Flugvellir teppast um allan heim

Langar raðir hafa mynd­ast á flug­völlum í Evrópu, Ástralíu og Banda­ríkj­unum á síð­ustu dögum, sam­hliða auk­inni eft­ir­spurn eftir milli­landa­flugi eftir far­ald­ur­inn og skorti á vinnu­afli.

Búist er við mikilli umferð um Keflavíkurflugvöll næstu dagana.
Búist er við mik­illi umferð um Kefla­vík­ur­flug­völl næstu dag­ana. Mynd: Bára Huld Beck

Mikill fjöldi flug­far­þega á Vest­ur­löndum í dymbil­vik­unni, sam­hliða útbreiddum veik­indum flug­vall­ar­starfs­manna og erf­ið­leikum við að ráða í stöður, hafa skapað miklar tafir á flug­völlum í Evrópu, Ástralíu og Banda­ríkj­unum á síð­ustu dögum. Þetta kemur fram í frétt Bloomberg.

Fleiri ferðamenn og færri starfsmenn

Samkvæmt frétt­inni hefur flug­far­þegum fjölgað tölu­vert á síð­ustu vikum á ýmsum flug­völlum, eftir því sem áhrif síð­ustu bylgju far­ald­urs­ins eru að fjara út og nær dregur páskum.

Þeirra á meðal er flug­völl­ur­inn í Sydney í Ástralíu, en fram­kvæmda­stjóri hans, Geoff Culbert, sagði far­þega­fjöld­ann þar vera um 80 pró­sent af heild­ar­fjölda far­þega um völl­inn á sam­bæri­legum tíma fyrir heims­far­ald­ur­inn. Hins vegar væru færri starfs­menn á hvern far­þega, þar sem flug­völl­ur­inn hafi ein­ungis náð að manna 60 pró­sent af öllum lausum stöðum.

Svipuð staða er uppi á ten­ingnum í Banda­ríkj­unum, en Tony Fern­andes, stofn­andi AirAsia Group, sagði í við­tali við Bloomberg að flug­vellir þar væri „stút­fullir“ af far­þegum.

Sömu­leiðis hefur far­þega­fjöldi um Heathrow-flug­völl sjö­fald­ast á síð­ustu tólf mán­uðum, en sam­hliða því hafa seink­anir á flug­ferðum orðið mun tíð­ari. Flug­völl­ur­inn hefur fengið landamæra­verði að láni frá Skotlandi og Norður-Írlandi til að geta tekið á móti þessum aukna ferða­manna­fjölda og hyggst sömu­leiðis ráða tólf þús­und nýja starfs­menn vegna þess.

Fram­kvæmda­stjóri ástr­alska flug­fé­lags­ins Qantas segir útbreidd COVID-smit vera eina ástæðu fyrir því að erfitt sé að manna í stöður, en fjar­vera starfs­manna þar nemi nú á milli 20 til 50 pró­sentum vegna þeirra.

Nánast fullbókuð stæði á Keflavíkurflugvelli

Fyrr í þess­ari viku sendi Isavia frá sér til­kynn­ingu um að bíla­stæðin við flug­völl­inn gætu fyllst nú um pásk­ana. Voru far­þegar hvattir til að bóka sér bíla­stæði í bók­un­ar­kerfi á vef Isavia til að tryggja sér stæði um pásk­ana, eða nýta sér aðrar leiðir, líkt og rútur, stræt­ó­ferðir eða bíla­stæða­þjón­ustu í nágrenni flug­vall­ar­ins.

Þrátt fyrir mikla umferð hefur flug­völl­ur­inn ekki lent í sömu mönn­un­ar­vand­ræðum og aðrir flug­vellir erlendis, en sam­kvæmt Gretti Gauta­syni, stað­gengli upp­lýs­inga­full­trúa Isavia, hefur gengið vel að ráða í stöður sam­hliða fjölgun far­þega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugsamgöngur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár