Tveggja milljóna tap Framsóknarflokksins - Hæstir styrkir úr sjávarútvegi

Stærstur hluti tekna Fram­sókn­ar­flokks­ins komu úr rík­is­sjóði, en tekjur juk­ust umtals­vert milli ára, vegna hækk­andi fram­laga úr rík­is­sjóði.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tap­aði rúm­lega tveimur millj­ónum króna í fyrra, sam­kvæmt árs­reikn­ingi, en rík­is­fram­lög voru bróð­ur­partur tekna flokks­ins. Tæplega 80 millj­ónir komu til flokks­ins úr rík­is­sjóði, í sam­an­burði við 44 millj­ónir árið 2017. Heild­ar­tekjur flokks­ins námu 121 milljón í fyrra.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi flokks­ins fyrir árið í fyrra.

Hámarks­styrkur frá einka­að­ilum er 400 þús­und krónur, og voru átta fyr­ir­tæki sem gáfu slíka upp­hæð. Af þessum átta voru sex fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi, að fisk­eldi með­töldu.

Sveit­ar­fé­lög greiddu 5,9 millj­ónir króna til flokks­ins. Ein­stak­lingar lögðu flokknum til 6,5 millj­ónir, þar af námu styrkir og félags­gjöld undir 200 þús­und krónum 5,3 millj­ónum. Leigu­tekjur og happ­drætti skil­uðu flokknum 20 millj­ónum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár