Segir samkennd með Loga Bergmann ekki fela í sér afstöðu né van­trú á frá­sagn­ir þolenda

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir segir að á erf­iðum tím­um reyni hún „að sýna þeim sem standa mér nærri sam­kennd“. Verk hennar sem dóms­mála­ráð­herra og þing­maður í mála­flokknum segir meira um afstöðu hennar en nokkuð annað.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, iðn­aðar- og ný­­sköp­un­­ar­ráð­herra, segir við mbl.is að hún hafi viljað sýna sam­kennd með Loga Bergmann Eiðssyni fjöl­miðla­manni, sem hún teng­ist vina­böndum, með því að setja læk við yfir­lýs­ingu sem hann birti í gær. „Á erf­iðum tím­um reyni ég að sýna þeim sem standa mér nærri sam­kennd, það má gera með öðrum hætti en ég gerði. En í því felst eng­in afstaða né van­trú á frá­sagn­ir þolenda.“

Í sam­tal­inu segir Áslaug Arna að störf sín, laga­breyt­ing­ar og bar­átta í dóms­mála­ráðu­neyt­inu og sem þing­maður þar á und­an segi meira um af­stöðu sína í þessum málum en nokkuð annað. „Ég aft­ur á móti skil vel þá umræðu sem á sér stað, og ég þarf að vanda mig í þessu eins og öðru.“

[adspot]Logi Bergmann er einn fjög­­urra manna sem Vítalía Lazareva hefur ásakað um kyn­­ferð­is­brot. Hún setti fyrst fram ásak­­anir á hendur þremur mann­anna: þeim Ara Edwald, Þórði Má Jóhann­essyni og Hregg­viði Jóns­­syni, á sam­­fé­lags­miðlum í lok októ­ber. Þeir eru allir valda­­miklir í íslensku við­­skipta­­lífi.

Auk þess hún hefur sett fram ásak­­anir um illa með­­­ferð og fram­komu gagn­vart Arn­­ari Grant, sem hún átti í ást­­ar­­sam­­bandi við. Vítalía hefur meðal ann­­ars sagt Arnar hafa látið sig gera kyn­­ferð­is­­lega hluti við aðra menn gegn vilja henn­­ar.

Málið vatt upp á sig á þriðju­dag þegar Vítalía steig fram í við­tali við Eddu Falak í hlað­varp­inu Eigin konur og rakti það sem komið hefði fyrir hana.

Hún nefndi menn­ina ekki á nafn og setti auk þess fram ásökun á hendur öðrum manni vegna atviks sem átti sér stað síð­­­­­ar­. Sá maður er Logi Berg­­mann.

Sagðist saklaus á þeim sökum sem á hann hefðu verið bornar

Logi Bergmann birti yfir­lýs­ingu á Facebook í gær vegna máls­ins. Þar sagði: „Ég er sak­laus af þeim sökum sem á mig hafa verið bornar und­an­farna daga. Ég hef alla mína ævi haft and­styggð á hvers kyns ofbeldi, staðið með fórn­ar­lömbum þess og stutt bar­áttu þeirra í gegnum tíð­ina. Ekk­ert er fjær mér en að þröngva annarri mann­eskju til kyn­ferð­is­legra athafna.“

Logi Bergmann sagð­ist hins vegar vera sekur um að hafa farið yfir mörk í einka­lífi fólks með því að hafa farið inn í her­bergi sem hann átti ekki að fara inn í. „Það var takt­laust og heimsku­legt og ég hef þegar tjáð við­kom­andi að ég taki ábyrgð á því og mér þyki það leitt.“

[links]Áslaug Arna var ein þeirra sem lækaði færslu Loga. Ýmsir hafa gagn­rýnt ráð­herr­ann fyrir lækið í ljósi þess að Áslaug Arna er fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra og tók meðal ann­ars þátt í mynd­bandi með yfir­skrift­inni „Ég trúi“ þar sem þekktir ein­stak­lingar lýstu yfir stuðn­ingi við þolendur kyn­ferð­is­af­brota.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Áslaug Arna kemst í frétt­irnar vegna umræðu um „læk“ en í byrjun sept­em­ber á síð­asta ári gagn­rýndi hún Helga Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ara fyrir fram­göngu hans á sam­fé­lags­miðl­um. Hún taldi að hann mætti ekki rýra traust og trú almenn­ings með framgöngu sinni á opin­berum vett­vangi.

Hún vildi ekki tjá sig um gagn­rýni sína á Helga Magnús þegar mbl.is spurði hana út í málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár