Icelandair fær ríkisábyrgð á lánalínu upp á 16,5 milljarða

Sam­komu­lag hefur náðst um að Icelandair fái rík­is­á­byrgð á lánum frá rík­is­bönkum. Alþingi þarf að sam­þykkja ábyrgð­ina.

Íslensk stjórn­völd hafa ákveðið að veita Icelandair Group rík­is­á­byrgð á lána­línu upp á allt að 130 millj­ónir dala, eða 16,5 millj­arða króna. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem send var út í dag. Ábyrgðin mun nema 90 pró­sent af láns­fjár­hæð­inni og er háð sam­komu­lagi aðila um skil­mála hennar, sam­þykki Alþingis og að félagið nái mark­miðum sínum um öflun nýs hluta­fjár.

Það er rík­is­bank­arnir tveir, Íslands­banki og Lands­bank­inn, sem munu veita lána­lín­una.

Fyr­ir­hug­uðu hluta­fjár­út­boði Icelandair Group var í gær frestað fram í sept­em­ber. Upp­haf­lega stóð til að hluta­fjár­út­boðið færi fram í júní en ekki náð­ist að standa við þá tíma­línu og því frestað fram í ágúst. Nú hefur það færst enn aft­ar.

Upp­haf­lega stóð til að safna allt að 200 millj­ónum döl­um, um 27,5 millj­örðum króna, í útboð­inu. Nú hefur verið ákveðið að lækka þá upp­hæð og er nú stefnt að því að selja nýja hluti fyrir 20 millj­arða króna að nafn­verði á geng­inu ein króna á hlut. Það er mun lægra gengi en er á bréfum Icelandair í Kaup­höll Íslands en við lokun mark­aða í dag var það 1,64 krónur á hlut. „Komi til umfram­eft­ir­spurnar í hluta­fjár­út­boð­inu, myndi stjórn félags­ins hafa heim­ild til að auka hlutafé enn frekar um allt að 3 millj­arða þannig að stærð útboðs­ins yrði að hámarki 23 millj­arðar króna,“ sagði í til­kynn­Ingunni í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár