Flugfreyjur samþykktu nýjan samning með miklum meirihluta

Félags­menn Flug­freyju­fé­lags Íslands sam­þykktu nýjan kjara­samn­ing við Icelandair með 83,5 pró­sentum greiddra atkvæða, en raf­rænni kosn­ingu lauk kl. 12 á hádegi og hafði staðið yfir frá því á mið­viku­dag. Samn­ing­ur­inn er í gildi til fimm ára.

Icelandair hefur nú náð samningum við flugstéttirnar þrjár, flugmenn, flugvirkja og flugfreyjur og -þjóna.
Icelandair hefur nú náð samn­ingum við flug­stétt­irnar þrjár, flug­menn, flug­virkja og flug­freyjur og -þjóna. Mynd: Icelandair

Félags­menn Flug­freyju­fé­lags Íslands sam­þykktu nýjan kjara­samn­ing með 83,5 pró­sentum greiddra atkvæða, en raf­rænni kosningu lauk kl. 12 hádegi og hafði staðið yfir frá því á hádegi síð­asta mið­viku­dag, 22. júlí. Nið­ur­staðan er mjög afger­andi, eins og töl­urnar bera með sér.

Alls greiddu 812 atkvæði af þeim 921 sem voru á kjör­skrá, en 678 eða 83,5 pró­sent sam­þykktu samn­ing­inn. 109 eða 13,42 pró­sent voru á móti nýjum samn­ingi en auðir seðlar voru 25 tals­ins, 3,08 pró­sent greiddra atkvæða.

Starfs­menn Icelandair sem greiða félags­gjöld til Flug­freyju­fé­lags Íslands höfðu atkvæð­is­rétt um samn­ing­inn, sem var und­ir­rit­aður aðfara­nótt sunnu­dags­ins 19. júlí eftir langa fund­ar­setu í húsa­kynnum rík­is­sátta­semj­ara í Borg­ar­túni.

Icelandair hafði þá áður til­kynnt um það á föstu­dag­inn 17. júlí að félagið hefði lokið við­ræðum sínum við FFÍ, öllum starf­andi flug­freyjum og -þjónum yrði sagt upp. Í kjöl­farið yrði samið við aðra aðila um að sinna störfum þeirra og til að byrja með yrði það í höndum flug­manna.

Flug­fé­lagið til­kynnti um þessar fyr­ir­hug­uðu aðgerðir sínar í kjöl­far þess að félags­menn FFÍ höfn­uðu fyrri kjara­samn­ingi, sem und­ir­rit­aður hafði verið 25. júní. Þetta skref Icelandair vakti mikla reiði innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og FFÍ boð­aði sam­stundis til und­ir­bún­ings all­hers­herj­ar­verk­falls.

[adspot]

En sættir náð­ust og skrifað var undir nýjan samn­ing, sem áður segir. Nú hefur hann verið sam­þykktur með afger­andi hætti.

FFÍ hafði sagt félags­mönnum sínum að nýi samn­ing­ur­inn fæli meðal ann­ars í sér breyt­ingar á tveimur umdeildum ákvæðum; mála­miðlun hefði náðst á milli FFÍ og Icelandair varð­andi auka­frí­daga fyrir flug­freyjur eldri en 60 ára og um svo­kall­aða sex daga reglu.

Icelandair segir samning í samræmi við markmið

Bæði Icelandair og Flug­freyju­fé­lagið hafa sent frá sér yfir­lýs­ingar um sam­þykkt samn­ings­ins. Icelandair segir hann „í sam­ræmi við þau mark­mið sem lagt var upp með um að auka vinnu­fram­lag en á sama tíma verja ráð­stöf­un­ar­tekjur flug­freyja og flug­þjóna“ og að samn­ing­ur­inn stuðli að auknum sveigj­an­leika fyrir bæði félagið og starfs­fólk.

Stjórn og samn­inga­nefnd FFÍ seg­ist fagna því að við­ræðum sé lokið og þakkar félags­mönnum sínum fyrir sam­stöðu og stuðn­ing, sem ríkt hafi meðal hóps­ins und­an­farna mán­uði.

„Kjörsókn var mjög góð og sýnir það ábyrgð og áhuga félags­manna á starfs­kjörum sínum og vinnu­um­hverfi,“ segir í yfir­lýs­ingu félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugsamgöngur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár