Sjómenn segja að að afnám stimpilgjalda tefli störfum þeirra í stórhættu

Sjómenn ótt­ast að afnám stimp­il­gjalda á fiski­skipum muni gera útgerðum kleift að „flagga skipum út og inni af íslenskri skipa­skrá að eigin geð­þótta og stefna afkomu sjó­mann­anna í stór­hættu.“

Sjó­manna­sam­band Íslands og VM - félag vél­stjóra og málm­tækni­manna segj­ast ekki geta undir neinum kring­um­stæðum nema að einu leiti tekið undir nauð­syn þess að afnema stimp­il­gjöld af fiski­skipum. Und­an­tekn­ingin sé sú þegar skip komi i fyrsta skipti á íslenska skipa­skrá.

[adspot]Í umsögn þeirra um frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um afnám stimp­il­gjalds­ins segir að þau hafi verið nauð­syn­legur hem­ill til að vernda störf íslenskra sjó­manna sem taka laun eftir íslenskum kjara­samn­ingum. Félögin benda á að í lang flestum til­fellum séu íslenskir sjó­menn fjöl­skyldu­menn sem eigi lífs­við­ur­væri sitt undir öruggu rekstr­ar­um­hverfi þeirra skipa sem séu þeirra starfs­vett­vangur. „Með því að aflétta stimp­il­gjaldi er útgerð­inni gert kleift að flagga skipum út og inni af íslenskri skipa­skrá að eigin geð­þótta og stefna afkomu sjó­mann­anna í stór­hættu.

Í umsögn þeirra segir einnig að í ljósi þess sem fram kemur í „Sam­herj­a­skjöl­unum“ svoköll­uðu ætti Alþingi að fara sér afar hægt í þessum efnum.

Áður hafði félag skip­stjórn­ar­manna skilað sam­bæri­legri umsögn og sagt að ákvæði lag­anna um stimp­il­gjöld væri sá þrösk­uldur sem komið hefði í veg fyrir stór­aukna hreyf­ingu skipa inn og út af íslenskri skipa­skrá undir erlent flagg og til baka.“

SFS barist lengi fyrir afnáminu

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) hafa einnig sent inn umsögn, sem birt var á vef Alþingis í gær. Þau taka undir mik­il­vægi þess að afnema stimp­il­gjald af skjölum varð­andi eigna­yf­ir­færslu á skipum. „Mik­il­vægt er að heima­til­búnar hindr­anir dragi ekki mátt úr íslenskum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum sem eiga í harðri sam­keppni á alþjóð­legum mark­aði. Stjórn­völd eru hvött til þess að gæta að sam­keppn­is­hæfni íslenskra útflutn­ings­fyr­ir­tækja því að í þeim efnum er hæg­ara að styðja en reisa.“

[adspot]SFS þver­tekur auk þess fyrir það að staða íslenskra sjó­manna muni breyt­ast verði stimp­il­gjöldin afnumin. Á árunum 2008 til 2017 greiddu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki rúm­lega 1,2 millj­arða króna í stimp­il­gjald vegna fiski­skipa.

SFS hafa barist hart fyrir því að gjaldið verði afnu­mið und­an­farin miss­eri, meðal ann­ars í umsögn um fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp fyrir árið 2020. Þar sögðu þau aðgerð­ina nauð­syn­lega og löngu tíma­bæra.

Í umsögn­inni sagði meðal ann­ars að það væri mat sam­tak­anna að mik­il­vægt sé að átta sig á því að skip séu ekk­ert annað en atvinnu­tæki þeirra sem þau nota. „Með því að fara fram á háa greiðslu stimp­il­gjalda vegna skipa sem eru yfir 5 brúttó­tonnum á sér stað mis­munun eftir atvinnu­grein­um, enda ljóst að aðrir lög­að­ilar sem not­ast þurfa við tæki á borð við flug­vél­ar, rút­ur, vinnu­vélar eða önnur stór­virk atvinnu­tæki er ekki skylt að greiða stimp­il­gjöld.[...] Jafn­framt ber að nefna að fyr­ir­tæki í útgerð sem hafa áhuga á að end­ur­nýja sinn skipa­kost, þurfa ekki aðeins að greiða 1,6% stimp­il­gjald heldur verður það 3,2% af verð­mæti við­skipt­anna sem fer í stimp­il­gjöld. Þannig þurfa fyr­ir­tækin jafnan að greiða bæði gjaldið við sölu eldra skips og síðan aftur við kaup á nýju skipi og því verður álagn­ingin í raun tvö­föld við end­ur­nýjun skipa­stóls.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár