Viðbúið að 523 flugvélar sjáist aldrei aftur

Hundruð flug­véla í eigu erlendra flugleigu­fé­laga eru staddar í Rúss­landi og er talið að þær verði aldrei end­ur­heimtar. Um er að ræða fjár­hags­legt tap upp á um 12 millj­arða Banda­ríkja­dala.

Aeroflot hefur 89 flugvélar til leigu frá erlendum flugleigufélögum.
Aeroflot hefur 89 flug­vélar til leigu frá erlendum flugleigu­fé­lögum. Mynd: EPA

Nú þegar fjöld­inn allur af vest­rænum fyr­ir­tækjum hefur hætt starf­semi í Rúss­landi vegna inn­rásar þess í Úkraínu er við­búið að Rússar geri upp­töku á öllum eignum fyr­ir­tækj­anna í Rúss­landi. Aðrir sem eygja síminnk­andi von eftir því að end­ur­heimta eignir sínar frá Rúss­landi eru flugleigu­fé­lög.

Samkvæmt við­skipta­bann­inu sem Evrópa hefur sett á Rússland hafa flugleigu­fé­lög fram til 28. mars til þess að binda enda á öll við­skipti sín í Rúss­landi og koma flug­vélum síðan þaðan burt. Sér­fræð­ingar segja það nán­ast ómögu­legt.

Í síð­ustu viku voru 523 flug­vélar erlendra aðila í útleigu hjá flug­fé­lögum í Rúss­landi, og þar sem búið er að skrúfa fyrir næstum allt alþjóða­flug frá land­inu eru hverf­andi líkur á því að nokkrar þeirra yfir­gefi Rússland og að eig­endur þeirra geti þannig leyst þær aftur til sín. Samkvæmt umfjöllun New York Times hafa flugleigu­fé­lögin flest þegar sætt sig við að það muni aldrei verða. Um að ræða fjár­hags­legt tap upp á um 12 millj­arða banda­ríkja­dala, eða því sem nemur tæp­lega 1,6 billjónum íslenskra króna.

Skammgóður vermir fyrir Rússa

Sér­fræð­ingur í end­ur­heimtu flug­véla fyrir flugleigu­fé­lög segir um að ræða gíf­ur­legt tap og að þegar hafi nokkur stór flugleigu­fé­lög leitað til hans um aðstoð. Þau hafi þó flest sætt sig við að staðan væri afar þröng, og jafn­vel þó það tak­ist að end­ur­heimta ein­hverjar flug­vélar séu þær eig­endum nán­ast einskis virði án ítar­legu við­halds­skýrsl­anna sem fylgja hverri vél fyrir sig, sem yfir­leitt væru geymdar hjá flug­fé­lög­unum sjálfum.

Ljóst er að um verður að ræða gríð­ar­legt tap fyrir flugleigu­fé­lög, auk þeirra fjölda aðila sem kemur að fjár­mögnun slíkra félaga. En þrátt fyrir að Rússland muni græða á því að hafa flug­vél­arnar á sínum verður það ein­ungis til skamms tíma þar sem við­búið er að fljót­lega þurfi vara­hluti til þess að halda vél­unum við, en bæði Airbus og Boeing hafa hætt öllum við­skiptum við Rússland og verða flug­vél­arnar því næst sem ónot­hæfar áður en um of langt líður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugsamgöngur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár