AstraZeneca mætir áfram andstreymi

Ekkert bendir til þess að blóð­tappi sé algeng­ari hjá fólki sem fengið hefur bólu­efni AstraZeneca en vænta má í sam­fé­lagi almennt. Ísland er í hópi landa sem stöðvað hafa bólu­setn­ingu með efn­inu þar til ítar­rann­sókn Lyfja­stofn­unar Evrópu liggur fyrir.

Fimm milljónir manna í Evrópu hafa fengið bóluefni AstraZeneca.
Fimm millj­ónir manna í Evrópu hafa fengið bólu­efni AstraZeneca. Mynd: EPA

Í kjöl­far and­láts hjúkr­un­ar­fræð­ings í Aust­ur­ríki og sex­tugrar konu í Danmörku, sem bæði höfðu skömmu fyrr verið bólu­sett með bólu­efni AstraZeneca, vildu dönsk yfir­völd láta taka af allan vafa um hvort bólu­efnið ætti þar sök, væri að valda blóð­tapp­anum sem dró fólkið til dauða, og ákváðu að stöðva tíma­bundið bólu­setn­ingu Dana með efn­inu. Fleiri ríki fylgdu í kjöl­farið og hafa Aust­ur­ríki, Eistland, Litháen, Lúx­em­borg, Lettland, Ítalía, Noregur og Ísland nú tíma­bundið hætt notkun bólu­efn­is­ins ýmist alfarið eða úr ákveð­inni fram­leiðslu­lotu. Lönd utan ESB hafa einnig gert slíkt hið sama, m.a. Taíland.

Áður höfðu mörg ríki ESB hætt að gefa bólu­efnið eldra fólki. Var það m.a. gert hér á landi.

Heil­brigð­is­yf­ir­völd í þessum löndum, sem og Lyfja­stofnun Evrópu sem hefur hafið ítar­rann­sókn á mál­inu, telja ekk­ert benda til þess að þau dauðs­föll sem orðið hafa vegna blóð­tappa skömmu eftir bólu­setn­ingu megi rekja beint til bólu­efn­is­ins.

[adspot]

Allt byrj­aði þetta þann 7. mars er yfir­völd í Aust­ur­ríki til­kynntu að þau hefðu stöðvað bólu­setn­ingu með bólu­efni AstraZeneca úr ákveð­inni fram­leiðslu­lotu. Þá hafði ein mann­eskja, hjúkr­un­ar­fræð­ingur, sem nýlega fékk bólu­setn­ingu með efn­inu lát­ist og önnur mann­eskja orðið veik. Um blóð­tappa var að ræða í báðum til­vikum.

[links]Fram­leiðslu­lotan hafði verið afhent sautján Evr­ópu­ríkjum, m.a. Íslandi, og taldi hún um eina milljón skammta. Ítölsk yfir­völd höfðu ekki fengið bólu­efni úr þess­ari til­teknu lotu en ákváðu engu að síður að stöðva tíma­bundið bólu­setn­ingu úr annarri lotu eftir tvö dauðs­föll. Báðir ein­stak­ling­arnir sem lét­ust bjuggu á Sikiley og annar þeirra var 43 ára. Hann fékk hjarta­á­fall og fannst lát­inn á heim­ili sínu dag­inn eftir að hann var bólu­settur. Hinn var fimm­tugur lög­reglu­maður. Hann hafði einnig fengið bólu­efni úr sömu fram­leiðslu­lotu AstraZeneca.

Lyfja­stofnun Evrópu sagði í yfir­lýs­ingu í gær að henni hefðu borist til­kynn­ingar um þrjá­tíu til­felli af blóð­tappa hjá fólki sem fengið hafði bólu­efni AstraZeneca. Fimm millj­ónir íbúa innan ESB hafa verið bólu­settir með því. Stofn­unin sagði að til­felli blóð­tappa hjá þeim sem fengið höfðu bólu­efnið væru ekki fleiri en meðal almenn­ings almennt og að ekk­ert benti til að bólu­efnið væri að valda blóð­tappa.

Engu að síður er sér­stök örygg­is­nefnd stofn­un­ar­innar nú að rann­saka málið frekar, m.a. sér­stak­lega ákveðnar fram­leiðslu­lotur bólu­efn­is­ins.

Í yfir­lýs­ingu frá AstraZeneca sem send var út í gær­kvöldi segir að við grein­ingu á gögnum er varða 10 millj­ónir manna sem bólu­settir hafa verið með efni fyr­ir­tæk­is­ins sé ekk­ert sem bendi til að það auki hætt­una á blóð­tappa. Í reynd sé blóð­tappi fágæt­ari meðal bólu­settra en almennt megi búast við í sam­fé­lögum.

Bendir fyr­ir­tækið á að í þriðja fasa klínískra rann­sókna hafi öryggi bólu­efnis þess verið rann­sakað gaum­gæfi­lega.

Tilviljun eða aukaverkun?

Þó að nokkur lönd hafi gripið til þeirra var­úð­ar­ráð­staf­ana að stöðva bólu­setn­ingu með bólu­efni AstraZeneca tíma­bundið á meðan frek­ari rann­sóknir verða gerðar, eru löndin sem það hafa ekki gert enn fleiri. Stephen Evans, pró­fessor í lyfja­fræði við London School of Hygiene and Tropical Medicine, segir við Politico að þessar var­úð­ar­ráð­staf­anir, sem gripið var skyndi­lega til, geti skapað erf­ið­leika við að greina á milli sann­ar­legra auka­verk­ana og til­vilj­ana.

Hann segir að þessi nálgun sé kannski rétt­læt­an­leg þegar eng­inn skortur er á öðrum bólu­efnum en ef aðgerð­irnar verða til þess að bólu­setn­ing­ar­her­ferðir tefj­ist, m.a. bólu­setn­ingar við­kvæmra hópa, þá hafi slíkar var­úð­ar­ráð­staf­anir öfug áhrif.

Meira en ell­efu millj­ónir skammtar af bólu­efni AstraZeneca hafa verið gefnir í Bret­landi. Í nýj­ustu skýrsl­unni sem gefin er út viku­lega um auka­verk­anir, kemur fram að þrjú dauðs­föll og 45 til­felli veik­inda vegna blóð­tappa hafi verið skráð hjá þeim sem fengið hafa bólu­efni AstraZeneca. Í til­felli bólu­efnis Pfizer-BioNtech hefur eitt dauðs­fall og 48 til­felli veik­inda vegna blóð­tappa verið til­kynnt.

„Til­kynn­ingar um blóð­tappa sem við höfum þegar fengið eru ekki fleiri en vænta má almennt í sam­fé­lag­inu,“ segir Philip Bryan, sem fer fyrir bólu­efna­sviði bresku lyfja­stofn­un­ar­innar. Spurður um við­brögð Dana, að hætta að nota bólu­efnið tíma­bundið, ítrekar hann að öryggið eigi alltaf að vera efst á baugi. „Við fylgj­umst náið með gangi mála en þau gögn sem fyrir liggja stað­festa ekki að bólu­efn­inu sem um að kenna.“

Annað bakslag

Fyr­ir­tækið hefur nú aftur til­kynnt að það geti ekki afhent umsamdan fjölda skammta af bólu­efn­inu til Evr­ópu­sam­bands­ins. Fyrir ára­mót gerði dreif­ing­ar­á­ætlun ráð fyrir 80-100 milljón skömmtum fyrir lok mars. Í jan­úar kom hins vegar í ljós að tafir í fram­leiðslu hefðu orðið til þess að skammt­arnir sem ESB fengi yrðu aðeins um 30 millj­ónir. Fram­kvæmda­stjórn sam­bands­ins ærð­ist yfir þessum tíð­indum og sagði fyr­ir­tækið hafa brotið gerða samn­inga. Vísaði hún þá meðal ann­ars til þess að á meðan aðeins brot af skömmtum myndu ber­ast á réttum tíma til ESB-ríkja væri dreif­ing­ar­á­ætlun fyrir Bretland óbreytt.

AstraZeneca brást við með því að lofa 40 milljón skömmtum fyrir mars­lok.

En nú er ljóst að enn þarf að draga í land. Og að skammt­arnir verða ekki fleiri en 30 þús­und. Aðeins hafa um 11 milljón skammtar verið afhentir og nokkuð er liðið á mán­uð­inn. Fyr­ir­tækið segir að ESB geti svo vænst 20 milljón skammta til í apríl.

„Ég sé við­leitni en ég sé ekki mikla við­leitni,“ skrif­aði Thierry Breton, sem fer fyrir innri mark­aðs­málum í fram­kvæmda­stjórn ESB, á Twitter í gær­kvöldi. „Þetta er enn ekki nóg hjá AstraZeneca til að mæta skuld­bind­ingum sínum fyrir fyrsta árs­fjórð­ung.“ Hann hvatti stjórn fyr­ir­tæk­is­ins til að gera allt sem í hennar valdi stæði til að upp­fylla skyldur fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár