Aldrei fleiri konur meðal hinna ríkustu - samt bara 11 prósent

Konur eru aðeins tæp­lega ell­efu pró­sent þeirra sem verma lista Forbes yfir rík­asta fólkið í heim­inum. Af 1.826 millj­arða­mær­ingum sem þar eru taldir upp eru 197 konur, og hafa aldrei fleiri konur kom­ist á list­ann. Meðal millj­arða­mær­inga undir fer­tugu er hlut­fall kvenna betra, um 20 pró­sent.

Christy Walton er áfram rík­asta kona í heimi en hún hefur verið á toppnum í fimm af síð­ustu sex árum. Hún á 41,7 millj­arð Banda­ríkja­dala sam­kvæmt Forbes, fimm millj­örðum dala meira en í fyrra. Auðævi hennar nema rúm­lega 5.500 millj­örðum íslenskra króna. Walton á hlut í versl­un­ar­ris­anum Walmart, sem hún erfði eftir eig­in­mann sinn John Walton. Liliane Bettencourt, sem erfði L'Oreal snyrti­vöru­fyr­ir­tækið, er næst­rík­asta kona heims og á rúm­lega 40 millj­arða dala. Í þriðja sæti er Alice Walton, sem á einnig hlut í Walmart, og er mág­kona Christy Walton. Eignir hennar eru metnar á rúm­lega 39,4 millj­arða króna.

29 konur á list­anum falla einnig undir skil­grein­ingu Forbes yfir þá millj­arða­mær­inga sem hafa kom­ist áfram á eigin verð­leikum.

Elizabeth Holmes er yngsta konan til þess að verða millj­arða­mær­ingur upp á eigin spýtur og ein þeirra sem kemur ný inn á list­ann yfir 400 rík­ustu ein­stak­ling­ana. Hún er í 360. sæti og eru eignir hennar metnar á 4,5 millj­arða dala eða um 550 millj­arða króna. Kjarninn hefur áður skrifað um Holmes, sem er 31 árs gömul og hætti í námi í Stanford-háskóla þegar hún var nítján ára. Hún ákvað að eyða sparn­aði sínum frekar í að stofna fyr­ir­tæki en ljúka námi, og stofn­aði fyr­ir­tækið Theranos utan um hug­mynd sína um ein­fald­ari og mun ódýr­ari blóðprufur. Hún hefur stýrt fyr­ir­tæk­inu frá árinu 2003 og á enn helm­ing­inn í félag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár