Aðeins 250 af 1900 Airbnb gistiplássum í Reykjavík eru með leyfi

Um fjögur pró­sent allra íbúða í Reykja­vík eru í útleigu til ferða­manna sam­kvæmt nýrri skýrslu Háskól­ans á Bifröst.

Um fjögur pró­sent íbúða í Reykja­vík eru leg­iðar til íbúða­gist­ingar í skamm­tíma­leigu, oft­ast í gegnum síð­una Airbnb.com, og er hlut­fallið hátt miðað við aðrar borgir. Áhrif á fast­eigna­mark­að­inn eru þau að í ýmsum hverfum Reykja­víkur er fast­eigna­verð hærra vegna auk­innar eft­ir­spurnar eftir hús­næði undir íbúða­gist­ingu, en fjölgun hót­el­her­bergja hefur ekki haldið í við fjölgun ferða­manna sem hafa því leitað ann­arra gisti­mögu­leika.

Þetta er meðal nið­ur­staðna nýrrar skýrslu sem unnin var á Háskól­anum í Bifröst um umfang íbúða­gist­ingar í ferða­þjón­ustu á Íslandi. Fram kemur að alls eru um 3.400 her­bergi og íbúðir skráðar á Airbnb.com, þar af 1.900 her­bergi og íbúðir í Reykja­vík. Samkvæmt Sýslu­manni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru ein­ungis þrettán pró­sent af þeim með skráð leyfi til íbúða­gist­ingar. Það gera um 250 leyfi.

Skýrslan var unnin fyrir atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið. Stefnt er að því að leggja fram frum­varp til breyt­ingar á lögum um veit­inga­staði, gisti­staði og skemmt­ana­hald á yfir­stand­andi þingi og verður skýrslan höfð til hlið­sjónar í þeirri vinnu, að því er fram kemur á vef ráðu­neyt­is­ins. Í skýrsl­unni segir að umrædd lög nái ekki nægi­lega vel utan um nýjan veru­leika í íbúða­gist­ingu, ein­falda þurfi leyf­is­veitnga­ferlið og að reglur um skatt­lagn­ingu séu ekki skýrar.

Skýrslan í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár