Kona með handtösku hverfur af sviðinu

Þegar rúm klukku­stund var liðin af 19. júní til­kynnti Helle Thorning-Schmidt for­maður danskra jafn­að­ar­manna, og for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur frá 2011, afsögn sína. Rúmlega tíu ára flokks­for­mennska og tæp­lega fjög­urra ára seta sem for­sæt­is­ráð­herra var á enda. Hún hefur lengst af mátt sæta mik­illi gagn­rýni, ekki síður innan raða eigin flokks­manna en and­stæð­ing­anna. Kannski ekki síst vegna þess að hún er kona, fyrsta konan sem gegnt hefur emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur.

Helle Thorning-Schmidt er fædd 14. des­em­ber 1966 í Ishøj, vestan við Kaup­manna­höfn. Ishöj hefur á síð­ari árum orðið eins konar sam­nefn­ari eins helsta deilu­efnis Dana. Þess sem nefnt er inn­flytj­enda­vand­inn. Þegar Helle Thorning var að alast upp var Ishøj lítið og fámennt sam­fé­lag sem fáir þekktu. Skóla­ganga hennar var með hefð­bundum hætti og hún varð stúd­ent frá mennta­skól­anum í Íshöj árið 1985. Þaðan lá leiðin í Hafn­ar­há­skóla. Stjórn­mála­fræði varð fyrir val­inu. Krók­ur­inn hafði snemma beygst í þá átt og á mennta­skóla­ár­unum tók Helle Thorning virkan þátt í stúd­entapóli­tík­inni en ekki í flokki jafn­að­ar­manna. Frá Hafn­ar­há­skóla útskrif­að­ist hún 1994 en hafði í milli­tíð­inni (1992 -1993) verið í námi við Evr­ópu­há­skól­ann í Bruges (Brugge) í Belgíu. Dvölin reynd­ist afdrifa­rík því þar kynnt­ist hún ungum manni frá Wales, Stephen Kinnock. Stephen þessi er sonur Neil Kinnock fyrr­ver­andi for­manns breska Verka­manna­flokks­ins og Glenys Kinnock, fyrr­ver­andi þing­manns á Evr­ópu­þing­inu. Helle Thorning og Stepen gengu í hjóna­band árið 1996 og eiga tvær dætur. Árið 1993 gekk Helle Thorning í Danska jafn­að­ar­manna­flokk­inn og ári síðar varð hún yfir­maður skrif­stofu jafn­að­ar­manna hjá Evr­ópu­þing­inu og gegndi því starfi um þriggja ára skeið. Á tíma­bil­inu1997 -1999 var hún ráð­gjafi hjá Danska Alþýðu­sam­band­inu (LO).

Evrópuþingið og „Gucci Helle“


Árið 1999 bauð Helle Thorning-Schmidt sig fram til Evr­ópu­þings­ins. Hún hafn­aði í þriðja sæti á lista jafn­að­ar­manna en það dugði til að ná kjöri. Aðal­starf hennar tengd­ist stjórn­ar­skrá Evr­ópu­sam­bands­ins. Kjör­tíma­bil Evr­ópu­þings­ins er fimm ár og Helle Thorning bauð sig ekki fram árið 2004.

Það var á meðan hún sat á Evr­ópu­þing­inu sem Freddy Blak Evr­ópu­þing­maður danskra jafn­að­ar­manna og sam­starfs­maður Helle Thorning kall­aði hana Gucci Helle. Taska sem Helle Thorning not­aði gjarna á þessum árum var frá þessu þekkta ítalska tísku­fyr­ir­tæki. Freddy Blak (lærður skipa­smiður) sagði síðar að þetta hefði ein­ungis verið sagt í gríni en ekki voru allir jafn vissir um það. Freddy Blak sagði í við­tali fyrir nokkru að hann hefði betur sleppt því að láta þessi orð falla, sér hefði aldrei dottið í hug að þau myndu fest­ast við Helle Thorning. Fremur stirt var milli þeirra tveggja á þessum árum í Brussel en Freddy Blak hefur oft sagt frá því að Helle Thorning hafi þrátt fyrir það reynst sér mjög vel.

Við­ur­nefnið Gucci Helle fest­ist hins­vegar við Helle Thorning og þótt fæstir Danir taki sér það í munn núorðið mátti víða sjá það í erlendum fjöl­miðlum þegar hún varð for­sæt­is­ráð­herra eftir kosn­ing­arnar árið 2011.

Þingmennska og formennska


Hugur Helle Thorning beind­ist að þing­mennsku í heima­land­inu. Und­ir­bún­ing að fram­boði sínu hóf hún í Brussel og var kjörin á þing í kosn­ingum sem fram fóru í febr­úar 2005. Jafn­að­ar­mönnum tókst ekki að velta stjórn Anders Fogh Rasmus­sen úr sessi og nokkrum dögum eftir kosn­ing­arnar til­kynnti Mogens Lykketoft for­maður flokks jafn­að­ar­manna afsögn sína. Innan flokks­ins börð­ust þrjár fylk­ingar um for­mennsk­una og á end­anum urðu for­manns­fram­bjóð­end­urnir tveir, Helle Thorning-Schmidt og Frank Jensen. Hún naut stuðn­ings Nyrups arms­ins svo­nefnda í flokknum (kenndur við Poul Nyrup Rasmus­sen, miðju­fólk) en Frank Jensen, fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra, naut stuðn­ings þeirra sem stóðu lengra til vinstri í flokknum. For­manns­kjörið fór fram 12. apríl 2005 og Helle Thorning hlaut 53,2 % atkvæða en Frank Jensen 46,8 %. Frank Jensen sem er yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar var kjör­inn vara­for­maður flokks­ins árið 2010 og gegnir því emb­ætti enn í dag. Helle Thorning-Schmidt var sem sé orð­inn for­maður jafn­að­ar­manna en jafn­framt nýliði á þingi.

Ég get sigrað Anders Fogh


Ein­kunn­ar­orð hennar í for­manns­bar­átt­unni 2005 voru „ég get sigrað Anders Fogh“. Það tókst hins­vegar ekki í kosn­ing­unum 2007 en 15. sept­em­ber 2011 féll stjórnin sem setið hafði frá 2001 undir for­ystu Venstre. Lars Løkke Rasmus­sen hafði tekið við for­sæt­is­ráð­her­remb­ætt­inu af Anders Fogh árið 2009, á miðju kjör­tíma­bili.

Stjórnarforystan ekki dans á rósum


Rík­is­stjórn Helle Thorning-Schmidt átti ekki náð­uga daga. Meiri­hlut­inn var afar naumur og stjórnin sem sam­an­stóð af Radikale Venstre og Sós­íal­íska Þjóð­ar­flokknum (SF) var ekki ætíð sam­stíga. Margrethe Vestager for­maður Radikale Venstre naut mik­illar hylli meðal kjós­enda og fjöl­miðlar töl­uðu stundum um að Helle Thorning væri for­sæt­is­ráð­herra í stjórn Margrethe Vestager. Breyt­ingar á stjórn­inni voru tíðar og það var næsta kunn­ug­leg sjón í sjón­varps­fréttum að for­sæt­is­ráð­herr­ann kynnti breyt­ingar á rík­is­stjórn­inni fyrir framan Krist­jáns­borg­ar­höll.

Stærsta breyt­ingin varð í jan­úar þegar Sós­íal­íski Þjóð­ar­flokk­ur­inn dró sig út úr stjórn­inni í mót­mæla­skyni við sölu á hluta DONG orku­fyr­ir­tæk­is­ins til banda­ríska fjár­fest­inga­bank­ans Goldman Sachs. Flokk­ur­inn studdi þó áfram stjórn­ina. Margrethe Vestager hætti þátt­töku í dönskum stjórn­málum í ágúst á síð­asta ári. Brott­hvarf hennar styrkti Helle Thorning sem nú var óum­deildur leið­togi stjórn­ar­innar.

[caption id="attachment_25112" align="alignnone" width="640"] Helle þótti vaxa í starfi sem for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: EPA.[/caption]

Skattamálið


Það sem nefnt hefur verið Skatta­málið hófst 23. júní árið 2010. Þá birti dag­blaðið BT grein þar sem fram kom að Stepen Kinnock greiddi ekki skatt í Danmörku, þar sem hann var skráður til heim­ilis, heldur í Sviss þar sem hann starf­aði. Í grein­inni er ýjað að því að Kinnock eigi að borga skatt í Danmörku, hann dvelji lengri tíma árlega í Danmörku en í Sviss og þess vegna beri honum að borga skatt í Danmörku. Skattar í Sviss eru lægri en í Danmörku og þarna sé ein­fald­lega ekki fylgt lögum. Blaðið fjall­aði um þetta mál dögum saman og stuðn­ings­menn Helle Thorning héldu því fram að tíma­setn­ingin á þess­ari umfjöllun væri ekki til­viljun. Kosn­ingar nálg­uð­ust og umfjöllun BT væri ætlað að koma höggi á Helle Thorning og flokk hennar, sem var á þessum tíma í stjórn­ar­and­stöðu.

Helle þótti vaxa í starfi sem forsætisráðherra. Mynd: EPA.
Helle þótti vaxa í starfi sem for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: EPA.

Hinn 16. sept­em­ber 2010 til­kynnti Skatt­ur­inn að Stephen Kinnock hefði ekki óhreint mjöl í poka­horn­inu, skatt­skyldan væri í Sviss.

Hinn 8. sept­em­ber 2011, viku fyrir þing­kosn­ingar birti dag­blaðið BT nið­ur­stöðu Skatts­ins. Nú hófst mikil leit að „upp­ljóstr­ar­anum“ sem sé þeim sem lekið hafði gögnum Skatts­ins til BT. Rann­sókn­ar­nefnd var skipuð, fjöldi fólks var yfir­heyrður, þar meðal ráðu­neyt­is­stjórar, þing­menn, ráð­herrar og yfir­menn hjá Skatt­inum, en aldrei tókst að finna út hver „upp­ljóstr­ar­inn“ var. Á þessu gekk allt þangað til í nóv­em­ber á síð­asta ári en þá lagði Mette Frederik­sen dóms­mála­ráð­herra fram nið­ur­stöður rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar sem ekki hafði tek­ist að upp­lýsa málið. Ráðu­neyt­is­stjór­inn í Skatta­ráðu­neyt­inu var lát­inn taka pok­ann sinn og einn af yfir­mönnum Skatts­ins fór sömu leið. Troels Lund Poulsen sem var skatta­mála­ráð­herra þegar málið kom upp, fékk áminn­ingu (svo­kallað næse) í þing­inu þótt ekki tæk­ist bein­línis að bendla hann við lek­ann. Hann hafði við yfir­heyrslur játað að hafa borið kvik­sögur um að Stephen Kinnock væri sam­kyn­hneigður. Helle Thorning hefur aldrei tjáð sig um skatta­málið.

Blómstraði of seint


Und­an­farna daga hafa danskir fjöl­miðlar fjallað ítar­lega um Helle Thorning- Schmidt, sem varð fyrst danskra kvenna til að gegna emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra. Álit þeirra er að hún hafi að und­an­förnu vaxið mjög í starfi. Framkoma hennar ein­kenn­ist af öryggi og hún sé full sjálfs­trausts. Hún þótti ekki síst sýna það og sanna þegar hryðju­verkin voru framin í Kaup­manna­höfn í febr­úar sl. Þrátt fyrir erfið ár á Krist­jáns­borg hafi henni tek­ist að halda bæði stjórn­inni og flokknum saman. Það hafi ekki verið auð­velt verk. Einróma nið­ur­staða stjórn­mála­skýrenda stærstu dag­blað­anna er að Helle Thorning-Schmidt hafi blómstrað að und­an­förnu en það blóma­skeið hafi ein­fald­lega komið of seint til að skila sér að fullu í nýaf­stöðnum kosn­ingum.

Enginn veit hvað Helle Thorning-Schmidt ætl­ast fyrir. Hún ætlar að vera þing­maður, að minnsta kosti fyrst um sinn sagði hún frétta­mönnum í dag. Hún var í einu blað­anna spurð hvort hún hyggð­ist flytja til Bret­lands en eig­in­maður hennar var nýlega kjör­inn þing­maður fyrir Wales. Hún svar­aði ekki spurn­ing­unni en sagði að þótt það væri kannski náð­ugra líf að vera þing­manns­frú í Bret­landi væri hún ekki viss um að það hent­aði sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár