Vilja þjóðarátak í landgræðslu

Sjö þing­menn hafa lagt til að að komið verði á fót vett­vangi fyrir sam­starfi stjórn­valda, Land­græðsl­unnar, bænda, atvinnu­lífs og almenn­ings sem miði að því að auka þátt­töku almenn­ings í kolefn­is­bind­ingu með land­græðslu.

Sjö þingmenn úr fjórum flokkum hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að fela umhverfis- og auðlindaráðherra að sjá til þess að komið verði á fót samstarfsvettvangi sem miði að því að auka þátttöku almennings í kolefnisbindingu með landgræðslu og gera þannig þjóðarátak í landgræðslu. Þingmennirnir vilja að þessum samstarfsvettvangi verði komið á fyrir lok árs 2020.

Fáir þjóðir jafn gott tækifæri til kolefnisbindingar í gróðri

[links]Markmið tillögunnar er að auka kolefnisbindingu, koma í veg fyrir jarðvegsrof og græða upp örfoka land með aukinni þátttöku almennings í landgræðslu. Í þingsályktunartillögunni segir að jarðvegur sé mikilvæg auðlind enda sé hann undirstaða mestallrar matvælaframleiðslu heimsins.

Jarðvegseyðing sé ein mesta ógn mannkyns og að eyðing gróðurs og jarðvegs hafo um langa hríð verið eitt helsta umhverfisvandamálið á Íslandi.

„Flutningsmenn leggja því til að farið verði í þjóðarátak í landgræðslu enda hafi fáar þjóðir hafa eins góð tækifæri og Íslendingar til að draga úr losun vegna landnotkunar og efla kolefnisbindingu í gróðri og jarðvegi,“ segir í tillögunni.

Þingmennirnir leggja því til að settur verði á fót samstarfsvettvangur stjórnvalda, Landgræðslunnar, bænda, atvinnulífs og almennings til að auka þáttöku almennings í kolefnisjöfnun. Lagt er til að haft verði til fyrirmyndar átakið Bændur græða landið en það er samstarfsverkefni bænda og Landgræðslunnar sem starfrækt hefur verið frá árinu 1990 um uppgræðslu heimalanda

Mörg hundruð einstaklingar kolefnisjafnað sig í ár

Æ fleiri einstaklingar og fyrirtæki hafa kolefnisjafnað viðskipti sín á undanförnum misserum. Kolefnisjöfnun fellst í því að reikna út hversu mikið ein­stak­ling­ur, fyr­ir­tæki eða stofnun menga mik­ið, til dæmis hversu mikil losun koltví­sýr­ings á sér stað við flug eða akst­ur. Ein­stak­ling­ur­inn, fyr­ir­tækið eða stofn­unin greiðir fyr­ir­tæki eða sjóði fyrir að planta trjám eða end­ur­heimta vot­lendi sem í stað­inn bindur sama magn af kolefn­i.

Tvö fyr­ir­tæki og sjóðir bjóða upp á kolefnisjöfnun á Íslandi, það eru Vot­lend­is­sjóður og Kol­við­ur. Í sumar höfðu 300 ein­stak­lingar kolefn­is­jafnað sig það sem af er ári hjá Kol­viði og 96 ein­stak­lingar hjá Vot­lend­is­sjóði.

„Þátttaka atvinnulífsins í verkefninu gæti falist í því að bjóða upp á kolefnisjöfnun viðskipta með landgræðslu. Þannig yrði þátttaka almennings tvíþætt, annars vegar með beinni þátttöku í landgræðslu undir leiðsögn Landgræðslunnar, hins vegar með kolefnisjöfnun viðskipta sinna,“ segir í þingsályktunartillögunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár