­hallur svarað því til, að samn­ing­ur­inn við Íslög hafi verið gerður til að tryggja „sam­fellu“ við vinnu sem snýr að umsýslu eigna sem komu í fang rík­is­ins eftir fall bank­anna. Fyrst til Seðla­banka Íslands, og síðan til rík­is­ins.

Sveinn Ara­son Rík­is­end­ur­skoð­andi lýsti sig van­hæfan til að end­ur­skoða árs­reikn­ing Lind­ar­hvols. Félagið var stofnað 15. apríl í fyrra og heldur á tug­millj­arða eignum fyrir hönd rík­is­ins.

Ástæðan fyrir því að Sveinn ann­að­ist ekki end­ur­skoðun árs­reikn­inga Lind­ar­hvols var sú að bróðir hans, fyrr­nefndur Þór­hallur, er stjórn­ar­for­maður Lind­ar­hvols, eins og áður sagði.

Vinnan við end­ur­skoðun árs­reikn­ings félags­ins tafð­ist nokkuð vegna þessa, en Sig­urður Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi Rík­is­end­ur­skoð­andi, var feng­inn í það að ann­ast end­ur­skoðun árs­reikn­ings­ins.

Í fang rík­­­is­ins, eftir upp­­­gjör slita­­búa föllnu bank­anna, komu eignir upp á 384,3 millj­­­arða króna, mest mun­aði þar um 95 pró­­­sent eign­­­ar­hlut í Íslands­­­­­banka og veð­skulda­bréf og afkomu­­­skipta­­­samn­ing vegna Arion banka, upp á sam­tals ríf­­­lega 105 millj­­­arða króna.

Aðrar eignir, þar á meðal hluta­fjár­­­­­eign­ir, lán og aðrar eign­ir, nema tæp­­­lega 100 millj­­­örðum króna. Allt laust fé sem borist hefur félag­inu rennur inn á reikn­ing félags­­­ins hjá Seðla­­­banka Íslands, sam­­kvæmt grein­­ar­­gerð sem skilað var til Alþingis.

Í grein­­­ar­­­gerð­inni segir að sam­tals hafi um 140 millj­­­arðar króna runnið inn á reikn­ing­inn í Seðla­­­bank­­­anum frá því árið 2016. „Frá því í febr­­­úar 2017 og fram til ágúst­loka hafa greiðslur inn á stöð­ug­­­leik­a­­­reikn­ing­inn numið 56.448 millj­­­ónum króna. Staðan á reikn­ingnum þann 3. febr­­­úar var 6.641 milljón króna. Alls hefur 58.700 millj­­­ónum verið ráð­stafað til nið­­­ur­greiðslu skulda á tíma­bil­inu, skulda­bréf sem rík­­­is­­­sjóður gaf út til end­­­ur­fjár­­­­­mögn­unar Seðla­­­banka Íslands var greitt upp að fullu en eft­ir­­­stöðvar þess námu 28,5 ma.kr. Þá voru um 30 ma.kr. ráð­stafað til upp­­­­­kaupa á skulda­bréfa­­­flokknum RIKH 18 sem rík­­­is­­­sjóður gaf út til end­­­ur­fjár­­­­­mögn­unar fjár­­­­­mála­­­stofn­ana. Sam­an­­­dregið frá því að fram­­­sal stöð­ug­­­leika­­­eign­anna átti sér stað í upp­­­hafi árs 2016 og til og með 25. ágúst 2017 hafa greiðslur inn á stöð­ug­­­leik­a­­­reikn­ing­inn ásamt greiðslum inn á reikn­inga dótt­­­ur­­­fé­laga numið sam­tals ríf­­­lega 140 millj­örðum króna. Þar af var 17 millj­örðum króna ráð­stafað til rík­­­is­­­sjóðs til að mæta töp­uðum banka­skatti og um 120 millj­örðum króna hefur verið ráð­stafað til nið­­ur­greiðslu skulda,“ segir í grein­­­ar­­­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár