Stefnir Fréttablaðinu eftir helgi

Lögmaður tveggja manna sem Frétta­blaðið fjall­aði um í vetur vegna nauðg­un­ar­kæra stefnir blað­inu eftir helgi. Áður var kraf­ist afsök­un­ar­beiðni og bóta sem blaðið hafn­aði. 22 kröfu­bréf hafa verið send út til ein­stak­linga vegna máls­ins.

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson ætlar að þingfesta stefnurnar eftir helgi.
Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son ætlar að þing­festa stefn­urnar eftir helgi.

Frétta­blað­inu verður stefnt í næstu viku fyrir birt­ingu for­síðu­fréttar um meintar nauðg­anir í Hlíðunum í Reykja­vík. Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður tveggja manna sem nafn­greindir voru á sam­fé­lags­miðlum eftir birt­ingu frétt­ar­innar, seg­ist reikna með að stefnan verði þing­fest strax eftir næstu helgi. RÚV greindi frá mál­inu.

Í byrjun febr­úar ítrek­aði Vil­hjálmur kröfur sínar til Frétta­blaðs­ins um að það greiði umbjóð­endum sínum 20 millj­ónir í miska­bætur fyrir frétt­ina og biðj­ist afsök­unar vegna umfjöll­unar blaðs­ins um málið. Frétta­blaðið neit­aði þessum kröfum og hefur Kristín Þor­steins­dóttir, rit­stjóri blaðs­ins, sagt að blaðið standi við frétt­ina.

Forsíðufréttin var kveikjan

Forsaga máls­ins er sú að Frétta­blaðið birti for­síðu­frétt í nóv­em­ber síð­ast­liðnum undir fyr­ir­sögn­inni: Íbúð í Hlíðunum útbúin til nauð­gana. Áður hafði verið sagt frá rann­sókn lög­reglu á tveimur aðskildum kyn­ferð­is­brota­málum vegna meintra árása í fjöl­býl­is­húsi í Hlíða­hverfi í Reykja­vík í októ­ber. Tvær ­konur kærðu tvo karl­menn fyrir kyn­ferð­is­brot í mál­inu og í frétt Frétta­blaðs­ins sagði að „Sam­kvæmt heim­ildum blaðs­ins voru árás­irnar hrotta­legar og íbúðin búin tækjum til ofbeld­isiðk­un­ar“. Fram kom í frétt­inni að mönn­unum hafði svo verið sleppt að lok­inni skýrslu­töku.

Mikil reiði­alda reis í kjöl­far frétt­ar­innar, boðað var til mót­mæla fyrir utan lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu og menn­irnir voru nafn­greindir á sam­fé­lags­miðlum og birtar af þeim myndir.

Rann­sóknir á nauðg­un­ar­kær­unum fóru á borð hér­aðs­sak­sókn­ara og lét hann bæði málin niður falla. Annar mað­ur­inn hafði einnig kært aðra kon­una fyrir kyn­ferð­is­brot en það mál var líka látið niður falla.

Kröfubréf til 22 einstaklinga

Í síð­ustu viku sendi Vil­hjálmur 22 ein­stak­lingum kröfu­bréf þar sem kraf­ist var afsök­un­ar­beiðni og miska­bætur vegna ummæla sinna og tvær kærur, er fram kemur hjá RÚV. Þar segir að fólkið hafi fengið bréfin af ólíkum ástæðum, sumir fyrir að skrifa fréttir um málið, einn fyrir status á Facebook þar sem menn­irnir voru nafn­greindir og mynd­birtir og sagðir nauð­garar. Þeirri stöðu­færslu var deilt 2.350 sinnum, að talið er. Tvær kærur voru lagðar fram vegna Facebook-síðu sem búin var til úr fornöfnum mann­anna,

Lagðar voru fram tvær kærur hjá lög­reglu vegna Facebook-síðu sem búin var til úr fornöfnum mann­anna. Vil­hjálmur segir að á þeirri síðu hafi verið settur allskyns óhróður um menn­ina tvo. Þá hafi maður verið kærður til lög­reglu fyrir að hvetja til ofbeldis gegn mönn­unum á Facebook.

„Ég taldi nauð­syn­legt að senda þeim sem bera ábyrgð á þessu lögum sam­kvæmt kröfu­bréf áður en ég stefni við­kom­andi miðli," segir Vil­hjálmur í sam­tali við Kjarnann. Hann segir mögu­legt að stefn­urnar verði tvær, ann­ars vega ómerk­ing ummæla og miska­bætur, og svo verði höfðað sér­stakt mál um skaða­bætur fyrir fjár­tjón, atvinnu­tjón, var­an­legan miska og var­an­lega örorku. Að sögn Vil­hjálms eru menn­irnir tveir enn atvinnu­lausir og í sál­fræði­með­ferð eftir frétta­flutn­ing­inn.

Engin við­brögð hafa borist frá Frétta­blað­inu um málið önnur en þau að blaðið standi við frétt sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár