Flakið í mýrinni

Fjórtán ára grunn­skóla­nemi í Danmörku átti að skrifa rit­gerð um eitt­hvað sem tengd­ist seinni heim­styrj­öld­inni. Hann fór til leitar með föður sínum og end­aði á að finna flug­vélaflak þýskrar vélar, með lík­ams­leifum her­manns. Málið hefur vakið mikla athygli.

Daniel Kristiansen með brot úr flaki flugvélarinnar sem hann fann.
Daniel Krist­i­an­sen með brot úr flaki flug­vél­ar­innar sem hann fann.

Þegar Daniel Krist­i­an­sen, 14 ára grunn­skóla­nemi og bónda­sonur í Birkelse á Norður-Jótlandi skammt frá Álaborg, sagði for­eldrum sínum frá því að hann ætti að skrifa rit­gerð um eitt­hvað sem tengd­ist heimstsyrj­öld­inni síð­ari, sagði pabbi hans „við ættum kannski að leita að þess­ari þýsku flug­vél sem afi minnt­ist svo oft á.” Hvorki Daniel né Klaus pabba hans grun­aði að þeir feðgar yrðu, eftir nokkra daga á for­síðum fjöl­miðla víða um heim. 

Klaus hafði alltaf haldið að þessi saga, sem afi hans hafði svo oft sagt, væri bara til­bún­ingur. Afinn sagð­ist hafa verið að baka smákökur, ætl­aðar til jól­anna, þegar flug­vél hefði skollið í jörð­ina á opnu svæði, mýr­ar­fláka, skammt frá bænum, þar sem barna­barnið Klaus býr ennþá. Þetta var í nóv­em­ber 1944.

Daniel sem hefur mik­inn áhuga á öllu því sem teng­ist síð­ari heims­styrj­öld­inni leist vel á þessa hug­mynd pabba síns, þótt hann hefði enga trú á að þeir fyndu neitt. Hann gæti þá bara skrifað um þessa sögu sem langafi hans hafði sagt, en langafinn hafði líka sagt að Þjóð­verjar hefðu fljót­lega eftir slysið komið á stað­inn og fjar­lægt flakið.

Málmleitartækið kom þeim á sporið

Þeir feðgar, Daniel og Klaus leigðu málm­leit­ar­tæki og fóru síðan út að leita, tóku reku með. „Ég von­aði að við myndum kannski finna einn eða tvo smá­hluti sem ég gæti farið með í skól­ann” sagði Daniel. Ekki höfðu þeir feðgar leitað lengi þegar tækið gaf merki. Þegar þeir höfðu grafið tíu til fimmtán senti­metra komu þeir niður á smá málm­hlut sem þeir gátu ekki áttað sig á hvort væri úr flug­vél eða ein­hverju öðru. En málm­leit­ar­tækið hélt áfram að láta í sér heyra og þeim Daniel og Klaus varð ljóst að þarna í jörð­inni lægi fleira grafið en þetta járn­stykki sem þeir höfðu fyrst fundið. Þeim varð líka ljóst, eftir að hafa grafið dálitla holu, að þeir yrðu að nota öfl­ugra tæki en rek­una sem þeir höfðu tekið með. Daniel sagði í við­tali að þarna hefði hann áttað sig á því að langafi hefði ekki verið að grín­ast.

Það var djúpt á flakinu

Klaus bóndi á trakt­ors­gröfu, hún getur þó ekki grafið nema tvo til þrjá metra niður og þegar þangað var komið pípti tækið enn. Nú voru þeir feðgar orðnir mjög spenntir og ekki kom til greina að hætta leit­inni. Fengin var stærri grafa og þegar holan var orðin sjö til átta metra djúp kom flakið í ljós. Vélin hafði ber­sýni­lega splundr­ast þegar hún skall í jörð­ina en aug­ljóst virt­ist að ekki hefði kviknað í henni. Lík­ams­leifar flug­manns­ins voru í flak­inu.

Feðgarnir fjar­lægðu strax tals­vert af málm­hlutum sem virt­ust vera úr búk og vængjum vél­ar­innar en köll­uðu síðan til sér­fræð­inga. Í sam­vinnu við þá var mótor vél­ar­innar, sem var heil­leg­asti hluti þess sem fannst, fluttur í skemmu við bónda­bæ­inn. Lík­ams­leifar flug­manns­ins voru einnig fjar­lægðar úr flak­inu.

Fréttin af flugvélarfundinum vakti athygli víða um heim

Danskir fjöl­miðlar greindu fyrstir frá fund­inum en strax kom í ljós að þessi frétt var ekki bara „til heima­brúks”, hún barst á svip­stundu um víða ver­öld. Vitað var að vélin var þýsk, og því lík­legt að flug­mað­ur­inn hafi verið Þjóð­verji, en í upp­hafi var fátt annað vitað með vissu. Það átti eftir að breyt­ast.

Var í æfingaflugi

Í Danmörku er mik­ill áhugi fyrir öllu því sem við­kemur sögu síð­ari heims­styrj­aldar og árlega kemur út fjöldi bóka um efni sem henni tengj­ast. Margir, einkum karlar, grúska í gömlu efni og því þurfti ekki að bíða lengi eftir að ein­hverjar upp­ýs­ingar kæmu fram varð­andi þessa flug­vél sem end­aði í mýr­inni við Birkelse. Sögu­grúskar­inn Søren C. Flensted greindi frá því dag­inn eftir að greint var frá flug­vél­ar­fund­inum að flug­mað­ur­inn hefði heitið Bruno Krüger. Hann hafi farið í æfinga­flug 27 nóv­em­ber 1944 frá flug­vell­inum í Rördal austan við Álaborg, þar sem Þjóð­verjar voru með stóra her­stöð, og vélin brot­lent við Birkelse. Þessar upp­lýs­ingar hafði Søren Flensted fundið í þýskum skjala­söfnum. Þar kom líka fram að vélin var Messerschmitt Bf 109, eins hreyf­ils vél, með einu sæti.

Þótt Þjóð­verjar hafi lagt mikla áherslu á að finna og jarð­setja fallna her­menn virð­ast þeir ekki hafa reynt að finna lík Krügers í mýr­inni. Þegar þarna var komið (í nóv­em­ber 1944) voru Þjóð­verjar orðnir mjög aðþrengdir og kannski hefur það ráðið því að ekki var reynt að sækja lík Krügers. Tíu dögum áður hafði annar þýskur flug­maður farist í æfinga­flugi á svip­uðum slóðum, sá var jarð­settur í Frederiks­havn. Þjóð­verjr höfðu misst marga menn og nýir flug­menn fengu iðu­lega litla æfingu, auk þess var elds­neytið sem notað var á her­flug­vél­arnar lélegt.

Horfði á vélina fljúga í jörðina

Þennan nóv­em­ber­dag árið 1944 var Sigurd Jensen, 22 ára gam­all maður frá Brovst skammt frá Birkelse, að stinga upp mó til eldi­viðar. Sigurd Jensen sem nú er að verða 95 ára fylgd­ist með flug­vél sem hring­sól­aði skammt frá honum, flaug upp og niður, greini­lega í æfinga­flugi. Skyndi­lega sá hann að vélin tók stefn­una, á fullri ferð, beint niður og skall svo í mýr­ina. Að sögn Sigurd þeytt­ust brot úr vél­inni og mold í allar áttir. „ Ég hugs­aði með mér að flug­mað­ur­inn hefði ákveðið að enda þátt­töku sína í stríð­inu með þessum hætti”.

Fréttin um flug­véla­fund­inn kom Sigurd á óvart. Hann taldi víst að Þjóð­verjar hefðu komið og fjar­lægt lík flug­manns­ins og leif­arnar af vél­inni.

Skotvopn, matarmiðar og smokkar

Danskir fjöl­miðlar hafa greint frá því að í flaki vél­ar­innar hafi fund­ist hríð­skota­byssa og í lít­illi tösku sem flug­mað­ur­inn hafði verið með á sér hafi verið mat­ar­miðar (mötu­neyt­is­miðar) og nokkrir smokkar. Fjöl­miðlar víða um heim slógu þessu með smokk­ana upp í fyr­ir­sögnum, sumir jafn­vel í háð­ung­ar­tón. Skýr­ingin er hins­vegar ekki flókin og á ekk­ert skylt við hefð­bundna notkun vör­unnar. Smokk­ur­inn var hluti neyð­ar­bún­aðar þýskra flug­manna, hugs­aður sem vatns­brúsi í neyð. Léttur, fyr­ir­ferð­ar­lít­ill og vatns­heldur.

Messerschmitt vélarnar eftirsóttir safngripir

Alls voru smíð­aðar tæp­lega 34 þús­und Messerschmitt Bf 109 vélar, þær fyrstu voru teknar í notkun árið 1937 en sögu þeirra lauk með nið­ur­lagi Þjóð­verja í heims­styrj­öld­inni síð­ari. Þrátt fyrir þennan mikla fjölda sem smíð­aður var eru til­tölu­lega fáar vélar af þess­ari gerð til. Margar fór­ust í stríð­inu og flestar þeirra sem eftir voru í stríðs­lok voru bút­aðar niður og málm­ur­inn, sem mik­ill skortur var á eftir stríðið, not­aður í annað. Eft­ir­spurn eftir Bf 109 er þess vegna mikil og reikna má með að mörg söfn vilji kom­ast yfir flakið af vél­inni sem fannst við Birkelse. Af myndum að dæma er geysi­mikið verk að end­ur­byggja vél­ina, ef það er á annað borð fram­kvæm­an­legt.

Eins og áður sagði er mik­ill áhugi í Danmörku fyrir öllu því sem við­kemur heims­styrj­öld­inni síð­ari. Ef söfn kom­ast yfir eitt­hvað merki­legt frá heim­styrj­ald­ar­ár­unum eykst aðsóknin. Ring­köbing – Skjern safnið á Vestur-Jótlandi opn­aði fyrir nokkrum árum gam­alt loft­varna­byrgi sem Þjóð­verjar gerðu á her­náms­ár­unum í Danmörku. Árið eftir jókst aðsóknin um 400 pró­sent.

Daniel og ritgerðin

Aðeins eru liðnir nokkrir dagar frá því að Daniel fór ásamt föður sínum að leita að flug­vél­arflak­inu í mýr­inni. Hvernig honum vegnar við rit­gerð­ar­smíð­ina er ókomið í ljós en eitt er víst: efni­við­inn skortir ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár