Umhverfið, efnahagurinn, heilbrigðiskerfið og kjaramál efst í hugum kjósenda

Heil­brigð­is­mál, umhverfis- og lofts­lags­mál, efna­hags­mál og kjara­mál eru mik­il­væg­ustu málin í kosn­inga­bar­átt­unni að mati kjós­enda, sam­kvæmt frum­nið­ur­stöðum úr Íslensku kosn­inga­rann­sókn­inni, sem stendur yfir þessa dag­ana.

Fjórir málaflokkar gína yfir alla aðra hvað mikilvægi varðar, samkvæmt fyrstu niðurstöðum úr könnun sem stendur yfir.
Fjórir mála­flokkar gína yfir alla aðra hvað mik­il­vægi varðar, sam­kvæmt fyrstu nið­ur­stöðum úr könnun sem stendur yfir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Heil­brigð­is­mál, umhverfis- og lofts­lags­mál, efna­hags­mál og kjara­mál, þar með tal­inn ójöfn­uður, eru þau mál sem flestir kjós­endur nefna sem mik­il­væg­ustu málin í kosn­inga­bar­átt­unni, sam­kvæmt nið­ur­stöðum sem Ólafur Þ. Harð­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor hefur birt úr net­könnun sem verið er að fram­kvæma á vegum Íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar.

Nið­ur­stöð­urnar sem liggja fyrir og Ólafur gerir að umtals­efni byggja á svörum frá 369 ein­stak­lingum og segir Ólafur fróð­legt að sjá hvort svörin muni breyt­ast á næstu dögum, en hópur kjós­enda er spurður á hverjum degi um þessar mundir.

„Ekkert eitt mál sker sig úr, en kjós­endur telja fjögur mál klár­lega mik­il­væg­ust: heil­brigð­is­mál (24%), umhverfis- og lofts­lags­mál (21%), efna­hags­mál (20%) og kjara­mál, m.a. ójöfnuð (14%). Öll önnur mál koma þar langt á eftir,“ skrifar Ólafur á Facebook.

Kjarninn tók nið­ur­stöð­urnar sem Ólafur birtir saman í mynd­rit hér að neðan og þar má glöggva sig á þeim áherslumun sem virð­ist til staðar á milli væntra kjós­enda mis­mun­andi flokka, með því að fletta á milli mynda. Vert er að taka fram að svörin frá kjós­endum ein­stakra flokka eru enn fremur fá.

Línurnar eru ansi skýrar. Til dæmis nefna 53 pró­sent þeirra sem segj­ast ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn og 35 pró­sent þeirra sem hyggj­ast kjósa Viðreisn efna­hags­mál sem mik­il­væg­asta mála­flokk­inn, en ekki einn ein­asti þeirra sem hafa svarað könn­un­inni hingað til og segj­ast ætla sér að kjósa Sam­fylk­ing­una, ein­ungis 2 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna og 3 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins.

[adspot]

Kjós­endur Vinstri grænna virð­ast setja umhverfis- og lofts­lags­mál á odd­inn öðru fremur, en 56 pró­sent þeirra sem hafa svarað könn­un­inni hingað til segja þann mála­flokk þann mik­il­væg­asta. Hið sama gera 38 pró­sent kjós­enda Pírata og 28 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ingar, en ein­ungis 5 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks.

Nánast þvert á flokka eru heil­brigð­is­málin stórt mál í hugum kjós­enda. Hæst hlut­fall væntra kjós­enda Fram­sóknar leggur mesta áherslu á heil­brigð­is­málin eða 43 pró­sent. Heil­brigð­is­málin eru líka mik­il­væg­ust í hugum 35 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ingar, 29 pró­sent kjós­enda Sós­í­alista­flokks­ins, 24 pró­sent kjós­enda Pírata og 21 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár